Dagblaðið - 06.04.1981, Side 33

Dagblaðið - 06.04.1981, Side 33
33 DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 6. APRÍL 1981. Benedicte Bergmann, sænsk, fædd 1931, lýsir gleði sinni yfir þvi kraftaverki að hafa eignazt dóttur, dóttur sem fyrst er iitil og ósjálfbjarga en vex upp og iíkist helzt stjörnu á himni. Saara Tikka, fædd i Finnlandi 1942, málar í nokkrum ævintýrastil. Á haustföl- um ökrum dansa skógarbirnir við mannfólkið og fuglar svifa i lofti léttum vængjum. Borghildur Óskarsdóttir og Björg Þorsteinsdóttir. Blaðaskrif á Norðurlönd- um hafa verið mikil bæði um kosti og galla sýningarinnar. Gallar sýningarinnar hafa einkum þótt að hún væri sundurleit þar sem svo margar og ólíkar listakonur taka þátt í henni, og fylgja engri sérstakri stefnu. En einnig hefur verið sagt, að þetta sé ein merkasta sýning ársins, kveiki nýjar hugmynd- ir og muni leiða af sér margt gott. Það er skemmtilegt að hlut- ur íslenzkra kvenna kemur mörgum á óvart og þær hljóta mjög lofsamleg ummæli. „Aðstæður fyrir íslenzkar myndlistarkonur hafa gjör- breytzt á mjög stuttum tíma, jafnvel aðeins þrem fjórum árum,” sagði Edda Jónsdótt- ir, en myndir hennar af tveim samanreyrðum koddum sem allt að einu gætu verið í faðm- lögum eða slagsmálum birtust með ítarlegum dómi um sýninguna í danska blaðinu Information. ,,Það er ekki svo langt síðan að okkar beztu myndlistarkonur þurftu flestar að setjast að erlendis en nú eru konur í meirihluta í stjórn FÍM og bera uppi tvö öflug myndlistarfélög önnur, Grafíkfélagið og Textilfélag- ið.” Það verður spennandi að sjá hvernig undirtektir þessi stóra kvennasýning fær. Hún verður opin til 26. apríl. -IHH. Sýning Þjóðleikhússins á óperunni La Bohéme eftir Giacomo Puccini, við texta G. Giacosa og L. Illica. Hljómsveitarstjóri: Jean-Pierre Jacquillat. Leikmynd: Steinþór Sigurösson. Lýsing: Ingvar Bjömsson. AflstoóarleikstjóH: ÞurWur Pálsdóttir. Leikstjóri: Sveinn Einarsson. Hlutverkaskrá: Rudolfo: Garflar Cortes; Mimi: ólöf Kotbrún Harflardóttir, Marcello: Halldór Vilhelmsson; Musetta: Ingveldur Hjaltested; Schaunard: John Speight; Colline: Eiflur Gunnarsson; Alcindoro: Guflmundur Jónsson; Benoit; Kristinn Hallsson. Þjóflleikhúskórinn; Slnfónkihljómsveit Islands. Korrepetition: Tom Gligoroff, Carl Billich og Agnes Löve. Safngripir þar og hér Þrjátíu ár eru ekki langur tími f sögu þjóðar, en óperusaga tslands er ekki lengri. í stuttu máli má segja að óperusaga hafi átt sér fagra bernsku, gelgjuskeið, með öllum þess umbrotum og leiðindum, en síðan virðist ætla að rætast úr þegar fram á manndómsárin kemur. Það gerist víst heldur hvergi nema á íslandi, að söngvarar, sem sungu við upphaf óperualdar, skuli í nútímanum tilheyra harðasta kjarna óperuliðsins. Með flestum öðrum þjóðum væru slíkir menn í besta falli ljósmyndir á safni nema hvað verið gæti að tóbakspontur og lonníettur fylgdu með inni í litlum glerskáp við hliðina. En úr því að minnst er á safngripi, þá væri það ekki svo fráleitt ef Þjóðleikhúsið yrði sér úti um einhverja minjagripi frá bernsku óperunnar á ísiandi, til að mynda tónsprota fyrstu stjómendanna, Victors Urbancic og Róberts Abrahams Ottóssonar. Rétt si svona til að koma sér upp örlitlu óperu- safni. Og með einungis þrjátíu ára hefð að baki er hún á fjölunum, La Bohéme. Ekki verður annað sagt en að fjölbreytni gæti í óperuvali Þjóð- leikhússins, með Orfeif og Evridís i fyrra og svo stokkið yfir á La Bohémeíár. Einhvers staðar heffli blóm- vöndur f logifl Sýningin á La Bohéme er gegnum- sneitt firna góð. Hjáipast þar allt að, söngvaralið, hljómsveit, kór, umbúnaðarlið og stjórnendur. Þá skal fyrsta telja einsöngvarana. — Stjarna sýningarinnar er Ólöf Kolbrún Harðardóttir i hlutverki Mimi. Hún glansar í gegnum hlut- verkið frá upphafi til enda. Hún er hin sanna óperudiva og einhvers staðar, einhvem tíma hefði blóm- vöndur flogið ef svölum, eða úr stúku, niður á svið til söngkonu, sem slíka frammistöðu sýndi. En slíkt gerist víst aðeins í ævintýrunum í óperuhúsunum suður í heitu löndunum. íslenskur her Ingveldur Hjaltested var einnig frábær í hlutverki Musette. Prakkaraskapurinn sauð í henni svo að ég sá ekki betur en að hún hossaði sér í örmum herramannanna þegar þeir báru hana á gullstóli á eftir her- hljómsveitinni, sem var svo íslensk að hún gat ekki gengið í takt. En hún sýndi líka á sér alvarlegri hliðar í rifrildinu við Marcello og eins í loka- atriðinu. Kúnstnerarnir fjórir, bóhemarnir, voru í öruggum höndum þeirra Garðars, Halldórs, Johns og Eiðs. Garðar söng aríur sínar eins og ,,Che gelida manina” með glæsibrag og í dúettunum með Mimi var hann prýðilegur. — Halldór fór létt með hlutverk Marcellos, lipur á sviðinu og traustur i samsöng. — John Speight kom glaðlynda Schaunard vel til skila og leikur hans var líflegur. — Eiður fór vel með Colline. Hann nýtur þess að sjálfsögðu umfram vinnufélaga sína að hafa óperusviðið fyrir aðal vinnustað og áberandi var hversu minna hann virtist þurfa fyrir hlut- verki sínu að hafa en þeir. Gaman væri að heyra oftar í þessum ágæta bassa hérheima. Gófl ending Jónsson og Kristinn Hallsson héldu upp á óperuafmæli með sama talna- gildi og óperusaga þjóðarinnar. Báðir endast þeir býsna vel og gæti ég trúað að þá munaði lítið um að syngja Colline og Schaunard ef á þyrfti að halda, þótt þeir, eins og sannir heiðursmenn, hafi nú vikið fyrir yngri mönnum, sem betur passa í hlutverkin. Kórinn kom vel út i sýningunni, óþvingaður og eðlilegur í hreyfingum og staðsetningum. Hann hefur vaxið mjög í seinni tið og er laus við þann kauðahátt, sem gjarnan einkenndi hann áður. Úr hatti töframannsins Hljómsveitina hef ég aldrei heyrt betri niðri í kramarhúsgryfjunni sinni. Ég hélt sannast sagna að svo þykkur strengjahljómur gæti ekki borist upp úr hljómsveitargreninu og jafnvægi með blásurum var upp á það besta. Monsier Jacquillat hlýtur því að teljast töframaður. Hann hélt sýningunni liprum höndum svo að hún rann snurðulaust áfram með eðlilegri hrynjandi. Leikstjórn var vel unnin og tók mið af, og sneiddi hjá vanköntum hússins. Þannig voru einsöngvarar jafnan staðsettir fremst á senu þar sem þeir nutu sín best. Makalaust góð leikmynd hjálpaði þar líka sannarlega til. Nú má vera, að þegar boðið er upp á vel heppnaða óperusýningu hérlendis, fái maður glýju í augun og ofmetnist fyrir hönd aðstandenda sýningarinnar. Ég held samt, að borið saman við þær óperusýningar, sem ég hef séð erlendis megum við vel við una. Okkar Mimi og Musetta eiga vissulega heima i óperuhúsum fyrir ofan alþjóðlegt meðallag og af sýningunni í heild gæti hvaða miðlungsópera sem er verið drjúg- montin. Þeir kumpánar Guðmundur Tónlist r f EYJÓLFUR MELSTED V i Bflstoliðaf stæði: Fannst gjörónýtur við Vatnsenda Kona í efra Breiðholti í Reykjavík situr nú með sárt ennið og veit ekki alveg hvað hún á til bragðs að taka. Þegar hún var á leið til vinnu laust fyrir klukkan níu á laugardagsmorg- uninn kom i ljós að bíll hennar, Fiat 127 árg. 1974, var horfinn af stæðinu við Möðrufell 11. Hún fékk þó far á vinnustað með nágranna sínum og tilkynnti þegar til lögreglu að trúlegast hefði bílnum verið stolið. Skömmu síðar fékk hún upphringingu frá lögreglunni sem til- kynnti að bíllinn væri fundinn. ,,Hann er að vísu á hjólunum en það er ekki mikið meira,” sagði lögreglu- maðurinn. Það var upp við Vatnsenda sem bíllinn fannst. Hafði hann oltið a.m.k. heila veltu og var svo illa skemmdur að hann er nú talinn ónýt- ur. Þykir víst að bílþjófúrinn — eða þjófarnir — hafi ekið á mikilli ferð en síðan misst stjórn á bílnum. Gælu þeir jafnvel hafa meiðzt eitthvað i veltunni. Konan stendur nú mjög illa að vígi þvi þegar síðast fréttist voru þjóf- arnir ófundnir og ef þeir ekki finnast verður hún ein að bera skaðann. Hver sá sem getur einhverjar upplýs- ingar veitt um bílþjófnaðinn er vin- samlegast beðinn að láta lögregluna vita. -ÓV

x

Dagblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.