Dagblaðið - 13.12.1978, Blaðsíða 5
DAGBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR 13. DESEMBER 1978.
5
Suðumesjabáta-
skipstjóri gerist háseti
á skuttogara:
Bátum
fækkar
óðf luga á
Suður-
nesjunt
— og enn fleiri eru á
söluskrá
Margir Suðurnesjabátar eru nú á
söluskrá, líklega 12, og undanfarið hafa
allnokkrir verið seldir þaðan án þess að
aðrir kæmu í staðinn, eða 10 í ár.
Stafar þetta að sjálfsögðu af stöðugt
og ört minnkandi afla Suðurnesjabáta,
svo nú er ekki lengur hægt að tala um
neina vetrarvertíð. Fiskifræðingar spá
sizt batnandi ástandi á þessum slóðum á
næstunni.
Af þrem bátum, sem nýlega eru seldir,
má nefna Óla í Tóftum, Báruna og Eini.
Sá siðastnefndi var skráður í Reykjavik
en gerður út frá Suðurnesjum.
Þá hefur blaðið fregnað að skipstjóri
eins bátanna, sem seldur var í hausi. hafi
ráðið sig háseta á skuttogara. svo nú
virðist það freista frekar en að vera
skipstjóri á Suðurnesjabát. .G.S.
/ .....
Skipstjórarnir á Berki NKfengsælastir íár:
156 tom á dag að jafnaði
— Annar stundar veiðiskap í f rístundum og hinn er að byggja
„Ég er nú að byggja en Magni
stundar alls konar veiðiskap i sinum
fristundum,” sagði Sigurjón Valdi-
marsson, annar skipstjórinn á Berki
NK frá Norðfirði, er DB spurði hann
hvað þeir félagar gerðu i fristundum
þar sem þeir skipta skipstjórninni á
milli sin og annar er alltaf i landi.
Það þýðir að meðalaflinn á dag
hefur veriðá milli 150og lóOtonneða
tæp sjö tonn á klukkustund.
Þeir félagar hafa nú aflað nálægt 39
þúsund tonn af loðnu og kolmunna á
árinu sem er langmesta aflamagn
islenzks skips i ár. Ef tillit er tekið til
hvilda frá veiðum á milli vertíða og
skammri heimadvöl við landanir lætur
nærri að aflinn hafi fengizt á liðlega
átta úthaldsmánuðum.
Miðað við fjölda landana hefur
skipið að meðaltali landað nálægi 800
tonnum en mest hefur það borið 1170
tonn i blíðskaparveðri. 15 manna
áhöfn er á skipinu. Börkur var keyptur
notaður frá Noregi fyrir nokkrum
árum og hefur reynzt vel.
Er Sigurjón var spurður hvað mætti
hugsanlega betur fara um borð, nefndi
hann strax vélina. Hún væri ekki
nema 1200 hestöfl. sem væri fulllitið
fyrir kolmunnaveiðarnar og kæmi
einnig niður á gangi bátsins. Sagði
hann hugmyndir uppi um að skipta
um vél í Berki og fá a.m.k. 2000 hest-
afla vél.
Blaðinu er aðeins kunnugt um eitt
skip sem komizt hefur yfir 40 þúsund
tonna ársafla til þessa. er það Sigurður
RE. -G.S.
Börkur I heimahöfn á Neskaupstað, eða Norðfirði, eftir þvi hvort nafnið fólk notar.
Sendibílastöð Kópavogs h/f
heldur
AÐALFUND
sinn fimmtudaginn 21. desember kl. 18.30 á
stöðinni.
Stjómin.
Eyjagötu 7,Örfirisey
Sími 13320 og 14093
Kr. 38.400
Ennfremur furuhúsgögn í úrvali,
verð frá kr. 70.400settið.
\a
RfiGNfiRÖK
eftir
Jan Björkelund
PRENTHÚSIÐ
BARONSSTÍG 11 B
SÍMI 26380 O
Að gefhu tilefhi skal það tekið fram að skáldsagan Ragnarök
sem nýlega er komin út hjá Prenthúsinu sf. styðst ekki við
raunveruleika að neinu leyti, hvorkimynd, persónurné texti.