Dagblaðið - 18.10.1979, Síða 6
6
DAGBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 18. OKTÓBER 1979.
Prófkjörin undirbúin: FLEIRII iA LLA íÐl R
—en útvaldir
Sjálfstæðismenn í Suðurlandskjördæmi:
Klýf ur Steinþór
Gestsson f lokkinn?
— getur hugsað sér sérframboð ef hann fær ekki 1. sætið
Fulltrúaráð Sjálfstæðisflokksins í
Árnessýslu hefur sett fram þá kröfu við
kjördæmisráð flokksins í Suðurlands-
kjördæmi að sameiginlegt prófkjör
verði haldið í öllu kjördæminu fyrir
næstu kosningar.
Til vara gerir ráðið þá kröfu að ef
ekki verði fallizt á það muni Árnes-
ingurinn Steinþór Gestsson skipa I.
sæti listans. Hann lenti í 3. sæti við
siðustu uppstillingu og féll af þingi þar
sem flokkurinn hefur 2 menn á þingi i
kjördæminu.
Þá hefur Steinþór látið hafa það eftir
sér að verði að hvorugri kröfunni
gengið geti hann hugsað sér að taka
ekki sæti á listanum heldur efna til sér-
framboðs og þar með kljúfa flokkinn.
í Suðurlandskjördæmi eru Árness-
Rangárvalla- og Vestur-Skaftafellssýsl-
ur og Vestmannaeyjar. Sér prófkjör
voru á hverjum stað í fyrra, nema i
Árnessýslu, og stillt upp að þeim lokn-
um með Steinþór í 3. sæti. Árnesingar
eru langfjölmennastir og una því ekki
lengur að þeirra maður sé hornreka á
listanum. Kjördæmisráð flokksins
kemur saman á laugardag og liggja
þessar kröfur m.a. fyrir þeim fundi.
-GS.
Framsókn á Reykjanesi:
„ÆTLAÐIEKKIAÐ
KEPPA AÐ ÞVÍ”
— segir Jón Sigurðsson ritstjóri Tímans um
framboðsmál sín
,,Við ákvörðun l'ramboðslista tram-
sóknarmanna í Reykjaneskjördæmi
verður í fyrstu lotu skoðanakönnun á
fundi kjördæmissambandsins þriðju-
daginn 23. október. Þar mæta einnig
varafulltrúar. Fulltrúarnir skrifa sínar
hugmyndir um, hverjir skuli skipa 3
efstu sæti framboðslistans. Þvi eru allir
i framboði,” sagði Jón Sigurðsson, rit-
stjóri Tínrans, í viðtali við DB í gær um
þá hugmynd að hann færi í framboð
fyrir Frammsóknarflokkinn á Reykja-
ncsi.
,,Ég ætlaði ekki 'að keppa eftir
þessu,” sagði Jón, ,,og taldi að nógu
margir frambærilegir menn væru til
staðar enda kæmi framboð sér illa fyrir
mig persónulega.”
Að lokinni skoðanakönnunninni
mun uppstillingarnefnd leita til þeirra
sem flest atkvæði fá. Endanlegt val
frambjóðenda fer fram á kjördæmis-
þingi sem haldið verður í Festi, Grinda-
vik, sunnudaginn 28. október.
-HH.
Sigurður Helgason ekki með framboð:
„BÍÐ ÚRSKURÐAR
HÆSTARÉTTAR”
,,Ég mun ekki gangast fyrir fram-
boði óháðs lista í þessum kosningum,”
sagði Sigurður Helgason lögfræðingur
í viðtali við DB í gær. Sigurður var í
síðustu þingkosningum efstur á lista
óháðra borgara i Reykjaneskjördæmi.
,,Þá kom í Ijós,” sagði Sigurður
Helgason, „að 7 slíkum framboðum
voru ætlaðar fimm mínútur í stjórn-
málakynningu í sjónvarpi, meðan
stjórnmálaflokkarnir höfðu margar
klukkustundir samtals. Slík framboð
sem okkar voru í fyrsta þætti sjón-
varpskynningar af fimm þáttum alls.
Þessum aðferðum hefur verið áfrýjað
til Hæstaréttar. Ég bíð úrskurðar hans.
Hæstiréttur Danmerkur hefur dæmt i
ekki ósvipuðu tilviki þar í landi og
fordæmt þessar aðferðir.
Auðvitað voru Óháðir borgarar
aðeins með lista i einu kjördæmi, svo
að við ætluðumst ekki til að fá jafn-
mikinn kynningartima og stjórnmála-
flokkarnir, en freklega var á okkur
brotið.”
-HH.
Davíð
Scheving
f próf-
kjorið a
Reykja-
nesi?
Davíð Scheving Thorsteinson hefur
ekki gefið svar við áskorunum um að
gefa kost á sér í prófkjöri sjálfstæðis-
manna í Reykjanesskjördæmi.
Samþykkt var í gær með 65 gegn 41
atkvæði á fundi kjördæinisráðs
að hafa prófkjör 27. og 28. október.
Auðir seðlar voru 5.
Tilkynningar um framboð í prófkjöri
þurfa að berast fyrir hádegi næstkom-
andi sunnud. Eins og DB hefur skýrt
frá verða þeir Matthías Mathiesen og
Ólafur G. Einarsson i framboði þarna.
Þá er vitað um Salóme Þorkelsdóttur,
Eirík Alexandersson, Ríkharð
Björgvinsson, Sigurgeir Sigurðsson og
Hannes H. Gissurarson.
Reynt hefur verið að fá Davið Sch.
Thorsteinson til að gefa kost á sér.
Hann hefur færzt undan en endanlegt
svar hefur hann ekki gefið.
-BS.
Soffía Guðmundsdóttir:
„Skorast ekki undan ef
félagarnir vilja þetta"
Gunnar Guðmundsson:
„Ég verst
allra frétta”
,,Ég ætla ekki að láta hafa neitt eftir
mér um það,” sagði Gunnar
Guðmundsson, kennari á Laugarlandi i
Rangárvallasýslu, þegar DB spurði
hvort óháðir kjósendur í Suðurlands-
kjördæmi ætluðu að bjóða fram.
Gunnar var í efsta sæti lista óháðra
kjósenda í síðustu þingkosningum.
Fjölda atkvæða vantaði til að skila
manni af listanum inn í sali Alþingis.
Gunnar Guðmundsson vildi ekkert
um það segja hvort umræður væru i
gangi um framboðsmál i hópi óháðra
kjósenda: ,,Ég verst allra frétta.”
Af svarinu má þó ráða að allt eins
geti verið von á óháðu framboði á ný í
kjördæminu.
-ARH.
Bjami Guðnason:
„Þú færð
ekkert upp
úr mér”
,,Mér þykir þú aðgangsharður! Ja,
ég skal segja þér að þú færð ekkert upp
úr mér,” varð Bjarna Guðnasyni
prófessor að orði þegar DB spurði
hvort hann væri i framboðshugleiðing-
um.
Bjarni skipaði efsta sæti á lista
Alþýðuflokksins í Austurlandskjör-
dæmi í síðustu kosningum og vantaði
tiltölulega fá atkæði í viðbót til að ná
kosningu sem uppbótarþingmaður.
„Það ganga margir með þingmann í
maganum eins og steinbarn. Hvort ég
gangi með? Ég segi ekkert, ég er
vondur maður eins og þú veizt!"
Prófessornum varðekki haggað.
-ARH
„Hugsa meira
um úrslitin”
— segir Guðmundur J.
,,Ég hef meiri áhuga á framgangi
Alþýðubandalagsins í kosningunum en
þvi hvort ég verð sjálfur i framboði,”
sagði Guðmundur J. Guðmundsson,
formaður Verkamannasambands
íslands.
Guðmundur J. var i 5. sæti á lista
flokksins í Reykjavík í siðustu
kosningum og sat þing um tíma i fyrra-
vetur í forföllum þingmanna.
„Það er ekkert farið að tala um
framboðsmál hjá Alþýðubandalaginu
svo ég viti. Ég í framboðshug-
leiðingum? Nei, það held ég ekki. Ég
hugsa meira um úrslitin í kosningun-
um."
Og hvernig leggjast úrslitin í þig?
„Alþýðubandalagið hefur mögu-
leika. Samt er óskaplega hætt við að
vonbrigði yfir falli vinstri stjórnarinnar
geti orðið Sjálfstæðisflokknum til
framdráttar.” -ARH.
„Framboð er bara eitt af þeim verk-
um sem þarf að vinna fyrir hreyfinguna
og ég skorast ekki undan ef félagar
minir fara þess á leit við mig,” sagði
Soffía Guðmundsdóttir, tónlistar-
kennari á Akureyri, er hún var innt
eftir því hvort hún hygðist gefa kost á
sér í sæti á framboðslista AB.
Soffía var i 2. sæti á lista Alþýðu-
bandalagsins í Norðurlandi eystra i
síðustu kosningum og hefur tekið sæti
á þingi í forföllum.
Fullvíst er talið að Stefán Jónsson
gefi kost á sér á ný í 1. sæti listans.
Framboðsmál flokksins í kjör-
dæminu skýrast alveg næstu daga. í
kvöld heldur AB á Akureyri félagsfund
og ræðir m.a. tillögur um forvalsreglur
til framboðs. Forvals- og framboðsmál
verða og til umræðu á kjördæmisþingi
AB í Norðurlandi eystra sem haldið er
um næstu helgi.
Soffía vildi ekkert um það segja
hvort ofan á yrði að hafa einhvers
konar forval um skipan framboðslist-
ans. Slíkt forval yrði þó a.m.k. ekki
hliðstætt þeim prófkjörum sent hinir
flokkarnir hafa tekið upp. „Við sjáum
ýmsa vankanta á prófkjörum,” sagði
Soffía.
-ARH.