Dagblaðið - 07.05.1979, Síða 32
3 PROSENTA
W
ALLA LINUNA
„Felli BSRB samkomulagið, á það:
að fá 3% kauphækkun, og ég tel að
þá eigi ríkisstjórnin umsvifalaust að
gangast í, að ASÍ-félagar fái lika
3°7o,” sagði Ólafur Ragnar Grímsson
alþingismaður (AB) í viðtali við DB í
morgun.
„Þriggja prósenta kauphækkun á
—felli BSRB samkomulagið
að koma á alla línuna, ef BSRB fellir
samkomulagið, sem nú eru líkindi
til,” sagði Karl Steinar Guðnason
alþingismaður (A) í viðtali við DB i
morgun.
Þessir stjórnarliðar sögðu að ekki
kæmi til greina annað en láglauna-
fólkið fengi þessa kauphækkun. Þrjú
prósentin hjá BSRB hefðu verið við
það miðuð i samningunum 1977, að
vega upp kauphækkun sem ASÍ-fólk
yrði búið að fá 1. apríl 1979. Þá
kauphækkun hefði ASÍ fólk ekki
fengið. -HH.
Keflavík:
Tveirfhaldi
vegna fíkniefna
— f jölmargir yf irheyrðir
Stöðugar yfirheyrslur og rannsókn
hafa staðið yfir hjá rannsóknarlögregl-
unni í Keflavík yfir helgina vegna gruns
um verulega meðferð og sölu fikniefna.
Tveir ungir menn, á þritugsaldri, hafa
verið úrskurðaðir í gæzluvarðhald
vegna málsins. Annar í allt að tuttugu
og fjóra daga hinn í allt að tuttugu og
fimm daga.
Að sögn lögregluyfirvalda í Keflavík
er ekkert hægt að segja um mál þetta
þar sem það er á frumrannsóknarstigi.
Margir einstaklingar hafa verið yfir-
heyrðir vegna þessa máls og auk rann-
sóknarlögreglunnar í Keflavík unnu
lögreglumenn úr Reykjavik að málinu
um helgina auk manna úr almennri
lögreglu þar syðra.
-ÓG.
Samningar opinberra
starfsmanna:
3% hækkun
mun kosta
2,5 milljarða
Aukin útgjöld ríkissjóðs ef 3%
launahækkun kæmi til fram-
kvæmda að lokinni atkvæða-
greiðslu ríkisstarfsmanna yrði 1,5
til tveir milljarðar króna á ári.
Launakostnaður Borgarsjóðs
Reykjavikur og borgarstofnanna
mun við 3% hækkun verða upp
undir hálfur milljarður króna.
Reykjavíkurborg mun biða
með allar aðgerðir vegna úrslita
kosninga um niðurfellingu 3%
hækkunar gegn auknum
samningsrétti þar til atkvæði
ríkisstarfsmanna hafa verið talin.
-ÓG.
11 kosnirí
miðstjórn á
Landsfundi
Landsfundur Sjálfstæðis-
flokksins kaus ellefu menn í mið-
stjórn flokksins i lok hans í gær
— þremur fleiri en landsfundur
hefur áður kosið. Þessir hlutu
kosningu (atkvæðatölur í sviga):
Pétur Sigurðsson (694)
Birgir ísl. Gunnarsson (610)
Jónas Haralz (571)
Steinþór Gestsson (569)
Inga Jóna Þórðard. (563)
Davíð Sch. Thorsteinsson (516)
Björn Þórhallsson (468)
Salome Þorkelsdóttir (432)
Kjartan Gunnarsson (429)
Sigurlaug Bjarnadóttir (349)
Vigfús Jónsson á Laxamýri (284)
-ÓV.
Bátasýningin kvödd með rakettum
Bátasýningu Snarfara i Sýningahöllinni viö Bíldshöfða lauk í gærkvöldi með miklu „knalli” þegar skotið var upp neyðarflug-
eldum og fjöldi neyðarblysa tendraður.
Fyrirtækið Ellingsen var þar að kynna þessi öryggistæki til gagns fyrir sportbátaeigendur og gamans fyrir þá og aðra áhorf-
endur i kvöldhúminu. Snarfaramenn eru ánægðir með árangur þessarar fyrstu bátasýningar hérlendis, enda var rennt alveg
blint í sjóinn með viðbrögð almennings við henni. DB-mynd R.Th.
Nýir fréttastjórar DB
Ómar Valdimarsson, áður aðstoðar-
fréttastjóri Dagblaðsins, hefur verið
ráðinn fréttastjóri þess. Jafnframt
hefur Jónas Haraldsson blaðamaður
tekið við störfum aðstoðarfréttastjóra.
Jón Birgir Pétursson, sem verið
hefur fréttastjóri Dagblaðsins frá upp-
hafi, er hættur störfum og kann Dag-
blaðið honum beztu þakkir fyrir unnin
störf í þágu blaðsins á undanförnum
árum.
Ómar Valdimarsson er 29 ára, sonur
hjónanna Evu Andersen og Valdimars
Tómassonar. Hann hefur stundað
blaðamennsku í 10 ár, þar af við Dag-
blaðið frá stofnun þess. Ómar er
þriggja barna faðir. Sambýliskona
hans er Dagmar Agnarsdóttir.
Jónas Haraldsson er 26 ára, sonur
hjónanna Svanhildar Ólafsdóttur og
Haralds Jónassonar. Hann er félags-
fræðingur að mennt og hefur starfað
við Dagblaðið í tvö ár. Jónas er
kvæntur HaHdóru Teitsdóttur og eiga
þau tvö böm.
Dagblaðið býður Ómar og Jónas
velkomna til hinna nýju starfa.
Jónas Haraldsson og Ómar Valdimarsson.
DB-mynd Hörður.
TELPA A ÞRIDJA ARI
DRUKKNAÐI í HVÍTÁ
Það hörmulega slys varð við Hvítá
hjá Iðu á laugardagskvöldið að telpa
á þriðja ári drukknaði í ánni. Hafði
telpan gengið ein frá heimili sínu,
sem er í Laugaráshverfi sem stendur
svo til á árbakka Hvítár.
Það var um kl. 8 á laugardags-
kvöld sem lögreglu var tilkynnt um
hvarf litlu telpunnar. Hafði hún
horfið að heiman án þess aðeftir væri
tekið. Við leit að henni sáust spor í
saftidi við ána skammt austan við
brúna hjá Iðu. Eftir það var beðið
um aðstoð. Lögreglan á Selfossi og
björgunarsveitarmenn komu fljótt á
vettvang og leit var hafin. Um kl.
21.15 fannst lík litlu telpunnar í ánni
2—3 kílómetrum neðan við'brúna.
Litla telpan sem fórst var dóttir
Konráðs Sigurðssonar héraðslæknis
og konu hans Önnu Agnarsdóttur, en
þau hafa lengi búið að Laugarási.
-ASt.
Srjálst, óháð dagblað
MÁNUDAGUR 7. MAÍ1979.
Lúðvík Jósepsson,
form. Alþýðubanda-
tógsins:
„Frálertt
að lögbinda
grunnkaup”
„Mér finnast allar slíkar tillögur frá-
leitar,” sagði Lúðvík Jósepsson, for-
maður Alþýðubandalagsins, í viðtali
við DB í morgun um hugmyndir um, að
ríkisstjórnin gengist fyrir lögbindingu
grunnkaups til 1. desember.
„Hins vegar hefur mér aldrei
fundizt, að vísitölubætur ættu að
mæla alla leið upp úr,” sagði Lúðvík
og kvaðst fylgjandi þaki á verðbótum.
Lúðvík kvaðst ekki telja að flokkur
sinn gæti verið með í neinni lögbind-
ingu á grunnkaupi. Grundvöllurinn
hefði í upphafi stjórnarsamstarfs verið
settur við, að grunnkaup hækkaði ekki
fyrir 1. des. 1979. Samkomulag hefði
virzt við stærstu launþegasamtökin um
þetta. Nú virtist þetta ver að bresta.
- -HH.
Keflavík:
Piltur með-
vitundarlaus
eftir bflslys
Þegar komið var á beina kaflann á
Reykjanesbrautinni, milli steypu-
stöðvarinnar og Fitjanestis, missti öku-
maðurinn vald á bifreiðinni sem fór út
af veginum og valt nokkrar veltur.
Talið er að bifreiðin hafi verið á nokk-
uð miklum hraða er slysið varð.
Þannig urðu endalok ökuferðar
fimmtán ára pilts úr Keflavík, sem tek-
ið hafði bifreið föður síns í heimildar-
leysi og án vitundar hans aðfaranótt
laugardagsins. Pilturinn var fluttur á
sjúkrahús í Reykjavík meðvitundarlaus
og liggur nú á gjörgæzludeild Borgar-
spítalans. Hann var ekki kominn til
meðvitundar í morgun.
Tveir aðrir piltar voru í bifreiðinni er
slysið varð. Slapp annar án teljandi
meiðsla en hinn var fluttur á sjúkrahús-
ið i Keflavík en er ekki talinn alvarlega
slasaður.
Bifreiðin, sem var Toyota station.
nýleg, er talin gjörónýt. -ÓG
Stórtsvæðií
Heiðmörk logaði
Fimmtán sinnum var slökkviliðið
kvatt út um helgina vegna sinubruna og
íkveikju í drasli á ýmsum stöðum.
Sinubrunafaraldurinn er með eindæm-
um kostnaðarsamur fyrir slökkviliðið
og þá höfuðborgarbúa og er nú mál að
linni.
Mestur eldur varð á stóru svæði í
Heiðmörk á laugardagskvöldið. Var
eldur þar í sinu og trjágróðri sennilega
út frá vindlingi sem kastað er í gáleysi
— eða, eins og menn vilja síður trúa,
viljandi kveiktur. Tókst fljótt að
slökkva en tjón er talsvert á trjám.
- ASt.