Dagblaðið - 07.05.1979, Side 9
DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 7. MAl 1979. 9
f
Bretland:
Eigum að sætta okkur
Bretar eiga að sætta sig við það
samkomulag, sem gert var á milli
stjórnar lans Smiths í Ródesíu og
hinna þriggja svörtu leiðtoga, sem
leitt hefur til myndunar ríkisstjórnar
Muzorewa biskups og almenns at-
kvæðisréttar svartra manna i
Ródesíu, segir Margaret Thatcher,
hinn nýi forsætisráðherra Bretlands,
í viðtali sem birtist í sunnudagsút-
gáfu New York Times í gær. Var við-
talið tekið fyrir kosningarnar i Bret-
landi en ekki birt fyrr en nú.
Frú Thatcher sagði, að spurningin
væri ekki lengur hvort vera ætti ríkis-
stjórn hvítra eða svartra í Ródesíu
heldur hverjir vera ættu í ríkisstjórn
svartra.
Hún sagði ennfremur að fyrri áætl-
un Breta og Bandaríkjamanna varð-
andi framtíð Ródesiu væri ekki tíma-
bær lengur. Ef Ródesíumenn gengju
að þeim kröfum sem brezka stjórnin
hefði lagt fram árið 1966 fyrir því að
sjálfstæði landsins yrði viðurkennt,
ætti að viðurkenna þá staðreynd og
engin ástæða væri til frekari aðgerða
eins og viðskiptabanns.
Hinn nýi forsætisráðherra Breta
sagði að aukin framlög til hermála
ættu að bæta úr því sem á vantaði til
að þeir legðu fram sinn skerf til sam-
eiginlegra varna vestrænna ríkja.
Um að vera fyrsta konan til að
taka að sér forsætisráðherrastöðu í
vestrænu lýðræðisríki, sagði Marga-
ret Thatcher, að minna mætti á að
Bretlandi hefði vegnað vel undir
ísrael:
Beginætlarað
halda áfram til
1983
Menachem Begin forsætisráðherra
er sagður hafa skýrt frá því að hann
hyggist taka þátt í næstu þingkosning-
um þar í landi en segja síðan af sér árið
1983.
GíslaríSan
Salvador
Vinstri sinnaðir skæruliðar í Mið-
Amerikuríkinu San Salvador héldu enn
i morgun tiu gíslum þar á meðal sendi-
herrum Frakklands og Costa Rica.
Viðræður fara fram milli stjórnvalda
og skæruliða en ekki er vitað um gang
þeirra.
Bandaríkin:
Vinsælt svefnlyf
geturvaldið
krabbameini
Talið er liklegt að bandárísk yfirvöld
muni bráðlega banna framleiðslu vin-
sælla svefnlyfja, sem innihalda efnið
methapyrilene. Komið hefur í Ijós, að
efni þetta getur valdið krabbameini í
músum.
Bandaríkin:
Mótmælaganga
gegn kjarnorku-
verum
Nærri sjötiu þúsund manns tóku þátt
í mótmælagöngu í Washington í
Bandaríkjunum gegn kjamorkustöðv-
um í gær. Þar á meðal var margt frægt
fólk. Einn ræðumanna var Jane
Fonda, sem leikur aðalhlutverkið í
kvikmyndinni China Syndrome, sem
fjallar um kjarnorkuslys.
Sagði leikkonan að ákvörðun um að
setja James Schlesinger orkumálaráð-
herra til forustu í orkumálum Banda-
ríkjanna væri eins og að setja Dracula
yfir blóðbanka.
stjórn kvenna áður en lýðræðið
kómst á að fullu. Nefndi í þeim efn-
um timana undir stjórn Elísabetar
drottningar I. og Viktoríu drottning-
ar.
„Ég tel að konur séu til muna hag-
sýnni en karlar hangi ekki eins við
bókstafinn. Þær lita einnig á málin til
lengri tíma því þær hafa í huga fram-
tíð barna sinna er þau verða fullorð-
in,” sagði Thatcher forsætisráð-
herra.
Hún neitaði algjörlega þeirri kenn-
ingu, að konur væru illa fallnar til
stjórnunarstarfa. Mun fleiri konur en
karlar hafa reynslu á því sviði þvi
þær stjórna heimilunum. „Þær
kunna að taka ákvarðanir en láta
ekki reka á reiðanum.”
1 ■
'1
*. '■->'-
?m:\
: - J
****+!&
mm
-f'i
■
Austurstræti 12
Spánn - Júgóslavía
Odýrar vandaðar og öruggar
ferðir til Costa del Sol og Portoroz,
hinna vinsælu ferðamannastaða.
Fullkomm þjónusta á fyrsta flokks
hótelum. Fjöldi fróðlegra og
skemmtilegra skoðunarferða.
Víkulegar brottfarir. Eins, tveggja,
þriggja eða fleiri vikna ferðir.
Pantið strax - sala er nú í fullum
gangi og þegar orðið uppselt í
nokkrar ferðir.
Odýrsandur
örugg sól