Dagblaðið - 05.03.1979, Blaðsíða 9

Dagblaðið - 05.03.1979, Blaðsíða 9
DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 5. MARZ 1979. Erlendar fréttir REUTER Stríði Kínverja og Víetnama að Ijúka — Hua formaður hefur tilkynnt að kínverska herliðið verði kallað heim 9 N f OPEC ríkin hóta vest- rænum olíu- fyrirtækjum hörðum aðgerðum Dr. Mana Al-Oteiba, formaður sam- taka olíuútflutningsríkja, OPEC, hefur hótað þvi að koma í veg fyrir sölu á olíu til vestrænna olíufyrirtækja, sem að hans sögn okra á endursölu á olíu til viðskiptavina sinna að hans sögn. Dr. Oteiba hótaði þessu á fyrstu ráð- stefnu araba, sem haldin er um orku- mál í Abu Dhabi. Ráðstefnan hófst i gær. í New York sagði sérfræðingur i olíumálum, Walter Levy í sjónvarps- viðtali, að þau ríki sem þyrftu að flytja inn mikla olíu yrðu að sameinast til þess að koma í veg fyrir stórgróða olíu- framleiðsluríkja og stórra oliuauð- hringa. Dagblað alþýðunnar í Peking sagði í morgun að stríði Kínverja og Víet- nama væri nú að ljúka. Dagblað al- þýðunnar, sem er málgagn kínverska kommúnistaflokksins greindi frá þessu í leiðara á 81 árs afmælisdegj hins látna forsætisráðherra Kínverja Chou en lai. Kínverskir leiðtogar hafa einnig haldið því fram undan- farna daga, að stríðinu væri aðIjúka. Víetnamar hafa lýst því yfir að þeir muni herða varnarstríð sitt gegn Kínverjum og túlka diplómatar það á þann veg að þeir reyni á þann hátt að koma í veg fyrir að Kínverjar geti lýst yfir sigri í stríði þjóðanna. Sautján dagar eru nú liðnir frá því að Kínvérjar hófu innrásina í Víet- nam og sögðu kínverskir leiðtogar nú um helgina, að kínverskar hersveitir hefðu náð markmiði sínu, sem væri að sýna víetnömskum ráðamönnum fram á það að vopnuð íhlutun til þess að hafa áhrif á stjórn annarra ríkja borgaði sig ekki. Hua kuo feng formaður kínverska kommúnistaflokksins sagði í viðtali við brezka iðnaðarráðherrann, Eric Varley i gær, að stríðinu væri að ljúka. Þar sagði formaðurinn, að Kínverjar sæktust ekki eftir víet- nömsku landi og að Kínverjar hefðu nú dregið úr aðgerðum sínum í Víet- nam og myndu kalla herlið sitt heim innan tíðar. Vonir standa til að nú sjái fyrir endann i striði Vietnamaog Kinverja. Hér er særður víetnamskur hermaður fluttur á brott af félögum sínum. V. ✓ Samfarír valda krabbameini í móðurlífi kvenna — sérstaklega meðal eiginkvenna járniðnaðarmanna Konur sem giftar eru eða búa með jámiðnaðarmönnum eru í margfalt meiri hættu gagnvart krabbameini i móðurlifi en aðrar. Rannsókn sem nýlokið er og gerð var af sænska alþýöusambandinu og samtökum járn- iðnaðarmanna, sýnir að eiginkonum járniðnaðarmanna er 40 sinnum hættara við slíku krabbameini en öðrum konum. Rannsóknin var hafin vegna þess að öryggisfulltrúi járniðnaðarsamtakanna fékk áhyggjur af háu hlutfalli starfs- félaga hans og ekki hvað sízt eigin- kvenna þeirra, sem dóu úr krabba- meini. Sænska alþýðusambandið tók síðan þátt í rannsókninni með járn- iðnaðarsamtökunum. AthygUn beindist sérstaklega að þeim mönnum, sem nota sérstakar olíur við málmskurð. Talið er að þessi efni flytjist frá eiginmanninum til eigin- konunnar við samfarir. Rannsóknin nær til allra dauðsfalla af völdum krabbameins'meðal járn- iðnaðarmanna og eiginkvenna þeirra á árabilinu frá 1963—1976. Tölur varð- andi karlmennina eru ekki ógnvekj- andi, en eiginkonum þeirra er 40 sinnum hættara við móðurlífskrabba- meini en öðrum konum. Meira en helmingur þeirra kvenna er dóu, voru giftar slípurum, eða járnskurðarmönn- um, en það eru þeir menn sem nota skurðarolíuna. Rannsóknin hefur nú verið fengin í hendur Olov Axelson prófessors við rannsóknarstofnun atvinnusjúkdóma í Linköping, en hann mun dæma um niðurstöðumar læknisfræðilega. Talsmenn járniðnaðarsamtakanna óg sænska alþýðusambandsins hafa lagt mikla áherzlu á að krafizt verði strangra öryggisreglna um meðferð þessarar skurðarolíu, þannig að komið verði í veg fyrir krabbamein af völdum hennar. Árlega fá 800 konur í Svíþjóð krabbamein i móðurlíf og árið 1976 dóu 600 konur af sjúkdómnum. Orsök er mjög oft tengd maka og þekkist það víðar úr heiminum. Rannsóknir í Bret- landi og Ástralíu sýna að eiginkonur verkamanna er fimm sinnum hættara við móðurlífskrabbameini en eigin- konum forstjóra. Spánn: Fjórtán ára drengur drepinn fóeirðum Fjórtán ára drengur var drepinn í særzt er lögreglan skaut gúmkúlum og götuóeirðum á Spáni í gærkvöldi er beitti táragasi á hóp mótmælenda í hann varð fyrir gúmkúlu frá lögreglu. þorpinu Parla suður af Madrid. Lögreglan sagði að drengurinn, Fólkið var að mótmæla mikilli um- Gursino Gallego Nicasio hefði verið ferð um þorpið en það er aðeins í 18 km drepinn og fjórir lögreglumenn hefðu fjarlægð frá höfuðborginni. 0LÍUSKIP STRANDAÐI gat kom á skipið og olía fór í sjóinn Brezkt olíuskip strandaði við Gibraltar i gær og kom gat á einn tank skipsins og lak olia í sjóinn. Olíuskipið heitir Grey Hunter og er rúmlega 67 þúsund tonn að stærð. Gerð var tilraun til þess að ná skip- inu af strandstað á flóði i gær, en sú til- raun mistókst. Olíunni verður nú dælt úr skipinu í annað, til þess að létta það, þannig að auðveldara verði að ná því út og til þess að koma í veg fyrir að meira leki úr skipinu. Dráttarbátur hefur sprautað eyðandi efnum á olíuna, sem lak í sjóinn og segja yfirvöld, að tekizt hafi að koma í veg fyrir frekari mengun. Danmörk: Lakkrísát veldur sjúkdómum — Danir eru sjúkir í lakkrís í dönsku læknariti er nýlega greint frá sjúklegu lakkrísáti. Kona nokkur, 27 ára að aldri fékk skyndilega mjög háan blóðþrýsting. Heimilislæknir hennar reyndi i hálft ár að ná blóð- þrýstingnum niður með lyfjagjöf, en án árangurs. Það varð því að leggja konuna inn á sjúkrahúsið í Fakse. Þar tókst að lækna konuna, en eftir hálft ár varð að leggja konuna inn á ný. Blóðþrýstingurinn var nú mjög hár og konunni var flökurt og hún leið af uppköstum og sjóntrufl- unum. Þá loksins komust læknarnir að hinu sanna. Hún var ofurseld lakkrís- áti og át tvo poka á dag. Konan var vanin af lakkrísátinu og eftir tvær vikur var blóðþrýstingurinn orðinn eðlilegur. Svo hefur og verið síðan sjúklingurinn hætti lakkr'isáti. Læknar á Hörsholm sjúkrahúsinu hafa einnig fengizt við ,,Iakkriseitur- lyfjáneytanda”. Það var karlmaður sem skyndilega þyngdist um 8 kg og var með bjúg í andliti og á fótum. Á sjúkrahúsinu voru honum gefin lyf til þess að ná vatni úr líkamanum og náðist að létta manninn. En aðeins viku eftir að hann útskrifaðist af sjúkrahúsinu kom hann aftur og hafði þyngzt um 2,7 kg. Og þá komust læknarnir að orsökmni. Það var át á salmíakspillum. Maðurinn borðaði 100—200 gr af salmíakslakk- rís á dag. Læknarnir ákváðu að láta náttúr- una sjálfa um lækninguna i þetta sinn og eftir rúma viku fór sjúklingurinn að kasta af sér vatrti í miklum mæli og náði eðlilegri þyngd á ný. Danir borða feikn af lakkrís og af því þurfa læknar að vita. Sumir þurfa að halda sig alfarið frá lakkrísnum, sérstaklega þeir sem hafa lélegt hjarta eða of háan blóð- þrýsting. Það á einnig við þungaðar konur. Þungaðar konur langar oft í lakkrís, en verða að gæta sín og fara í bindindi. Ja nú er það svart frú Jensen. Þú hefur þó ekki fengið þér lakkrís?

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.