Dagblaðið - 05.03.1979, Side 25

Dagblaðið - 05.03.1979, Side 25
DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 5. MARZ 1979. 25 HELGARSTEIKIN 265 KR. DÝRARI — niðurgreiðslur óbreyttar í krónutölu Helgar,,steikin” hækkar í verði um 265 krónur, ef við hugsum okkur, að í hana fari 2 1/2 kíló af læri. Hækkunin á búvörum er mjög mismunandi. Verðlagsgrundvöllur búvara hefur hækkað um rúm 6%, einkum vegna launahækkana, olíuhækkana og kjarn- fóðurs. Til viðbótar er niðurgreiðslum haldið óbreyttum í krónutölu, svo að verðhækkunin verður meiri fyrir vikið. Smásöluálagning hækkar einnig um 6—7 prósent. Mjólkin hækkar um 12,5%, úr 135 krónum í 152 krónur lítrinn. Rjómi hækkar um 11%, úr 906 krónum í 1007 krónur hver lítri. Smjörið hækkar um 19%, úr 1156 krónum í 1370 hvert kíló. Hækkun dilkakjöts er 9,5 prósent. Kíló af súpukjöti fer úr 781 krónur í 865 krónur. Kíló af læri fer úr 1150 krónum í 1256krónur. Kartöflurnar hækka um 19% eða nálægt 100 krónum 5 kg poki. Nauta- kjöt hækkar um 9%. H.H. BJARGHRINGUR AF VER FRÁ EYJUM RAK Á BERJANESFJÖRU Einn bjarghringur hefur fundizt til Fjörur í Eyjum og undir Eyja- varnadeildarmenn myndu huga vel að viðbótar úr v.b. Ver VE 200 sem fórst á fjöllum hafa verið gengnar en annað en fjörum á þeim svæðum sem búast fimmtudagskvöldið. Fannst bjarg- bjarghringurinn hefur ekki fundizt þar. mætti við að eitthvað ræki. í og við hringurinn á Berjanesfjöru austan Hannes Hafstein framkvæmda- Eyjar er stöðugt hugað að hlutum er Holtóss. stjóri SVFÍ sagði að bændur og slysa- reka kunna. -ASt. Þeir komust af úr slysinu þegar Ver fórst við Eyjar: Árni Magnússon skipstjórí og Benedikt H. Þorgrimsson háseti. Þórður Markússon, sldpstjóri á Bakka- vík ÁR—100, sem bjargaði mönnunum tveimur úr sjónum. DB-myndir: Jónas Sig. Vestm. SVEITARSTJÓRN- ARMENN RÆÐA MÁLEFNI ALDRAÐRA Samband íslenzkra sveitarfélaga gengst fyrir ráðstefnu um málefni aldraðra á miðvikudag og fimmtudag, 7. og 8. marz, á Hótel Sögu. Þar verður skýrt frá niðurstöðum kannana, sem nýlega hafa verið gerðar á högum aldraðra i ýmsum sveitarfélögum og i heilu héraði og erindi flutt um ný viðhorf í málefnum aldraðra á Norðurlöndum. Nú verður fjallað um þjónustu sveitarfélaga í þágu aldraðra, félags- málastarfsemi og heimilishjálp, svo og húsnæði, sem ætlað er öldruðum. Ráðstefnugestum — sem verða úr hópi sveitastjórnarmanna — gefst kostur á að skoða ýmsar stofnanir á höfuðborgarsvæðinu sem vista aldraða, og sérstaklega verður rætt | um heilsugæzlu og atvinnumál aldraðra. -ÓV. Réttar- ráðgjöfin færir út kvíarnar Ókeypis lögfræðiráðgjöf nokkurra lögfræðinga hefur verið veitt i nokkrar vikur og hafa fjölmargir notfært sér þjónustuna, að sögn aðstandenda, sem ekki vilja láta nafna sinna getið með tilliti til siðareglna lögmanna. Nú hafa lögfræðingarnir í Réttar- ráðgjöf ákveðið að færa út kvíarnar og svara skriflegum fyrirspurnum fólks. Geta menn því sent skriflegar spuming- ar sínar um alls kyns lögfræðileg vandamál til Réttarráðgjafarinnar, Box 4260, 124 Reykjavík, ásamt nafni, heimilisfangi og sima. Lögfræðingamir munu áfram veita góð ráð í gegnum síma (17609) öll miðvikudagskvöld milli hálfátta og tíu til mailoka. Þokkabót ogEik ÍMH Hljómsveitirnar Eik og Þokkabót halda tónleika í sal Menntaskólans við Hamrahlíð anpað kvöld kl. 21.00. Þetta verða næstsíðustu tónleikar hljómsveitanna í óákveðinn tíma og jafnframt þeir síðustu i Reykjavík. Eik og Þokkabót hafa undan- farið haldið tónleika nokkuð víða í skólum og vakið almenna hrifningu. Þokkabótarmenn vilja með þessu tónleikahaldi vekja athygli á nýútkominni plötu sinni, í veruleik, en Eik hefur hafið starf á ný í stuttan tíma eftir allangthlé. -ÓV. Beint af ballinu í loðnuna Þær fengu lítið frí frá loðnuvinnslunni, konurnar í Vestmannaeyjum. í fyrrinótt klukkan 3 vom þær ræstar til vinnu og má ætla að sumar hafi jafnvel komið beint af böllunum, sem haldin voru. Mikil loðna hefur borizt til Eyja að undanförnu svo að biðröð hefur verið hjá bátum til löndunar. Er áherzla lögð á að frysta sem mest og vinna sem mest af loðnuhrognum, þannig að vinnan i frystihúsunum er mjög mikil. -ASt. Smurbrauðstofan BJORNINN Njálsgötu 49 - Simi 15105 10-20% AFSLÁTTUR Mokkajakkar og kápur á fullorðna. Mokkalúffur og háfur á börn og fullorðna. RAMMAGERÐIN HAFNARSTRÆTI 19 -óv.

x

Dagblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.