Dagblaðið - 07.05.1979, Blaðsíða 13
DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 7. MAI 1979.
13
[ Formanns- og varaformannskjör Sjálfstæðisflokksins:
3
„Menn hneykslast við hreinskilni,” sagði Gunnar Thoroddsen.
Enginn Davíð hefur lagt tvo
Golíata
að velir
Geir Hailgrímsson kosinn formaður
og Gunnar Thoroddsen varaf ormaður
Geir Hallgrímsson var endurkjörinn
formaður Sjálfstæðisflokksins á lands-
fundi sl. laugardag og Gunnar Thor-
oddsen endurkjörinn varaformaður
flokksins.
öruggt hjá Geir,
naumt hjá Gunnari
í formannskjörinu fékk Geir Hall-
grímsson 594 atkvæði, en Albert
Guðmundsson 208. Aðrir fengu 17 at-
kvæði og ógildir og auðir seðlar voru
23. Gunnar Thoroddsen fékk 372 at-
kvæði i varaformannskjörinu, Matt-
hías Bjarnason 310 atkvæði og Davíð
Oddsson fékk 142 atkvæði. Auðir seðl-
ar og ógildir voru 6 og aðrir fengu 9 at-
kvæði.
Að loknu formannskjöri þakkaði
Geir Hallgrímsson landsfundarfulltrú-
um það traust, sem honum hafði verið
sýnt. ,,Ég heiti því að gera mitt bezta,”
sagði Geir. ,,Nú eru sex ár síðan ég var
kosinn formaður Sjálfstæðisflokksins.
Á þeim tima hafa skipzt á skin og skúr-
ir. Sjálfstæðisflokkurinn hefur unnið
sinn mesta kosningasigur og einnig
beðið sinn mesta ósigur.
Enginn veit hvað framtíðin ber í
skauti sér. Ég hlakka til að takast á við
það verkefni að veita Sjálfstæðis-
flokknum forystu, með traustið að
bakhjarli.
Hér hafa verið væringar, en ég tek í
hönd á mótframbjóðanda mínum. Við
sjálfstæðismenn tökumst í hendur nú
að þessum kosningum loknum.”
Veiti Geir aðhald
Albert Guðmundsson tók því næst
til máls. Hann sagði m.a.: „öllum hér
inni er léttir að þessar kosningar skuli
afstaðnar. Ég leyfi mér að óska Geir
Hallgrímssyni til hamingju með þetta
góða kjör í okkar sterka og góða
flokki. Útkoman er sem betur fer sam-
staða, sem hjálpar okkur til þess að
takast á við andstæðinga okkar í einni
fylkingu og sigra.
Ég er ekki þannig skapi farinn, að ég
hætti að veita Geir Hallgrímssyni það
aðhald, sem hann þarf að fá. En sam-
stöðu skal hann fá 100%.”
Leysum
ágreiningsmálin
Að lokinni lýsingu varaformanns-
kjörs þakkaði nýkjörinn varaformað-
ur, Gunnar Thoroddsen traustið. Hann
sagði við það tækifæri: „Ég vil byrja á
þvi að óska Geir Hallgrímssyni til ham-
ingju með hans kosningu.
Nú þegar tveimur kosningum er
lokið og landsfundur hefur markað
stefnu ber að taka til starfa og fram-
fylgja stefnunni og gera allt til þess að
leysa svokölluð ágreiningsmál.
Oft heyrast kröfur frá flokksmönn-
um um það í hreinskilni sé leyst frá
skjóðunni. Svo þegar það er gert verða
menn hneykslaðir. Við Geir Hallgríms-
son höfum starfað saman í 25 ár að
borgar- og landsmálum. Óteljandi eru
þau mál, sem við höfum leyst með fullu
samkomulagi. En vitanlega hafa oft
verið skiptar skoðanir, bæði um menn
og málefni.
Því miður eru sum mál, sem hefur
gengið erfiðlega að leysa, en þau verða
leyst. Hin málin, sem við erum sam-
mála um, eru langtum fleiri.”
Davíð og Golíat
Davíð Oddsson óskaði nýkjörnum
varaformanni til hamingju, svo og for-
manni. Þá óskaði hann Matthíasi
Bjarnasyni til hamingju með j>óða út-
komu. ,,Ég sem ungur maður má vel
við una,” sagði Davíð. „Enginn Davíð
hefur lagt tvo Golíata að velli á einum
fundi. Orrahríð er að baki og framund-
an er sókn gegn sameiginlegum fjand-
mönnum.”
„Það er ekki veikleikamerki á Sjálf-
stæðisflokknum, þótt kosið sé um
menn,” sagði Matthías Bjarnason.
,,Ég óska því bæði Davíð og Golíat til
hamingju. Ég er hvorki Davíð né
Golíat. Ég óska að Sjálfstæðisflokkur-
inn vaxi að vexti og virðingu.” —JH.
Loftdemparar
Stýrisdemparar
fl*f' t
Gasdemparar
HOGG-
DEYFAR
íflestartegundir
bifreiða á ótrúlega
hagstæðu verði.
Póstsendum um allt land
HÖGGDEYFIR
Dugguvogi 7 — Sfmi 30154
i fyrir öll og klæðið húsið
varanlegri álklæðningu, það er ódýrara en margir halda.
Sendið teikningu og við munum reikna út efnisþörf og gera verðtilboð
að kostnaðarlausu. _• ___
FULLKOMIÐ KERFI TIL SIÐASTA NAGLA
ÆGISGÖTU 7, REYKJAVÍK - SÍMI 22000