Dagblaðið - 06.04.1981, Blaðsíða 3

Dagblaðið - 06.04.1981, Blaðsíða 3
DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 6. APRÍL 1981. 3 Hinir reyndu starfsmenn, sem margir höfðu unnið í áratugi hjá félaginu, voru reyndar leystir út með ríflegum greiðslum af hinu fjárvana flugfélagi gegn því skilyrði að þeir hyrfu á braut samdægurs, eins og vitnazt hefur. En eitthvað hefur fulltrúa skipa- félgsins skeikað í prósentureikningi sínum því enn virðist sem óróinn sé við lýði innan fyrirtækisins. Enn logar allt í deilum við stjórn og for- ystulið félagsins.Blaðaskrif um samn- ingsrof og mistúlkanir forystumanna flugfélagsins eru nú aftur hafin. Þar vega menn hver annan ,,í bróðerni”. En hver skyldi vera orsök óróans í raun? Ætli stór orsök hans sé bara ekki setu fulltrúa Eimskipafélags ís- lands í Flugleiðum að kenna? Eða hvers vegna skyldi Eimskipa- félag íslands, sem nú berst í bökkum með óheyrilegt rekstrartap á herðun- um eins og fram mun koma á aðal- Bréfritari varpar fram þeirri spurningu hvort Eimskipafélagið stjórni flugmál- um. Myndin er af aðalfundi Eimskipafélags íslands 1976. íuuui pess, halda í stjórnarstöla, og þá tvo, í flugfélagi? Ætli því félagi væri ekki nær huga að samkeppni við hið upprenn- andi skipafélag, Hafskip! Og nú er víst aðalfundur Flugleiða á næstu grösum. Varla verður því trúað að enn eigi að ganga til kosn- inga á þeim fundi um stjórnarstól fyrir fulltrúa skipafélagsins! Ef einhver glóra væri í stjórn Eim- skipafélagsins drægju þeir fulltrúar sína til baka úr stjórnarkjöri, a.m.k. þann er nú á að kjósa — og seldu auk þess hlutabréf sín í Flugleiðum til þess að minnka hallann á rekstri Eim- skipafélagsins. Það er lágmarkskrafa að á meðan Eimskipafélagið á hlutafé svo nemur mörgum hundruðum milljóna gam- alla króna í Flugleiðum láti það niður falla atkvæðisrétt sinn í kosn- ingum. Það myndi hvergi líðast nema hér að skipafélag stjórnaði svo miklu i eina flugfélagi þjóðarinnar. Það má segja að Eimskipafélag íslands eigi stóran þátt í því hvernig komið er flugmálum landsmanna í dag þvi hagsmunir þessa félags hafa iðulega ráðið úrslitum í framtíðaráformum Flugleiða. En kannske verður svo engin stjórnarkosning á aðalfundi Flug- leiða hf. eins og raunar Morgunblað- ið skýrir frá hinn S. marz sl.! Stjómar Eimskipafé- lagið flugmálunum? Áhorfandi skrifar: Annar fulltrúi Eimskipafélags ís- lands í stjórn Flugleiða hf. upplýsti á síðasta hluthafafundi flugfélagsins, eins og kunnugt er, að enn væru um 2% starfsmannanna ekki samstíga, væru með einhvern óróa. Þessar upplýsingar fulltrúa skipa- félagsins komu ekki heim og saman við fyrri upplýsingar forstjóra um að eftir að hinir reyndu starfsmenn, sem höfðu raunverulega byggt upp starf- semi Flugleiða, höfðu yfirgefið félagið væri komin fullkomin ró á starfslið félagsins — og valinn maður í hverju rúmi eins og hann orðaði það. DBS TOURING er fyrsta reiðhjólið á markaðinum, sem sameinar alla helstu kosti kappreiðahjóla og öryggisútbúnað sígildra reiðhjóla. Svo sem; - Skálahemla að framan og aftan - 10 gíra - breiðari hjól- barða en á venjulegum kappreiðahjólum - aurbretti úr ryðfríu stáli - bæði karla og kvenna reiðhjól fyrirliggjandi. DBS TOURING eru lang vinsælustu reiðhjólin á norðurlöndunum um þessar mundir. ER Datsun Pickup árg. 1977, ekiun 44 þús. km. Verð Itr. 46 þús. Framdrifsbfll GMC (35) Rally Wagon 1977. Rauðbrúnn. 8 cyl. (350) m/öilu. 11—12 manna. Eftir- sóttur fjallabill. Verð kr. 110 þús., skipti möguleg. Daihatsu Charade Runabout 1980. Silfurgrár, eldun 9 þús. km. Verð kr. 64 þús. (Eingöngu skipti á ameriskum bfl á svipuðu verði). Mazda 626 2000 Coupé 1979., drapplitur, sjálfskiptur. Failegur bill. Verð kr. 82 þús. Audi 80 LS 1977, rauðbrúnn, ekinn 60 þús. km. Gullfallegur bill. Verð kr. 65 þús. BMW 518 árg. 1977, vinrauður. Ekinn 60 þús. km. útvarp., snjód + sumard. Verð kr. 85 þús. Mazda 323 statlon 1980., hvitur, sem nýr. Ekinn 11 þús. km. Verð 75 þús. Honda Accord EX 1980, silfurgrár, 3ja dyra, sjálfskiptur, aflstýri, o.fl. (m/öllu). Ekinn 17 þús. km. Verð kr. 102 þús. Lada Sport 1979, rauður, ekinn 39 þús. Sflsalistar o.fl. Verð kr. 65 þús. ■ * m Spurning dagsins Ætlar þú að fá þór páskaegg? Guðmundur Guðmundsson banka- maður: Já, ég fæ mér páskaegg með börnunum. Auðbjörg Atladóttir: Já, vonandi gefa pabbi og mamma mér stórt páskaegg. Jóhanna Leifsdóttir: Já, pabbi og mamma ætla að gefa mér páskaegg. Kristinn M. Pálmason nemi: Já, ætli ég fái mér ekki páskaegg. Árni Elfar hljóðfæraleikari: Já, ég fæ mér páskaegg með börnunum. Daniel Stefánsson sjómaður: Ég býst ekki við þvi. Ætli ég verði ekki úti á sjó.

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.