Dagblaðið - 13.12.1978, Síða 9
DAGBLADID. MIÐVIKUDAGUR 13. DESEMBER 1978.
9
Noregur:
40 MIUJARDA STYRKUR
TIL NORSKRA FISKVEIÐA
útgerðarmenn og sjómenn óánægðir
ogvilja63milljarða
Norskar fiskveiðar verða styrktar
um 640 milljónir norskra króna af
opinberu fé á næsta ári, samkvæmt til-
lögum opinberrar nefndar. Formaður
samtaka þeirra sem gera út og eiga
fiskibáta — Norges Fiskarlag — hefur
lýst vonbrigðum sínum yfir upphæð
styrksins og hefur í viðtali við frétta-
stofuna NTB látið hafa eftir sér að
krafa þeirra hafi verið um styrk sem
næmi einum milljarði norskra króna.
Fregnir um þennan styrk koma
fram i frétt í norska blaðinu Fiskaren
en hann nemur jafnvirði um það bil 40
milljarða íslenzkra króna en krafa
Norges Fiskarlag um það bil 63
milljörðum íslenzkra króna. Hluti af
640 milljónunum norsku eða 100 til
150 milljónir er reitt fram í formi lána,
sem að hluta til þarf að endurgreiða
eftir tiltekinn tíma. 1 Fiskaren kemur
fram, að styrkur þessi er sambærilegur
og svipaður til norskra fiskveiða og
undanfarin ár.
Að sögn er stefnt að því, þegar
styrkur þessi er ákveðinn, að tryggja
sjómönnum sambærilegar tekjur við
þá sem starfa að iðnaði og landbúnaði
i Noregi. Er byggt á gögnum frá fiski-
fræðingum og spám um afkomu og
markaðsmál. Helzta vandamálið eru
tíðar sveiflur á aflamagni og markaðs-
verði. sem erfitt er að sjá fyrirfram.
Bæði árin 1976 og 1977 voru hag-
stæð fyrir fiskveiðar Norðmanna og
tókst að halda afkomu sjómanna betri
en gert var ráð fyrir er opinber styrkur
til atyinnugreinarinnar var ákveðinn.
Aftur á móti þykja öll teikn benda til
þess, að erfiðara verði að ná því marki
áárinusemeraðliða.
Róóesía- Eldar loga
gíatt i olíustöðinni
Slökkviliðsmenn og hermenn börðust
við eldinn í oliubirgðastöð nærri Salis-
bury, höfuðborg Ródesíu, í morgun. Var
reynt að koma í veg fyrir að eldurinn
kæmist i þrjá stóra geyma með bútan-
gasi. Eldurinn kom upp í fyrrinótt og i
morgun munu þess ekki hafa verið nein
merki að hann væri i rénun. Líklegast er
því að kasta sprengjum að oliustöðinni.
Hafa orðið þar þrjár miklar sprengingar
en ekki mun neinn hafa látiz: eða særzt
af völdum eldsins eða sprenginganna.
Þetta þykir eitt mesta áfall stjórnar
lans Smith siðan svartir skæruliðar hófu
virka andstöðu gegn hvítum ibúum
Ródesíu.
talið að eldurinn hafi verið kveiktur með
Erlendar
s fréttir
5. tbl. 1978
Verð kr. 1490
mm
Élp
*SÉ
m
c;