Dagblaðið - 06.04.1981, Blaðsíða 8
DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 6. APRÍL 1981.
I
D
Erlent
Erlent
Erlent
Erlent
Sovézk yfirvöld
reyna á sálræn-
an hátt að brjóta
Kortsnoj niöur
— sonur Kortsnojs er stöðugt
ífangabúðum
í meira en þrjú ár hefur fjölskylda
hins þekkta skákmeistara Viktors
Kortsnojs stórmeistara, þ.e. kona hans
Bella og sonur hans, Igor, reynt að ná
fram lagalegum rétti sínum til þess að
flytjast búferlum frá Sovétríkjunum og
setjast að í Vestur-Evrópu hjá eigin-
manni og föður. Til þess að hefna sín á
Kortsnoj fyrir þá ákvörðun hans að
verða eftir á Vesturlöndum reyna
sovézk yfirvöld að brjóta hann niður á
sálrænan hátt í keppninni um heims-
meistaratitilinn með því að neita Bellu
og Igor á ólöglegan hátt um leyfi til
þess að flytjast úr landi. Þar að auki
var Igor handtekinn í árslok 1979,
dæmdur í gerviréttarhöldum yfirvalda
til tveggja og hálfs árs fangavistar
vegna fjarveru frá herþjónustu.
lgor Kortsnoj, sonur hins heims-
þekkta skákmeistara, Viktors
Kortsnoj, er hafður í haldi í vinnubúð-
um í hinu fjarlæga Kurgansk-héraði,
Hver er tilgangurinn með slíkum
ráðstöfunum sovézkra yfirvalda? Hver
erástæðan fyrir handtökunni?
Faðir Igors, Viktor Kortsnoj, leitaði
hælis sem pólitískur flóttamaður í
Hollandi sumarið 1976, eftir að hafa
sigrað á alþjóðlegu skákmóti þar. Þar
með hafði hann snúizt gegn hinu
sovézka valdi og fremstu skák-
meisturum þess — og það fyrir opnum
tjöldum.
Ríkisstjórnin gat ekki fellt sig við
slíkt þó að hún hefði ekki lengur
möguleika á að ná til Viktors
Kortsnojs.
Fjölskylda hans, sem býr í
Leningrad, var og er ákjósanlegur skot-
spónn sovézku ríkisstjórnarinnar.
Því var fjölskylda Kortsnojs og þá
einkum sonur hans Igor, handhægt
vopn í stríðinu gegn Kortsnoj. Öll
gerum við okkur grein fyrir þeirri
sálrænu byrði sem hverjum er búin ef
hann veit að fjölskyldu hans er gert
erfitt fyrir og einnig hver áhrif slík
byrði getur haft á árangur manna í
starfi.
Allt hafði þetta byrjað með þvi að
fjölskyldu Kortsnojs var úthúðað í
blöðum. Fjölskylduvinum, sem enn
reyndu að halda hinu gamla sambandi,
var hótað. Því ákváðu Bella, eiginkona
Kortsnojs og sonur þeirra, Igor, að
flytja úr landi. Tilraun þeirra til að fá
að flytjast búferlum til ættingja í ísrael
mistókst. Síðan rak hver atburðurinn
annan sem allir juku raunir Kortsnojs
og fjölskyldu hans.
Igor sem þá var ekki fullveðja,
stundaði um þær mundir nám við Fjöl-
listastofnunina. Honum var því ráðlagt
að hætta námi því að slíkt myndi hafa
jákvæð áhrif á umsókn hans um brott-
fararleyfi. Að sjálfsögðu var honum
ekki veitt fararleyfi, en hins vegar settu
yfirvöld þau skilyrði að ef hann vildi
hefja nám að nýju, yrði hann að hætta
við.það áform að flytja til föður stns.
Aðgengilegt skilyrði það!
Nú hafði Igor misst þjóðfélagsstöðu
sina sem námsmaður, sem leyst hafði
hann undan herskyldu! Því var hægt að
kalla hann hvenær sem var til her-
þjónustu. Hann var því fljótlega
kallaður til herskráningar!
Igor var ljóst, að herþjónusta hans
gæti gefið yfirvöldum tilefni til að
hindra brottför hans og móður hans úr
landi um áratuga skeið. Fyrir hendi var
nefnilega sá lagalegri rökstuðningur, að i
herþjónustu hefði hann aðgang að
ríkis- og stríðsleyndarmálum, og þar
með væri honum ekki heimilt að flytj-
ast úr landi. Igor sá sér ekki aðra færa
leið en flótta. Hann kom því ekki til
skoðunar fyrir herþjónustu og hvarf að
heiman. Bjó hann síðan á ýmsum
stöðum í eitt og hálft ár. KGB, sovézka
leyniþjónustan, komst að vísu á spor
Igors, en lét hann samt í friði þar sem
fyrsta áskorendaeinvígið um heims-
meistaratitilinn var ákveðið, en það var
keppni Kortsnojs og sovézka stórmeist-
arans Petrosjans. Þá fyrst var hin
undirbúna aðför framkvæmd.
Þann 13. nóvember 1979 var Igor
handtekinn í íbúð vina sinna í
Moskvu. KGB flutii hann i fangelsi i
Leningrad sem heitir Kreuze. Að rúm-
um mánuði liðnum, þann 19. desember
1979, fóru fram réttarhöld. Ákæran
hljópaði upp á „fjarvist frá tilkynntri
herkvaðningu.”
Réttarhöldin sjálf voru hreinn
skrípaleikur. Sérhver röksemd
verjandans var kæfð í fæðingu. Frá
upphafi var Ijóst, að dómurinn hafði
þegar verið ákveðinn: 2 1/2 ár í endur-
hæfingarvinnubúðum.
Dómi þessum var síðan áfrýjað.
Ennþá einu sinni beið sovézka
valdið. Nákvæmlega á þeirri stundu er
návígi Kortsnojs og Petrosjans byrjaði,
hófst málsmeðferð áfrýjunarinnar.
Niðurstaða undirréttar var að sjálf-
sögðu staðfest.
Menn ættu að gera sér ljósa þá
raun sem faðirinn varð að þola á
þessum tímum — og sem tæki í
baráttunni gegn honum var syninum
beitt.
Og það sem verra var; þegar
Kortsnoj hafði náð forskoti á
Petrosjan, barst honum. sú frétt frá
Leningrad, að Igor hefði ekki verið
sendur í endurhæfingar-vinnubúðir á
Leningradsvæðinu, heldur til hins fjar-
læga Kurgansk-héraðs, en það þýðir
langa og harða dvöl við erftð veðurskil-
yrði. Þessu geta fylgt erfið ferðalög yfir
hálft landið fyrir hina sjúku móður
Igors, ef hún fær þá að heimsækja
hann.
í áskorunareinvígum á siðasta áii
um réttinn til að skora á heimsmeist-
arann sigraði Viktor Kortsnoj þá
Petrosjan Polugaevski og Húbner.
Því bíða sonai hans og eiginkonu
frekari ómannúð.
(Samið eftir skýrslu frá E. Gabowitch,
sem var sjálfur viðstaddur réttarhöldin
yfir Igor Kortsnoj.)
Með sigri sínum yfir V-Þjóðverjanum Húbner í vetur tryggði Kortsnoj sér rétt
öðru sinni til að skora á heimsmeistarann Karpov.
Aðdragandinn að tilræðinu við Reagan forseta. Einhver kallar á forsetann og haun snýr sér við til að veifa. En sá sem
hrópaði reyndist vera tilræðismaðurinn með byssu á lofti. Skotin ríða af og örvæntingarfullir öryggisverðir reyna að
koma forsetanum inn i bilinn.
Aðeins átta mínútum eftir að atvikið hafði átt sér stað gat ABC-sjónvarpsstöðin sýnt myndir frá tilræðinu og þar
með sló hún keppinautum sinum við, sem þó voru mjög snarir í snúningum og sýndu myndir af tilræðinu um hálftima
eftir að Hinckley hleypti skotunum af.
Röntgenmyndir sýna ör
í vinstra lunga Reagans
— f orsetinn er ennþá með hita
Reagan forseti er enn með hitaslæð-
ing sem ýmist hækkar eða lækkar og
læknar sem annast forsetann segja að
röntgenmyndir sýni nú ör í vinstra
lunga hans. Lækna.nir segja að örin
kunni að stafa af þvi að bakteríusmit-
un hafi átt sér stað.
Örin geta líka verið storknað blóð og
skaddaðir vefir frá sárinu, sem for-
setinn hlaut í skotárásinni við Hilton
hótelið i Washington fyrir einni viku.
,,Við teljum ekki að þetta sé óeðli-
legt,” sagði dr. Dennis O’Leary, tals-
maður sjúkrahúss George Washington-
háskólans þar sem forsetinn liggur.
í skýrslu frá Hvíta húsinu i gær sagði
að smátíma gæti tekið að ráða niður-
lögum smitsins í lunga forsetans og
fylgdust læknar mjög gaumgæfilega
með líðan hans.
Læknarnir ákváðu að taka aðra
röntgenmynd af brjósti forsetans eftir
að hiti hans ýmist lækkaði eða hækk-
aði á laugardag. Á föstudagskvöld var
forsetinn m eð 38,9 gráðu hita en hitinn
reyndist eðlilegur í gærmorgun.
Þrátt fyrir að forsetinn væri með
nokkurn hita hélt hann áfram að taka á
móti gestum. Meðal þeirra sem heim-
sóttu hann var George Bush varaforseti
sem greindi honum frá spennunni í Pól-
landi og bardögum í Líbanon.
Meðal annarra sem heimsóttu
Reagan var Vernon Jordan, þekktur
leiðtogi svertingja og mannréttindabar-
áttumaður. Jordan varð sjálfur fyrir
skotárás á síðasta ári og þá heimsótti
Reagan hann á sjúkrahúsið. „Það er
helvíti sárt að verða fyrir skoti,” sagði
Reagan og Jordan féllst á það.
Dayan vill
bandarískt
herlið
Moshe Dayan, fyrrum varnarmála-
ráðherra ísraels, sagði í sjónvarpsvið-
tali í gær að Bandaríkjamenn yrðu að
hafa herlið í Miðausturlöndum til að
sporna gegn ógnun Sovétrikjanna og
tryggja öryggi í þessum heimshluta.