Dagblaðið - 06.04.1981, Blaðsíða 10
in
DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 6. APRÍL 1981.
IMICROMA
'---Rwfif;--
LITMYNDALISTAR
Hringdu og pantaðu
glæsilega Microma lit-
myndalistann, þér að
kostnaðarlausu.
Póstkröfuþjónusta.
Alþjóóa ábyrgó.
Örugg þjónusta fag-
manna.
FRANCH MICHUSEN
URSMIOAMEISTARI
LAUGAVEGI 39 SIM113462
0U4RTZ H-M-S-0 v»
fíl ’n’i ri o C U.U J J'J i Vi
111 ai»' ' / . V ' J
rnirnr— ■ /3
OPIÐ Á LAUGARDÖGUM
Söluskrá okkar veröur í
Dagblaöinu á laugardaginn.
KJÖREIGN SF.
ÁRMÚLA 21 - SÍMAR 85988 - 85009
DAN V.S. WIIUM LÖGFRÆÐINGUR
Veiðileyfi í Vatnsdalsá
á 1. og 3. svæði eru til sölu hjá okkur. Afgreiðsla
veiðileyfa og upplýsingar aðeins milli kl. 9 og 12 f.h.
virka daga.
Veiðileyfi eru ekki tekin frá eða geymd.
Ástund, Austurverí
Háaleitisbraut 68 — Sími 84240
Rakarastofan Klapparstíg
Sími 12725
Hárgreiöslustofa Klapparstíg
Tímapantanir
13010
Kreditkorthafar
velkomnir
SLlM(OTO^D®©TfQ){Ð)[]Rí]
Laugalæk 2, Reykjavík,
Sími 86511
NYTT - NYTT - NYTT - NYTT - NÝTT - N
tvö
W,
TÖLVU-
FERMINGARUR
Kaupin eru bezt þar sem
þjónustan ermest
Verð 860 kr. 100% vatnsþétt, högg-
varið, tveir vekjarar, gefur tón á
heila timanum, skeiðklukka 1/100,
millitimi og minni, hægt að velja
um 12 eða 24 stundir. Úrin sýna
stundir, min., sek., mán., vikud.,
mánaðardag. — Hægt að nota öll
kcrfin í einu.
Verð 1420 kr. Vatnsvarið, högg-
varið, vekjari, niðurtalning, tvö-
faldur timi, skeiðklukka 1/100,
millitími + minni, rafmagnsvísar,
hægt að velja um 12 eða 24 stundir.
— Hægt að nota öll kerfin i einu.
UR OG SKARTGRIPIR
JÓNOGÓSKAR
Laugavegi 70 — Sími24910 — Póstsendum
G
Erl enT
Erlent
Erlent
Kínverjar beina
athýgfin* a*
orku sjávarfaBa
Sterkir straumar sjávarfalla í
Jiangxía-voginum inn úr Júeqing-
flóa í Zhejiang-fylki, sem liggur að
Austur-Kínahafi, eru ekki aðeins
gagnlegir fiskimönnunum á staðnum
þessa dagana vegna mikillar fisk-
gengdar. Þeim er það að þakka að
ljósin munu skína skært í húsum
þorpanna á kvöldin og nóg orka
verður handa íbúunum í sveitinni og
litlu úrvinnsluverksmiðjunni. í stuttu
máli sagt eru þeir orsök þess að nóg
orka verður til handa 500 kw tví-
stefnu sjávarfallaorkustöð, hinni
fyrstu í Kína, sem straumi var hleypt
á í maí 1980.
Jíangxia-stöðin hefur einn hverfil
sem starfar 15 stundir á sólarhring á
flóði og fjöru og leggúr til straum til
lítillar spennistöðvar við þorpin 20
km í burtu, um 35 kw. amp. Gert er
ráð fyrir að annar hverfill komist i
gagnið 1981. Fullgerð mun stöðin
hafa sex 500 kw hverfla og framleiða
alls 107.400 milljón kwh af rafmagni
árlega. Hún verður minni en 10.000
kw sjávarfallastöðin í La Rance í
Frakklandi en stærri en 800 kw
stöðin í Kislogubsk í Ráðstjórnarríkj-
unum.
Ásamt jarðvarma, sólar- og vind-
orku og jarðgasi er sjávarfallaorkan
ein þeirra orkulinda sem Kínverjar
eru að byrja að hagnýta í sambandi
við áætlun sína um framfarir. Verk-
fræðingar áætla að Kína hafi sjávar-
fallaorku nýtanlega sem nemur 110
milljónum kw eða einn tíunda slíkrar
orku í heiminum í hinum rúmlega 500
fjörðum og flóum meðfram sjö
strandfylkjum, Zhejíang, Fújían,
Sjandong, Gæuangdong, Jíangsú,
Hebei og Líaóning. Hægt verður að
nýta að minnsta kosti 35 milljónir kw
þessarar orku í fyrirsjáanlegri fram-
tið.
Þó að sjávarfallaorkan sé ódýr og
Kínverjar beina nú alhyglinni að valnsorkunni eins og fleiri þjóðir.
gangi ekki til þurrðar þarfnast hún
helmingi meiri stofnkostnaðar en
jarðvarmastöð og kann það að vera
ein ástæðan til þess hve mikill seina-
gangur hefur verið á hagnýtingu
sjávarfallaorku eftir smíði fyrstu
----'IMil'
Litil orkustöð 1 Yunnan héraði.
sjávarfallastöðvar heimsins í La
Rance 1968. En nú þegar olíuverð fer
hækkandi og skortur er á öðru jarð-
efnaeldsneyti virðist athyglin beinast
aftur að sjávarfallastöðvum hvar-
vetna um heim.
Allmargar sjávarfallastöðvar eru
sagðar í undirbúningi við Fundy-flóa
i Kanada og St. Malo í Frakklandi.
Aðrar eru í hönnun í Bretlandi,
Bandaríkjunum, Ástraliu, Arg-
entínu, Indlandi, Japan og Brasilíu.
Kínverjar tóku að gefa gaum að
nýtingu sjávarfallaorku árið 1956 og
var lokið við að reisa einstefnu 40 kw
sjávarfallastöð 1959 í Sjavsjan,
aðeins 100 metra frá Jiangxía-tví-
stefnustöðinni. Nú er verið að
stækka hana svo hún geti framleitt
200 kw. Önnur einstefnu sjávarfalla-
stöð með 165 kw framleiðslugetu var
byggð við Jingang-vog i Sjandong-
fylki árið 1970. Hún hefur þrjá 55 kw
hverfla sem allir eru smíðaðir í raf-
vélaverksmiðju í heimasýslunni.
Þessi litla stöð er rekin sameiginlega
af níu þorpum í sveitakommúnu og
framleiðir ódýra orku handa búunum
og til Ijósa á heimilum bændanna.
Um það bil 280 dælustöðvar er
ganga fyrir sjávarfallaorku hafa
verið byggðar meðfram strönd
Gúangdong-sýslu eftir 1958.
Fyrsta tvístefnu sjávarfallastöð i
Kína, Jíangxía, gegnir nú mikilvægu
hlutverki tilraunastöðvar í sambandi
við byggingu fleiri og stærri sjávar-
fallastöðva í Kína. Hún er í grunnum
vogi með 686 metra breiðu my,nni og
eru lág fjöll á þrjá vegu. Stíflugarður
úr mold og grjóti, 670 metra langur
og 15,5 metra hár, liggur yfir þveran
veginn og innan við hann er 2,75
milljón fermetra lón. Fiskur og skel-
fiskur er ræktaður i lóninu og kemísk
sjávarefni, svo sem alkalíáburður,
eru unnin úr því ásamt nokkru af úr-
ani.
„Ríkið hefur fjárfest alls 6,29
milljónir júan (4,1 milljön dollara) í
stöðinni,” sagði Sja Xílín, yfirverk-
fræðingur stöðvarinnar. Hann sagði
að hverfillinn, sem erí lauklaga húsi,
hefði S-laga spaða á öxli sem er 2,5
metrar i þvermál. Hverfillinn vegur
86,7 lestir og snýst 123 snúninga um
öxul sinn á mínútu.
Flóðhæð í Jíangxía-voginum er
mest 8,39 metrar tvisvar á dag með
fimm til sjö klukkustunda millibili.
Með þvi að nota orku flóðs og
fjöru getur stöðin starfað árið um
kring og er ekki háð árstíðabundinni
rennslisóreglu eins og venjulegar
vatnsaflsstöðvar.