Dagblaðið - 06.04.1981, Side 19
18
DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 6. APRÍL 1981.
DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 6. APRÍL 1981.
19
Iþróttir
Iþróttir
Iþróttir
Iþróttir
Iþróttir
Iþróttir
Iþróttir
Guðrún Fema Ágústsdóttir, Ægi, — 12 ára og setti tvö
íslandsmet.
Óvænt tap Feyenoord
Keyenoord tapaði óvænt á heimavelli fyrir PSV
Eindhoven, 0—1, en heldur engu að síður 2. sætinu í 1.
deildinni — 10 stigum að baki ÁZ '67 Alkmaar. Úrslitin í
Hollandi urðu þessi:
Deventer-Roda
NEC Nijmegen-AZ ’67
Maastricht-Groningen
PEC Zwolle-Sparta
Utrecht-Wageningen
Willcm II-NAC Breda
Twente-Excelsior
Ajax-Den Haag
Staða efstu liða:
AZ 67
Feyenoord
Utrecht
PSV Eindh.
Ajax
24 22 2
25 15 6
25 14 6
25 13 6
24 14 3
5—1
0—0
3—2
3—1
5—0
2-2
0—1
2-0
0 76—19 46
4 52—26 36
5 51—26 34
6 44—22 32
7 65—45 31
Skagasigur
í„Krikanum”
Tveir leikir voru háðir i Litlu bikarkeppninni um
helgina. í Hafnarfirði sigraði Akranes Hauka 2—1 með
mörkum þeirra Ástvaldar Jóhannessonar og Guðbjörns
Tryggvasonarog i Keflavik skildu heimamenn og Breiðablik
jafnir, 1—I.
Metaregn á meist-
aramótinu í sundi
— Níu ísíandsmet voru sett eða jöfnuð í sundhöllinni um helgina
„Þetta var hreint frábært mót.
islandsmetin féllu með jöfnu millibili
og það er greinilega gifurleg framför í
sundinu hjá okkur. Guðrún Fema
Ágústsdóttir, Ægi, sem aðeins er 12 ára
er hiklaust mesta efni, sem fram hefur
komið hér á landi í kvennasundunum.
Þrátt fyrir ungan aldur er hún strax
farin að setja íslandsmet. Akurnesing-
arnir Ingólfur Gissurarson og Ingi Þór
Jónsson settu mörg íslandsmet en met-
jöfnun Ingólfs i 200 m bringusundinu
var þó athyglisverðasti árangurinn. Þar
jafnaði hann íslandsmet Guðjóns
Guðmundssonar, Akranesi, 2:27.9
mín. Fyrir það afrek var Guðjón
kjörinn fþróttamaður íslands 1972 af
blaðamönnum,” sagði Jóhanna
Jóhannesdóttir, ritari á Sundmeistara-
mótinu, en það var háð f Sundhöll
Reykjavíkur um helgina. Á mótinu
voru niu íslandsmet sett eða jöfnuð.
Auk þess tvö drengjamet, tvö stúlkna-
met og tvö telpnamet.
Mótið hófst á föstudagskvöld.
íslandsmeistarar í einstökum greinum
urðu: 800 m skriðsund kvenna. Katrin
Sveinsdóttir, Ægi, 9:49.9 mín. 1500 m
skriðsund karla. Þorsteinn Gunnars-
son, Ægi, 17:14.6 mín.
Laugardagur: 400 m fjórsund
kvenna. Guðrún Fema Ágústsdóttir,
Ægi, 5:39.5 mín. 400 m skriðsund
karla. Ingi Þór Jónsson, ÍA, 1:14.5
mín. 100 m skriðsund kvenna. Katrín
Sveinsdóttir, Æ, 1:03.3 mín., sem er
stúlknamet. 100 m bringusund karla.
Ingólfur Gissurarson, ÍA, 1:08.3 mín.
íslandsmet Eldra metiðl :08.9 mín. átti
Guðmundur Ölalsson sett 1975.
Millitími var tekinn eftir 50 m. Þar
jafnaði Ingólfur fslandsmetið 31.6 sek.
200 m bringusund kvenna. Guðrún
Fema 2:49.2 mín. en íslandsmet Sonju
Hreiðarsdóttur er þar 2:46.2 mín.
Sonja er nú hætt keppni. 200 m flug-
sund karla. Ingi Þór Jónsson, ÍA,
2:17.1 mín. 100 m flugsund kvenna.
Anna Gunnarsdóttir-, Æ, 1:09.6 mín.
200 m baksund karla. Hugi S. Harðar-
son, Selfossi, 2:21.9 mín. Eðvarð Þ.
Eðvarðsson, Njarðvík, varð annar á
2:24.3 mín., sem er drengjamet. í
4x 100 m fjórsundi karla sigraði sveit
ÍA og setti íslandsmet 4:19.5 mín. Ingi
Þór synti fyrsta sprett, 100 m baksund,
og setti ístandsmet 1:03.Omín. 4:100 m
fjórsund kvenna. íslandsmeistari sveit
Ægisá 4:55.0 mín.
Keppnin á sunnudagsmorgun hófst
á heldur furðulegan og óvæntan hátt.
Það var í undanrásum 100 m baksunds
karla. Ingi þór, sem sett hafði met í
greininni deginum áður, sprengdi sig og
komst ekki í úrslit. Millitími var tekinn
á honum eftir 50 m og þar stórbætti
Ingi Þór íslandsmetið. Synti á 29.1
sek., en eldra metið var 30.3 sek. Þetta
var hins vegar of mikill byrjunarhraði,
jafnvel fyrir garp eins og Inga Þór.
Hann var alveg búinn á síðustu laugar-
lengdinni og einn af öðrum fóru aðrir
keppendur fram úr honum.
í 400 m fjórsundi setti Ingólfur
Gissurarson glæsilegt íslandsmet. Synti
á 4:43.2 mín. og bætti íslandsmet sitt
frá í marz í fyrra mjög. Það var 4:50.8
mín. í 400 m skriðsundi kvenna varð
Katrín Sveinsdóttir íslandsmeistari í
þriðja sinn á mótinu, synti á 4:46.0
mín. Ingi Þór setti íslansmet í 100 m
skriðsundi, synti á 53.6 sek. og bætti
eldrametsitt um sekúndubrot.
í 100 m bringusundi kvenna setti hin
12 ára Guðrún Fema íslandsmet. Synti
á 1:17.5 mín. en eldra metið átti Sonja
Hreiðarsdóttir, 1:18.2 min. Millitími
var tekinn á Guðrúnu Femu eftir 50 m.
Þar setti hún einnig íslandsmet — 36.4
sek. Sonja átti eldra metið 37.3 sek. í
200 m bringusundi jafnaði Ingólfur
íslandsmetið eins og áður er skýrt frá.
Synti á 2:27.9 mín. í 200 m flugsundi
kvenna varð Anna Gunnarsdóttir,
Ægi, íslandsmeistari á 2:35.1 mín.
Ingi Þór varð íslandsmeistari í 100 m
flugsundi á 1:00.1 mín. og setti íslands-
met í 50 m í því sundi. Millitími hans
þar var 27.8 sek. Eldra metið 28.0 sek.
átti hann sjálfur. Ragnheiður Runólfs-
dóttir, í A, varð íslandsmeistari i 200 m
baksundi kvenna á 2:41.8 mín. en á
laugardag varð hún einnig meistari í
100 m baksundi á 1:14.7 mín.
Greinilegt að hún á ekki langt í íslands-
metin í baksundi. í 100 m baksundi
karla varð Hugi S. Harðarson,
Selfossi, íslandsmeistari á 1:06.0 min.
Sveit Ægis varð íslandsmeistari í 4:100
m skriðsundi kvenna á 4:20.4 mín. og
sveit Selfoss íslandsmeistari í 4:200 m
skriðsundi karla á 8:24.9 mín.
-hsím.
A-Þjóðverjar „á hælunum”
gegn Möltu TValletta
— unnu 2-1, og gátu talizt heppnir að missa ekki stig
A-Þjóðverjar lentu í ótrúlegu basli
með Möltu í leik þjóðanna í 7. riðli
undankeppni HM í knattspyrnu í
Valletta á laugardag. Þjóðverjunum
tókst reyndar að merja sigur, 2—1, en
hann var í hæsta máta ósanngjarn þar
sem Möltubúarnir sóttu linnulítið allan
síðari hálfleikinn.
A-Þjóðverjar hófu leikinn af mikl-
um krafti og strax á 2. mín. skoruðu
þeir mark, sem reyndar var dæmt af
vegna rangstöðu. Á 11. mín. tóku
Halldór í úrslitum
—á júdómóti í Hollandi á laugardag
Halldór Guðbjörnsson, JR, varð
sigurvegari í sínum riðli á ílþjóðlegu
júdómóti í Hollandi á laugardag. Það
var í 71 kg flokki og Haildór komst þvf
í úrslitin i flokknum. Keppt var í
nokkrum riðlum.
Ungverji nokkur sem hafði orðið í
öðru sæti t þeim riðli sem Halldór
keppti í, varð svo sigurvegari í úrslita-
keppninni. í úrslitunum tapaði Halldór
hins vegar. fyrir keppanda frá Sovét-
ríkjunum. i keppninni um þriðja sætið
í flokknum keppti Halldór við kepp-
anda frá Vestur-Þýzkalandi og tapaði
einnig í þeirri viðureign. Keppendut í
flokknum voru margir og þvi fjórða
sætið hjá Halldóri ágætur árangur.
Möltubúar hins vegar forystuna, við
ærandi fögnuð hinna 10.000 áhorf-
enda, er Fabri sendi knöttinn í netið af
markteig.
A-Þjóðverjarnir tóku aðeins við sér
við þetta áfall og á 20. mín. jöfnuðu
þeir metin er Schnuphase skoraði úr
vítaspyrnu. Sigurmark leiksins kom
síðan á 43. mín. Vörn Möltu hikaði þá
örlítið og það nægði Höffner til að
skora.
Frammistaða Möltu í þessum leik
kom verulega á óvart og sóknarþungi
liðsins í s.h. var oft slíkur að jaðraði
við taugaveiklun í vörn
austantjaldsliðsins. Þeim tókst þó að
sleppa við að fá á sig fleiri mörk.
Enn hefur ekki verið tekin ákvörðun
um hvað gera skuli í sambandi við leik
Möltu og Póllands, sem aflýsa varð í
Vailetta í desember ér dómari leiksins
var fyrir aðkasti frá áhorfendum.
Pólverjar leiddu þá 2—0.
Jóhanna Jóhannesdóttir afhendir Inga Þór, íslandsmeistara og mcthafa, verðlaun
á sundmeistaramótinu. Hugi Harðarson, Selfossi, er til hægri. DB-mynd S.
Landsliðsmaður ÍKR
— Fer Stefán Halldórsson, Val,
yfirfKRísumar
Greinilegt er að það verða talsverðar
breytingar hjá liðunum í handknatt-
leiknum þegar leiktímabilið hefst næsta
haust. í gær fréttum við á skotspónum
að miklar líkur væru á því að Stefán
Halldórsson, landsliðsmaður úr Val,
gangi í sumar i raðir KR-inga og leiki
með KR næsta vetur. Ekki tókst okkur
að ná í Stefán til að fá staðfestingu
hans á fréttinni. -hsim.
Jón Páll bætti Evrópu-
met Arthurs um tíu kg!
- og Syerrir Hjaltason stórbætti
íslandsmet Óskars
Sigurpálssonar í 100 kgflokki
„Þetta er stórgóður árangur hjá
þeim Jóni Páli Sigmarssyni og Sverri
Hjaltasyni, báðir KR, og við gerum
okkur vonir um, að þeir verði báðir
verðlaunahafar á Evrópumeislaramót-
inu í kraftlyftingum, sem háö verður
á Parma á Ítalíu i júni. Jón Páll, sem
aðeins er 21 árs, ætti að hafa góða
möguleika á að verða þar Evrópu-
meistari í sínum flokki,” sagði Birgir
Borgþórsson, þegar DB ræddi við hann
f gær. Á laugardag seti Jón Páll nýtt
Evrópumet í réttstöðulyftu í 125 kg
flokki og Sverrir Hjaltason bætti
íslandsmet Óskars Sigurpálssonar um
20 kg í réttstöðulyftu i 100 kg flokki.
Þeir unnu þessi afrek á innanfélas-
móti hjá KR í Jakabóli á laugardag.
Jón Páll tók litlar þyngdir í bekkpressu
og hnébeygjulyftu á mótinu, þar sem
hann ætlaði að einbeita sér að Evrópu-
meti Arthúrs Bogasonar, Akureyri, í
réttstöðulyftunni.
Evrópumet Arthúrs var 340 kg og
Jón Páll Sigmarsson byrjaði á 342.5
kg. Tók þá þyngd léttilega. Lét síðan
þyngja 350 kg eða 10 kg meir en
Evrópumetið. Jón Páll tók það og
hafði þar með bætt Evrópumetið um
heil tíu kíló. Þessi 21 árs piltur er í mik-
illi framför, frábær í réttstöðulyftunni,
og einnig mjög góður í hinum greinun-
um tveimur.
Sverrir Hjaltason er 24 ára og keppti
í 100 kg flokki. íslandsmetið í rétt-
stöðulyftu í þeim flokki var 300 kg sem
garpurinn Óskar Sigurpálsson átti.
Sverrir byrjaði á 310 kg eða 10 kg yfir
meti Óskars. Hann tók þá þyngd án
mikilla átaka og lét þá þyngja i 320 kg.
Einnig þeirri þyngd lyfti hann. Bætti
því met Óskars um 20 kg sem er frábær
árangur. -hsím.
íþróttir
ALLT GAL0PIÐ A
T0PPNUM Á SPÁNI
Geysileg spenna er nú hlaupin i
toppbaráttuna í 1. deildinni á Spáni í
kjölfar óvænts ósigurs Atletico Madrid
á heimavelli fyrir Real Zaragoza, 1—2.
Það má því segja að Zaragoza komi
mikið við sögu f þessu kapphlaupi um
titilinn þó svo sjálft lið borgarinnar sé
ekki i toppbaráttunni. Fyrir skömmu
fannst miðherji Barcelona, Quini, í
Zaragoza eftir þriggja vikna leit.
Real Sociedad skauzt á toppinn um
helgina með 3—0 sigri yfir Sevilla en
það tið varð á sárgrætilegan hátt af
meistaratitlinum í fyrra. Tapaði ekki
nema einum leik allt keppnistímabilið
— í næstsiðustu umferð — og það
reyndist dýrkeypt. Úrslitin á Spáni
urðu annars þessi:
Salamanca-Real Madrid 1 —3
Barcelona-Real Valladolid 2—1
Hercules-Almeria 1—0
Real Betis-Atletico Bilbao 2—0
Las Palmas-Murcia 1—2
Osasuna-Espanol 1—0
Valencia-Sporting Gijon 3—1
Staða efstu liða er nú þannig þegar 3
umferðirerueftir:
Real Sociedad 31 17 6 8 46—26 40
Atl. Mádrid 31 16 8 7 45—36 40
Real Madrid 31 17 5 9 59—36 39
Valencia 31 16 7 8 55—37 39
Barcelona 31 17 4 10 60—37 38
Jón Páll Sigmarsson,
Evrópumet f réttstöðulyftu.
KR,
Sverrir Hjaltason, KR,
íslandsmetið um 20 kg.
— bætti
ÞAÐ HEFUR ÖRUGGLEGA EKKI FAFtlÐ FRAMHJÁ NEINUM SEM ÆTLAR AÐ FERÐAST í SUMAR AÐ ÚRVAL BÝÐUR AÐEINS ÞAÐ BEZTA