Dagblaðið

Ulloq

Dagblaðið - 06.04.1981, Qupperneq 14

Dagblaðið - 06.04.1981, Qupperneq 14
14 DAGBLAÐIÐ. MANUDAGUR 6. APRÍL 1981. Kafli um nasisma á Islandi í nýút- kominni bók um fasisma í Evrópu fleira , FOLK — Partur af BA ritgerð Ásgeirs Guðmundssonar sagnfræðings Nasismi á íslandi er kapítuli í sögu landsins sem síður en svo er fallinn í gleymsku og dá. Ásgeir Guðmunds- son sagnfræðingur ritaði fyrir nokkr- um árum BA ritgerð um þetta efni. Ur henni vann hann grein sem birtist í tímariti Sögufélagsins árið 1976. Útdráttur úr henni birtist síðan í bók- inni Eho Were the Facists, Social Roots of European Facism, sem kom út fyrir nokkru. Það eru Norðmenn sem standa að útgáfu bókarinnar. — Það er Universitetsforlaget sem gefur hana út. „Tildrögin að þessari bók eru þau að árið 1974 efndi háskólinn í Bergen til ráðstefnu um fasisma i Evrópu,” sagði Ásgeir Guðmundsson í samtali við blaðamann Dagblaðsins. „Þarna voru flutt mörg erindi þar sem borinn Bókin Who Were the Facists, sem kom út i Noregi fyrir nokkru. var saman nasisminn í ýmsum löndum og útbreiðsla hans og fleira. rætt. Síðar datt mönnum í hug að gefa þessi erindi út í bókarformi. Fleiri greinum var bætt í púkkið og þar á meðal útdrættinum úr greininni minni í Sögu.” Bókin Who Were the Facists er mikil að vöxtum, tæplega átta hundruð blaðsíður að stærð. Henni er skipt í sjö kafla. Sá sjötti nefnist Fasismi og national sósíalismi á Norðurlöndunum. Grein Ásgeirs er hluti af honum. „Þessi útdráttur eftir mig er aðeins lítill hluti allrar ritgerðarinnar,” sagði Ásgeir. „f bókinni er hann aðeins átta blaðsíður að lengd. Greinin í tímariti Sögufélagsins var um sextíu blaðsiður.” Ásgeir Guðmundsson vinnur hjá Hafnarfjarðarbæ við að rita sögu kaupstaðarins. Hann lýkur handriti hennar á þessu ári. — En hvað kom honum til að rita um nasismann á íslandi í upphafi? „Þegar að því kom að ég þyrfti að velja mér efni í BA ritgerð á sínum tíma datt mér þetta efni strax í hug. Ég hef lengi haft mikinn áhuga á nasismanum og þar sem enginn hafði tekið þetta efni til umfjöllunar áður þótti mér það tilvalið,” svaraði hann. Ekki vildi hann þvertaka fyrir að hann hefði aðeins gluggað í þennan hlut stjórnmálasögunnar síðan hann lauk ritgerðinni. Hann kvað ekki loku fyrir það skotið að þær athuganir yrðu einhvern tíma gefnar út. Hins vegar væri allt óráðið um það nú. -ÁT- Ásgeir Guðmundsson sagnfræðingur: Enginn hafOi áOur tekiO nasismann tH sagn fræOilegrar athugunar svo aO honum þóttí tiivaiiO aO rita um hann BA ritgerO. DB-mynd: Einar Ólason. Gríntæknir Þórhallur Sigurðsson, Laddi, hefur það að atvinnu að vera grínisti. í símaskránni er hann titlaður sjón- varpsstarfsmaður (sem hann er reyndar ennþá, — sem Binni banka- stjóri). Hann hefur hins vegar hug á að breytá um titil áður en skráin verður gefin út næst og kalla sig gijíntækni. Veðursögur úr Vikunni Þetta gerðist á óveðursdaginn mikla. Stráksi vildi ekki borða kartöflumar sínar og mamma hans sagði: „Ef þú borðar ekki kartöfl- urnar þínar verður guð reiður við þig-” En stráksi vildi samt ekki borða kartölurnar sínar. Veðrið skall á. Þegar það stóð sem hæst var komið að strák inn í eldhúsi þar sem hann hámaðii sig kaldarkartöflur og sagði: „Naumast að það er gert veður út af nokkrum kartöflum.” Eiríkur Fjalar skemmtir á dansleikjum hjá Start „Komiði sæl. Ég heiti Eiríkur Fjalar. Þetta er í fyrsta skipti sem ég kem hingað. — Ég er nefnilega alltaf í Óðali, sko.” Þannig kynnti piltur- inn Eiríkur Fjalar sig er hann brá sér á Hótel Borg á fimmtudaginn. ÁSGEIR TÓMASSON Eiríkur var fremur seinn inn. Klukkan var langt gengin eitt þegar fyrst sást til hans og gestir hússins voru orðnir langeygir eftir hetjunni. Eiríkur borgaði sig inn eins og aðrir gestir og gekk um húsið þangað til einhverjir komu auga á hann. Þá var hann dreginn upp á svið og eindregið hvattur til að taka lagið. Hann var tregur til en að lokum fékkst hann til að syngja lagið Skammastu þín svo við undirleik hljómsveitarinnar Start. Til stóð að Stjáni rotta, sem syngur lagið Stórpönkarinn, kæmi einnig fram. Hann gleymdi hins vegar fötunum sínum heima svo að Laddi varð að taka lagið í staðinn. Start var með hljómleika á Borg- inni á fimmtudagskvöldið. Eiríkur Fjalar og Stjáni rotta voru sérlegir gestir kvöldsins. Til stendur að þeir komi fram á dansleikjum hjá Start á næstunni. -ÁT- Breiðholtsleikhúsið seturupp barnaleikrit — Höfundur vill ekki láta nafns síns getið Breiðholtsleikhúsið starfar af krafti þó að sýningar standi ekki yfir þessa stundina. Verið er að æfa nýtt barnaleikrit sem enn hefur ekki hlotið nafn. Nægur tími ætti að verða til að gefa því heiti því að frumsýning verður ekki fyrr en á annan páskadag. „í þessu leikriti koma fram tveir leikarar, Þröstur Guðbjartsson og Þórunn Pálsdóttir,” sagði Jakob S. Jónsson sem leikstýrir verkinu. „Þau tvö leika krakka sem síðan bregða sér 1 ýmiss konar gervi, ein fimmtán talsins. Þetta er snoturt og skemmtilegt leikrit sem gerist nú á tímum. Efnið ætti að höfða til barna á grunn- skólaaldri en ég er ekki viss um að krakkar undir fimm eða sex ára aldri hefðu gaman af því.” Jakob kvað það leyndarmál hver hefði samið leikritið — það væri í samningnum við höfund að halda nafni hans leyndu. „Það eina sem ég get og má segja er að höfundur- inn hefur áður skrifað fyrir börn,” sagði Jakob. Þetta nýja barnaleikrit er annað verkefni Breiðholtsleikhússins. Það var stofnað fyrr í vetur. Fyrsta leik- ritið sem það tók til sýninga var Plútus eftir Áristofanes. Jakob S. Jónsson var að lokum spurður að því hvernig því verki hafi verið tekið. „Plútus gekk að mörgu leyti vel,” svaraði hann. Gagnrýnin sem við fengum var góð. Hins vegar var ekki hægt að segja það sama um aðsóknina. Við höfum verið að geta okkur til um hvað hafi valdið því og smám saman verið að fá staðfestingu á getgátum okkar. Veðrið spilaði þarna inn í. Sömu- leiðis er erfitt að setja upp leikrit og búast við aðsókn á sama tíma og velflestir launþegar fara á að minnsta kosti eitt þorrablót og eina árshátíð. Frumraunin okkar er því ekki alveg marktæk þegar maður veltir því fyrir sér hvort Breiðholts- leikhúsið eigi réttásér.” -ÁT- Mæðgur tvær sváfu vært í öllum hamaganginum en eftir að hafa hlust- að á fréttir og litið á verksummerki út um gluggann segir mamman við dótt- urina: „Þetta er Ijótt að sjá. Plöturn- ar hafaallar fokið.” „Ha, hvað, John Lennon plöt- urnar líka? sagði dóttirin angistar- full. Of ung til aö vera í eigin brúökaupsveizlu Ung brúðhjón hugðust nú nýlega bjóða nánustu ættingjum sír.um til hátíðakvöldverðar á Hótel Sögu að hjónavígslunni lokinni. Þau pöntuðu borð fyrir brúðhjón og tuttugu gesti þeirra. Þegar til átti að taka komust brúðhjónin ekki inn í hótelið vegna þess að þau voru ekki nema 18 og 19 ára og voru þannig ekki komin á þann aldur sem þarf til þess að komast inn á veitingahús á íslandi. — Gestirnir komust hins vegar allir inn, — og brúðhjónin hafa sennilega farið snemma í bólið! í vitlausum vagni Þessi gerðist í Hafnarfjarðar- strætó. Hann leit hræðilega út og þorstann mátti lesa úr svip hans eins og opna bók. Skyndilega þreif hann viskípelann úr brjóstvasanum og tók sér vænan teyg. Fullorðin kona, sem sat við hlið hans, leit á hann nístandi augnaráði og sagði: — Þú veizt það kannski ekki, ungi maður, en þú ert á leið til helvítis. Hafnfirðingurinn rauk úr sæti sinu og hrópaði angistarfullur til vagnstjórans. — Stanzaðu, stanzaðu. Ég hef farið upp í vitlausan vagn! Úr bamaleikrití BreiOhottsieikhússins sem enn hefur ekki hlotíð nafn. Ljósm. Gunnar Elísson.

x

Dagblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.