Dagblaðið - 07.05.1979, Page 3
DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 7. MAl 1979.
3
Blómainn-
flutningur
— athugasemd við grein í DB
í Dagblaðinu miðvikudaginn 2.
maí 1979 birtist viðtal við garðyrkju-
bónda í Hveragerði, Þórð Snæ-
björnsson, um innflutning blóma. Á
viðtalinu er greinilegt að viðmæland-
inn hefur mjög lítið vit á þessum mál-
um og finnst mér ég verða að koma á
framfæri nokkrum mjög mikilvæg-
um athugasemdum þar sem ég er vel
kunnugur þessum innflutningi.
„Blóm eru ekki á f rflista"
Það er ekki skrítið þótt hvorki hafi
gengið né rekið í því baráttumáli,
Þórðar að fá blóm tekin af frílista,
ekki er heldur að undra þótt Þórður
hafi ekki fengið svar við bréfi til
framleiðsluráðs um sama efni, því
,,blóm eru ekki á frílista” og hafa
ekki veirð í þrjú ár.
„Þœr tegundir sem til eru á innan-
landsmarkaði ekki fluttar inn"
í viðtalinu segir Þórður að blóma-
innflutningur hafi valdið garðyrkju-
mönnum „stórtjóni” og heldur því
fram að fluttar séu inn sömu tegundir
og til eru á innanlandsmarkaði.
Þetta er alröng staðhæfing enda er
stefna blómakaupmanna að „ekki
séu fluttar inn þær tegundir blóma
sem í boði eru innanlands”.
Eins og ég sagði áður hefur blóma-
innflutningur verið háður gjaldeyris-
leyfum síðastliðin þrjú ár, það þýðir
að innflutningur hefur verið mjög
takmarkaður. Úthlutun gjaldeyris-
leyfa er í höndum gjaldeyrisdeildar
bankanna, þar sem fulltrúi viðskipta-
ráðuneytisins skipar mikilvægt sæti.
Samkvæmt upplýsingum skrifstofu-
stjóra viðskiptaráðuneytisins hafa
engar óskir borizt ráðuneytinu um að
úthlutun leyfa verði takmörkuð
meira en nú er, þó finnst manni liggja
beint við að garðyrkjubændur leiti
beint til viðskiptaráðuneytisins, eða
gjaldeyrisdeildarinnar, ef þeim finnst
innflutningur of mikill.
„Er stefnt að einokun"?
Þessi atriði og mörg fleiri renna
stoðum undir það að ásetningur
garðyrkjubænda sé fyrst og fremst sá
að fá um blómadreifingu sams konar
einokun og er um innflutning og
dreifingu grænmetis (Grænmetis-
verzlun landbúnaðarins). Enda finnst
þeim greinilega útilokað að nokkrir
áðrir aðiljar en þeirra „eigin fyrir-
tæki” hafi með innflutning að gera.
„Hvers vegna flytja garðyrkju-
bændur sjálfir inn blóm"?
Ef magn innfluttra blóma á mark-
áðnum á yfirstandandi vetri hefur
verið að „kæfa” Þórð og hans
félaga, hvers vegna bæta garðyrkju-
menn sjálfir við magnið og flytja
verulegt magn inn sjálfir, en það hafa
þeir gert i allan vetur? Er svarið það
að garðyrkjumenn vilji „einokun”?
„Hvers vegna hafa garðyrkju-
bændur ekki farið fram á við
blómainnflytjendur að dregið verði
úr innflutningi"?
Félag blómaverzlana hefur samein-
azt um innflutning á mestum hluta
þeirra blóma sem fiuttur hefur verið
til landsins. Þetta vita forsvarsmenn
garðyrkjubænda mjög vel, einnig
'vita þeir hvert okkar heimilisfang er.
Félag blómaverzlana hefur ekki
fengið „eina beiðni” um að dregið
verði úr innflutningi blóma á yfir-
standandi vetri, ekki hefur þetta mál
heldur komizt á það umræðustig sem
nú er á fundum stjórnar Félags
blómaverzlana og garðyrkjubænda
sem þóeru haldnir af og til.
k Að lokum skora ég á blómafram-
leiðendur að boða nú þegar til fundar
með stjórn Félags blómaverzlana um
þessi mál enda tel ég það réttari leið
en fara beint til framleiðsluráðs og
óska eftir aðgerðum til einkasölu,
sem virðast komnar nokkuð á veg, ef
rétt er að í frumvarpsdrögum land-
búnaðarráðherra um landbúnaðar-
mál séu tillögur um einokunarverzlun
gróðurhúsaafurða. Bjarni Finnsson.
Spurning
dagsins
Heldurðu að barna-
árið hafi einhver
áhrif er fram í sæk-
ir?
Steinar Freysson vörubifreiöarstjóri:
Ég ætla að vona þaö. Og þá í betri átt
fyrir börnin.
Spurning
dagsins
ÞEIR SEM VILJA VÖNDUÐ VERKFÆRI,VELJA
Einkaumboö á íslandi fyrir SKIL rafmagnshandverkfæri:
FALKIN N
SUÐURLANDSBRAUT 8, SÍMI 84670
Hilmar Þór Helgason kranastjóri: Já,
ég myndi segja það. Ég held að það
hljóti að vera. Þó gæti verið að það
félíi í gleymsku þegar lengra liði.
Steinar Ingimundarson bílstjóri: Ég
vona það. Til betri vegs vona ég.
RAFM AGNSm HAN DVERKFÆRI
Það er okkur mikil ánægja aö geta nú boðið hin margreyndu
og viðtrægu SKIL ratmagnshandverkfæri.
SKIL verksmiðjurnar voru stofnaðar i Chicago i Bandarikjunum árið 1924 til framleiðslu
á nýrri einkaleyfisuppfinningu, rafknúinni hjólsög, hinni heimsfrægu SKIL-sög,
sem viðbrugðið var fyrir gæði. Siðan hafa verið framleidd mörg verkfæri og gerðar margar
nýjar uppgötvanir á rannsóknarstofu SKIL verksmiöjanna, sem hafa gert
SKIL handverkfærin heimsfræg og eftirsótt.
Jónas Sigurðsson sjómaður: Ég ætla
mér ekki að dæma um það. En vegur
barnanna mætti batna.
Édda Guðgeirsdóttir afgreiðslumaður:
Ég veit það ekki. Ætli staða barna
batni ekki eitthvað. Að það verði tekið
meira tillit til þeirra.
SKIL borvélar með stlglausum hraöabreyti eru
gæddár þeim kosti, að þvi meir sem þú þrýstir á
gikkinn, þvi hraöar snýst borinn. Þannig færðu rétta
hraöann fyrir það verkefni sem þú ert að vinna,
hvort sem þú ert aö bora iflisar, stein, tré eða annað.
SKIL borvélar eru fallega hannaðar, kraftmiklar, og
auðvelt er að tengja við þær marga fylgihluti. Auk
borvéla framleiðir SKIL af sömu alúð og vandvirkni,
stingsagir, stórviðarsagir, hefla, slipivélar og fræs-
ara auk hinna heimsfrægu hjólsaga.
SKIL rafmagnshandverkfæri svara fyllstu kröfum
nútimans og henta jafnt leikmönnum sem atvinnu-
mönnum.
Póstsendum myndlista ef óskað er.
Gunnlaugur Magnússon sendi-
bifreiðarstjóri: Ég veit ekki. Það gæti
haft sín áhrif. Þessar sýningar sem
verið hafagætu gert góða hluti í þáátt.