Dagblaðið - 07.05.1979, Qupperneq 15
DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 7. MAl 1979.
S
Iþróttir
Iþróttir
15
íþróttir
Iþróttir
I
Mikilvægur sigur A-
Þjóðverja yf ir Sviss
Austur-Þjóðverjar bættu stöðu sina i
4. riðli Evrópukeppni landsliða veru-
lega er þeir sigruðu Svisslendinga 2-0 á
laugardaginn í St. Gallen i Sviss. Bæði
mörk Þjóðverjanna komu á ákaflega
mikilvægum augnablikum. Hið fyrra
skoraði Lutz Lindeman á lokasekúnd-
um fyrri hálfleiksins og síðara markið
skoraði Joachim Streich rétt fyrir leiks-
lo^.
Sfcigvisslendingar áttu sízt minna i leikn-
uni o'g áttu ein. fjögur tækifæri til að
skora en tókst ekkt: -íslendingar eru í
þessum riðli ásamt Pólverjum og Hol-
lendingum og næsu leikur er einmitt á
milli Sviss og íslands þann 22. þessa
mánaðar. Ahorfendur í St. Gallen
voru 9000 talsins.
Staðan í riðlinum er nú þessi:
Holland
Pólland
A-Þýzkaland
ísland
Sviss
„Vona að ég geti verið
með f landsleikjunum”
—sagði Jóhannes Eðvaldsson í gær en hann meiddist illa í ökkla í leik Celtic við
Rangers. Fékk þó hæsta einkunn íöllum skozku blöðunum
„Ég var heppinn að brotna ekki um
ökklann — þetta var mjög slæm „takl-
ing” hjá Parlane aftan frá. Ökklinn er
stokkbólginn en ég vona aö þetta lagist
svo ég geti leikið landsleiki íslands gegn
Sviss og Vestur-Þýzkalandi síðar i þess-
um mánuði. Mig langar mjög til að
vera með i þeim leikjum,” sagði Jó-
hannes Eðvaldsson, þegar DB ræddi
við hann f gær. í fréttum BBC á laugar-
dag var sagt, að Jóhannes hefði meiðzt
svo illa að hann mundi ekld leika meir á
þessu leiktimabili. Atvikið átti sér stað
á 16. mín. i leik Rangers og Celtic á
Hampden Park — en þrátt fyrir meiðsl-
in lék Jóhannes allan leikínn.
„Það var rangt hjá mér að fara ekki
út af strax — en maður dofnar, þegar
þetta á sér stað. Ég hélt að meiðslin
væru ekki svona slæm en vissulega var
erfitt að leika. Þetta var líka hörku-
leikur og úrslitin ákaflega þýöingar-
mikil fyrir bæði lið. Rangers vann en
við hjá Celtic fengum okkar tækifæri.
Jafntefli hefðu verið sanngjarnari úr-
slit. Markið, sem Alex MacDonald
skoraði á 57. mín. var hrein vitleysa.
Þaö munaði sáralitlu að mér tækist að
bjarga á marklínu.
Þegar ég fór úr skónum eftir leikinn
var ökklinn orðinn stokkbólginn —
auk þess sem ég hafði tognað á innan-
verðum fætinum. Ég fór strax í ítarlega.
rannsókn en sem betur fór kom í ljós-
að um brot var ekki að ræða. Liðbönd-
in höfðu heldur ekki slitnað en ég gat
ekki stigið í fótinn á laugardagskvöld.
Ég fór aftur í aðgerð í morgun og var
þá betri. Gat aðeins hreyft ökklann og
verð i meðferð tvisvar á dag næstu
daga. Bara að ég hefði nú öU tækin
hans pabba hér við höndina,” sagði Jó-
hannesennfremur.
Hann mun ekki leika með Celtic í
kvöld gegn Partick — en Jóhannes
hefur yfirleitt náð sér nokkuð fljótt
eftir meiðsli — svo hann var jafnvel að
gera því skóna að hann gæti leikið hinn
þýðingarmikla leik við Rangers á Park-
head þriðjudaginn 15. mai — en greini-
legt var þá á Jóhannesi í gær, að hann
var mest með hugann við Evrópuleik
Sviss og íslands í Bern 22. maí og leik
Íslands og Vestur-Þýzkalands í Reykja-
vík helgina á eftir. í gær var ökklinn
mjög bólginn en mar var farið að koma
út, semergóðs viti.
Aðeins þrír leikir voru i skozku úr-
valsdeildinni á laugardag. Úrslit urðu
þéssi:
DundeeUtd. — Aberdeen 2-2'
Partick — Hearts 2-0
Rangers—Celtic 1-0
Aberdeen náði jafntefli gegn Dundee
Utd. á mjög vafasamri vítaspyrnu rétt
Mjög góður
vamarleikur
—ásamt f rábærri markvörzlu f leyttu
Aftureldingu upp í2. deild
Emil Karlsson, markvörður Aftur-
eldingar, var sínum mönnum svo sann-
arlega betri en enginn á laugardaginn,
þegar Afturelding tryggði sér 2.
deildarsætið i baráttunni við Stjörnuna
úr Garðabænum. Emil varði hreint eins
og berserkur allan leikinn og mark-
varzla hans lagði grunninn að góðum
sigri Aftureldingar, 16-13. í hálfleik
hafði Afturelding yfir 9-6.
Strax í upphafi var greinilegt að
mikil taugaspenna þjakaði leikmenn
beggja liða og voru leikmenn Stjörn-
unnar sýnu verri enda höfðu þeir öllu
að tapa. Fyrsta mark leiksins kom eftir
8 min., en þá kom Gústaf Baldvinsson
Aftureldingu yfir 1-0. Áður hafði Emil
varið víti Eyjólfs Bragasonar og gefið
þar með forsmekkinn af markvörzl-
unni.
Stjarnan jafnaði, en smám saman
náði Afturelding betri tökum á leiknum
og eftir 18 mín. hafði liðið náð þriggja
marka forskoti. Sá munur var í leiks-
lok.
í seinni hálfleiknum tókst Stjörnunni
tvívegis að minnka muninn í eitt mark
undir lokin en Afturelding gaf ekki
frekari höggstað á sér og sigurinn varð
örugglega þeirra.
Af leikmönnum Aftureldingar ber
fyrst og fremst að minnast á Emil
Karlsson, sem varði af stakri snilld all-
an timann. Þá átti Gústaf mjög góðan
fyrri hálfleik. Steinar og einkanlega
Lárus skoruðu mikilvæg mörk. Vörnin
var sterk í heildina.
Stjarnan hefur hrapað ótrúlega
undanfarna mánuði. Liðið var aðeins
svipur hjá sjón í þessum leik og bar lítið
á leikmönnum eins og Eyjólfi og
Magnúsi Teits. Árni Árnason var einna
beztur Stjörnumanna ásamt Magnúsi
Andréssyni en Ómar í markinu varði
þokkalega en fékk á sig herfileg mörk
oftátíðum.
Mörk Aftureldingar: Gústaf Bald-
vinsson 7/1, Lárus Haildórsson 3,
Steinar Tómasson 2, Ingvar Hreinsson
2, Björn Bjarnason 1 og Sigurjón
Eiríksson 1.
Mörk Stjörnunnar: Árni Árnason 4,
Magnús Andrésson 3, Eyjólfur Braga-
son 3/1, Hörður Hilmarsson 1/1,
Magnús Arnarson 1 og Eggert ísdal 1.
fyrir leikslok og þar fóru siðustu mögu-
leikar Dundee-liðsins á meistaratitlin-
um. Þar koma aðeins Rangers og Celtic
til greina. Celtic tapaði í fyrsta sinn \
sjö leikjum og spenna á Hampden var
gífurleg. Áhorfendur hátt í sjötíu þús-
und. í skozku blöðunum i gær var Jó-
hannes alls staðar með hæstu einkunn
leikmanna í leiknum — og það þrátt
fyrir meiðslin. Staðan er nú þannig:
DundeeUtd. 36 18 8 10 56-37 44
Rangers 32 16 9 7 46-29 41
Celtic 32 17 6 9 52-34 40
Aberdeen 34 12 14 8 57-33 38
Hibernian 35 II 13 11 42-47 35
St. Mirren 35 14 6 15 45-39 34
Partick 33 13 8 12 40-34 34
Morton 35 11 12 12 51-53 34
Hearts 34 8 7 19 39-69 23
Motherwell 35 5 7 23 33-86 17
Jóhannes Eðvaldsson -
ökkla á laugardag.
- meiddist illa á
Gamli landsliðsgarp-
urinn lokaði markinu
—þegar Ármann sigraði Ægi 9-2 í sundknattleik í gær
„Það voru sennilega mistök hjá mér
að leika ekki lika í marki i sundknatt-
leiknum i gamla daga,” sagði Guðjón
Ólafsson, landsliðsmarkvörðurinn
kunni hér á árum áður i handknatt-
leiknum, eftir stórsnjalla markvörzlu 1
Sundhöllinni i gær. Þá léku ÁrmftVfn og
Ægir síðasta leikinn á mljniingarmót-
inu um Þorstein ingólfsson og
Guðjón, sem kominn er á fimmtugs-
aldurinn, var aðalmaðurinn i leiknum.
Varði meðal annars þrjú vitaköst Ægis-
manna og lokaði marki sínu alveg lang-
tímum saman. Fékk aðeins á sig tvö
mörk en félagar hans í Ármanns-liðinu
skoruðu níu.
Ármann sigraði því 9—2 — og KR-
ingar urðu sigurvegarar. Þeir hlutu 5
stig. Ármann 4 og Ægir 3. Leikin var
tvöföld umferð.
Ármenningar voru í vandræðum
með markvörð í gær og „gamli maður-
inn” skellti sér þá bara í markið.
Honum var fagnað mjög eftir leikinn
enda ekki á hverjum degi, sem slík
Maraþonmet
Leikmenn Fram í 3. flokki félagsins
settu nýtt maraþonmet i handknatt-
leiknum, þegar þeir léku i 29 klukku-
stundir i Álftamýrarskóla. Þeir voru
sex i hvoru liði og skoruðu grimmt.
Fyrra maraþonmetið í handknattleikn-
um áttu leikmenn úr Stjörnunni. Það
var 27 klukkustundir.
skoruðu Guðjón Guðmundsson og
Þorsteinn Geirharðsson, viti.
Á föstudag sigraði KR Ármann 8—7
í mjög tvísýnum leik. Mörk KR
skoruðu Ólafur Gunnlaugsson 4,
JþtJrður Ingason 2, Þorgeir Þorgeirsson
1 ójf’Jóhatm. Guðmundsson 1. Mörk
.Ármanns: Pétur 2, Stefán 2, Ágúst 1,
jGunnar Ástvaldsson 1 og ~KriStinn
jlngólfsson 1.
Efstu liðin
sigruðu öli
- í 1. deild íV-Þýzkalandi
Sama spennan er alltaf á toppnum f
1. deildinni i Vestur-Þýzkalandi i knatt-
spyrnunni. Öll efstu liðin unnu á
laugardag. Stuttgart er því enn efst en
Hamborg hefur tapað fæstum stigum.
Hvert lið leikur 34 leiki.
Úrslit á laugardag urðu þessi:
Hamborg — Duisburg 3-0
Köln — Gladbach 1-1
Hertha — Bremen 0-2
Dortmund — Brunschweig 2-7
Niirnberg — Frankfurt 0-0
Darmstadt — Bayern 1-3
Stuttgart — Bochum 2-0
Dusseldorf — Schalke 3-1
Kaisersl. — Bielefeld 3-2
Staða efstu liða er nú þannig:
Scullnan 30 18 7 5 60-27 43
Hamborg 29 18 6 5 64-29 42
Kalsersl. 30 16 10 4 59-39 42
Bayern 29 14 7 8 62-37 35
Frankturt 30 13 7 10 42-42 33
Diisseldorr 29 12 8 9 60-49 32
Guðjón Ólafsson, gamli landsliðs-
markvörðurinn i handknattleiknum i
KR, lokaði markinu hjá Ármanni i
sundknattleiknum i gær.
markvarzla sést. Ægir fékk fimm víti í
leiknum. Skoraði aðeins úr einu —
Guðjón varði þrjú og i eitt sinn hafnaði
knötturinn i stöng. Mörk Ármanns
skoruðu Pétur Pétursson 4, Stefán
Ingólfsson 3, Ágúst Einarsson 1 og
Brynjólfur Björnsson 1. Mörk Ægis
Utveggja-
steinn - milKveggjaplötur
Margra áratuga reymla íframleiðalu útveggjaateim
hefur reymt trauatur grunnur fyrir framleiðúu á
milliveggjaplötum, hrotasteini og jleiri nýjungum.
Möguleikarnir í hleðalu eru ótal margir og ateinarnir
^ fáat í tveimur til fjórum þykktum.
Byggingavörudeild
0\
Jón Loftsson hf.
Hringbraut 121
Simi 10600