Dagblaðið - 18.10.1979, Síða 9
DAGBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 18. OKTÓBER 1979.
9
San Francisco:
Sleppa1000svfnum
erprinsessan kemur
—reiðir Irar að hefna sín vegna orða Margrétar Bretaprinsessu í Chicago
írskættaðir Bandaríkjamenn í San
Francisco hyggjast sleppa eitt þúsund
svínum lausum við komu Margrétar
Bretaprinsessu til borgarinnar næst-
komandi sunnudag. Er þetta haft
eftir talsmanni hóps fólksins. írarnir
ætla með þessu að hefna fyrir orð
prinsessunnar sem hún er talin hafa
sagt í veizlu borgarstjórnarinnar í
Chicago á dögunum.
„irar eru svín,” á Margrét að hafa
sagt við Byrne borgarstjóra en síðan
„og þú ert írsk.” Sagt er að borgar-
. stjórinn sem er kona hafi horfið úr
veizlunni fljótlega.
Mál þetta hefur vakið mjög mikla
athygli en orð prinsessunnar eiga að
hafa sprottið upp úr samtali um
morðið á Mountbatten lávarði á
Norður-írlandi fyrir skömmu. Mar-
grét prinsessa var náskyld lávarðin-
um.
írarnir i San Francisco hafa undir-
búið ætlunarverk sitt mjög vel og
hafa haldið fundi um málið og haft
samband við eigendur svína til að
tryggja nægan fjölda þeirra við mót-
mælaaðgerðirnar.
Gerð hefur verið tilraun til að mót-
mæla þvi að Margrét prinsessa hafi
nokkru sinni látið þau orð falla um
íra að þeir væru svin. Hefur einkarit-
ari hennar neitað þvi en í blaðinu
Chicago Sun-Times er haft eftir full-
trúa frú Jany Byrne borgarstjóra, að
orðin hafi verið höfð rétt eftir prins-
essunni. Margrét er á ferð um Banda-
ríkin til að safna peningum til styrkt-
ar Konunglegu óperunni i London.
Austur-Þýzkaland:
SAMI
GAMLI
SVIP-
URINN
Austur-Þjóðverjar héldu nýlega upp
á þrjátíu ára afmæli rfkis síns og að
venju hervelda var ekið með alvopn-
aða hermenn fram og aftur við sýn-
ingar. Þykir þetta afspyrnugaman í
útlandinu og tilheyrir við alls kyns
tækifæri.
Ástralíusveitinni á heimsmeistara-
mótinu í bridge tókst ekki að sigra
ítölsku sveitina með nægilegum mun til
að tryggja sér sæti í úrslitakeppninni
gegn Bandaríkjamönnum. Sveitirnar
mættust í gær og lauk leikjunum með
sigri Ástralíu, 12 stigum gegn átta. Það
var þó ekki nægilegt því stigin hefðu
orðið að skiptast 19 gegn einu áströlsku
sveitinni í vil ef þeir hefðu átt að fá
tækifæri til að etja kappi við banda-
rísku sveitina.
Sérfræðingar eru sammála um að
leikur Ítalíu og Ástralíu hafi verið bezta
spilamennskan á þessari heims-
meistarakeppni. Margir ráku þó upp
stór augu — eða eyru — þegar nokkrir
italskir áhorfendur klöppuðu og
hrópuðu af fögnuði þegar lokaúrslitin
voru tilkynnt. Sannir bridgeunnendur
telja nefnilega að á bridge eigi að horfa
í þögn og með virðulegri ró.
Bandaríska sveitin tapaði fyrir
Taiwan i síðustu umferðinni með 4
stigum gegn 16, en það nægði þeim til
annars sætis og í úrslitin gegn ítölsku
sveitinni.
HM íbridge:
ÍTALÍA KEMST
í ÚRSUTIN
Ródesía/Zimbabwe:
Jarðnæðisdeit-
ur aðeins eftír
Muzorewa forsætisráðherra Leiðtogar framvarðarrikjanna
hefur þegar fallizt á tillögur Breta en fimm í Afríku, sem helzt hafa stutt
Nkomo og Mugabe skæruliða- við bakið á skæruliðum í
foringjar krefjast endurbóta á á- Zimbabwe/Ródesíu, lýstu yfir bjart-
kvæðum um jarðnæði. Lrmdbúnaður sýni um aðsamningar náist á fundum
er höfuðatvinnuvegur í Zimbabwe/ deiluaðila í London. Er talið að leið-
Ródesíu og því er mikilvægt fyrir togarnir fimm, sem eru undir forustu
komandi valdhafa að eigenda- og Juliusar Nyerere forseta Tanzaniu,
umráðaskipti á jarðnæðinu fari vel hafi fullvissað Carrington utanríkis-
og skipulega fram. ráðherra Breta um að samkomulag
Bretar hafa lagt fram hugmyndir mundi nást eftir að lausn hafi fundizt
sínar um að þeir sendi fulltrúa sinn til á deilu um hvernig fara eigi með
landsins og hafi hann yfirumsjón ]arðnæði sem verið hefur í höndum
með komandi kosningum ásamt fá- hvítra landeigenda.
mennu aðstoðarliði.
SystirTeresa
hlaut
friðarverðlaun
Nóbels
Jimmy Carter Bandaríkjaforseti
var einn hinna fyrstu til að senda
móður Teresu heillaóskir vegna
ákvörðunar um að hún fái friðar-
verðlaun Nóbels í ár. Carter var sjálfur
einn þeirra sem líklegir þóttu til út-
nefningar. Ákvörðun norska Stór-
þingsins um að veita hinni albansk-
fæddu nunnu — móður Teresu —
friðarverðlaunin fyrir störf hennar
meðal snauðra í Indlandi hefur vakið
almenna ánægju. Móðir Teresa hefur
starfað þar frá því um 1950 og nú eru
rekin þúsundir heimila og skóla á
hennar vegum víðs vegar um Indland.
Erlendar
fréttir
1979
Innkaupastjórar - verzlunarmenn
Hún grætur alveg
eins og eðlilegt barn:
Faðmaðu hana og
hún hættir að gráta,
hristu hana varlega
svo að hún fari að
Hcstaii
| Kiddicralt
INGVAR HELGASON
VONARLANDI v/SOGAVEG
Sími: 33560