Dagblaðið - 05.03.1979, Side 13
DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 5. MARZ 1979.
13
r .....-
DISNEY OG „SKÁLDff)”
Á íslandi hefur þaö aldrei verið
talið til mannkosta að baknaga ná-
ungann, og þeim mun síður að níða
dauða menn í gröfinni. Þau firn hafa
þó gerzt að upp er risið „skáld”
meðal íslendinga sem lætur sig ekki
muna um að níða einn heimsfrægasta
og dáðasta listamann sögunnar, Walt
Disney.
Kverið Disneyrímur er ekki aðeins
fullt af svívirðilegu níði um lista-
manninn, heldur sýnilega hnoðað
saman til að fullnægja hatursórum í
þágu þess sem hatar allt sem á upptök
sin í Bandaríkjunum. Það örlar
hvergi á tilhneigingu til skáldskapar
né heillar hugsunar, aðeins hatur og
níð.
Þjóðviljinn lét ekki standa á sér að
kynna „skáldið”. Gleði hans yfir
níðinu átti sér lítil takmörk. Af síðum
hans mátti eins vel lesa: „Mikill spá-
maður er risinn upp meðal vor.”
Hjá Þjóðviljanum fór ekki milli
mála hvaða málstað drengstaulinn
var að þjóna. öllu lakara þótti mér
að sjá Áðalstein Ingólfsson listfræð-
ing eyða löngu máli í það að gera
þessum fádæma leirburði skil. Helst
var hægt að lesa út úr umsögn Aðal-
steins vandræðalega meðaumkun
ásamt nánast aumkunarlegum tu-
burðum til að viðra sig upp við
„aðalinn”.
í Dagblaðinu frá 28. okt. er klausa
frá „einum undrandi” sem lýsir leir-
burðinum á réttan hátt, en þorir ekki
„aðalsins” vegna að láta nafns síns
getið. Mannlegt en ekki stórmann-
legt.
Þeir sem eitthvað þekkja til sögu
íslands vita hvaða augum alþýða
manna á Islandi leit þá sem lágu flatir
og flaðrandi fyrir Bessastaðavaldinu
á timum dönsku áþjánarinnar. Þá
tima er óþarft að rifja upp fyrir viti-
bornu fólki. Ég á þess von að íslensk
alþýða væri sama sinnis í dag, ef örl-
aðiásliku.
Ekki má skilja orð mín svo, að ég
sé á einn eða annan hátt að vega að
hinu núverandi „Bessastaðavaldi”,
enda þótt ég megi eiga von á slikri
kveðju i Þjóðviljanum. Hins vegar
tel ég enga þá persónu vera til á ís-
landi í dag, sem vegna stöðu sinnar á
að vera „skotheld” fyrir gagnrýni.
Dæmi þiess eru enn í fullu gildi, þar
sem ÞjóOviljinn sparaði ekki gagn-
rýni á fyrsta forseta lýðveldisins,
Svein Björnsson, í forsetatíð hans.
Einn höfuðpaur kommúnista,
Magnús Kjartansson, hélt sig við
sama heygarðshornið, er hann 16.
júní sl. fékk inni í Morgunblaðinu til
að sletta úr klaufunum og sverta
minningu Sveins, enda þótt hann
hefði uppi aumlega tilburði til að éta
ofan í sig óhróðurinn.
Þjóðviljinn sendi mér, Hannesi
Gissurarsyni og Jóni Árnasyni „kær-
leikskveðju” sína fyrir nókkru. Það
er visbending til okkar um að við
séum á réttri Ieið. Færi hann að hæla
okkur værum við á glötunarbraut-
inni. Kommúnistum er heldur illa við
að bent sé á hvernig þeir misnota að-
stöðu sína í skjóli lýðræðisins til að
grafa undan því þjóðskipulagi sem
þeir njóta góðs af að lifa við á ís-
landi, en hafa svarið dýran eið að tor-
tíma. M.ö.o. þeir ná ekki upp í nef
sér út af því að hafa ekki ennþá haft
aðstöðu til að koma á kommúnistísku
einræði á íslandi. Ef til vill sjá þeir
nú hilla undir þann óskadraum, enda
þótt forustusauður þeirra yrði af for-
sætisráðherra stólnum að þessu sinni.
Var þó gerð óvænt og ótrúleg tilraun
til að koma honum í það sæti.
Góðskáld kommúnista kvað eitt sinn:
„Sovétísland óskalandið, hvenær
kemurþú”.
Á hraðri leið
til sósíalisma
Ég endurtek þess vegna spuming-
una, sem fór svo herfilega í taugarnar
á Þjóðviljanum: „Hvers vegna hefur
kommúnistum verið hleypt svona
langt á kostnað lýðræðisins?” Þeir
mundu ekki hafa hneykslast svo á
þessari spumingu minni nema til að
viðurkenna að ástæða er til að hafa
allan varann á um þeirra fyrirætlanir.
AUir vita að í fjölmiðlum, útvarpi og
sjónvarpi, svo og í skólakerfmu hafa
þeir haft langtímaskipulag um að ná
undirtökum. Það er þetta sem við
erum að aðvara um og sem betur fer
er að ná í ríkara mæli augum og
'eyrum íslendinga. Við munum því
:ekkert til spara að vara þjóðina við,
;því of lítið hefur verið að því gert til
þessa. Reykjavíkurbréfi Morgun-
blaðsins frá 3. des. sl. lauk með
þessum orðum Eyjólfs Konráðs Jóns-
sonar: „Við erum á hraðri leið til
sósíalisma, leið til ánauðar og versn-
andi lífskjara”. Það gUdir einu þótt
skáldfákar kommúnista skeiði um
völl með frísi og fretum, framleiðslan
verður aldrei nema á einn veg. Ef
Kjallarinn
ÞórðurHalldórsson
skáldskapur er réttnefni á Disneyrim-
um er vandséö hvar menningu íslend-
inga er komið. En takið eftir, góðú
hálsar, þær verða verðlaunaðar með
skáldastyrk. Brauðstritsfólkinu er
ætlað að kosta þennan lýð á skóla-
bekk erlendis. Þetta er afraksturinn.
Við lestur Disneyríma sá ég fyrir
mér ungan mann, sem gerði það sér
það til frægðar að æsa upp ungUnga-
hóp og storma niður að höfn til að
sletta rauðri málningu á skip í opin-
berri heimsókn
„Skáldinu” mun ganga erfiðlega
að slá út frægð Walt Disney, nema þá
helst að endemum.
Þórður Halldórsson,
Luxemburg.
Dæmi 22" kr. 555.265 — Útb. 194.343 og eftirstöövar ca. 60 þús. á mánuði
nordíDende
Mest seldu sjónvörp á íslandi |
Hvers vegna? — V-þýsk gæðavara.
Það hefur sýnt sig að Islendingar eru vandlátir, vanda valið og velja NordMende.
Okkur er það ánægja að kynna yður árgerð 1979. Sjaldan hefur tæknin þjónað mannin-
um jafn dyggilega. Ein mesta byltingin á árgerð 1979 er nýr myndlampi PIL
(precision in-line) sjálfvirk samhæfing á lit sem gefur miklu skarpari mynd en áður
þekktist,.jafnvel þó bjart sé inni.
V BUÐIN
Skipholti 19, simi 29800.
nordíDende