Dagblaðið - 21.09.1981, Blaðsíða 6
6
DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 21. SEPTEMBER 1981.
Rakarastofan Klapparstíg
Sími12725
Hárgreiðslustofa Klapparstíg
Tímapantanir
13010
Myndlistaklúbbur
Tekur til starfa í Hafnarfirði í byrjun október.
Uppl. í síma 52826 eða 50269 eftir kl. 18:
SELFOSS
Blaöburðarfólk óskast strax til blaðburðar og
umsjónar fyrir utan á (ekki yngri en 12 ára).
Upplýsingar gefur umboðsmaður í síma 99-
1492.
mBIAÐIB
SÁLFRÆÐINGAR-FÉLAGSRÁÐGJAFAR
Okkur vantar sálfræðing, forstöðumann, ráðgjafarþjón-
ustu skóla á Norðurlandi vestra. Einnig vantar félagsráð-
gjafa sem starfsmann á deildina sem allra fyrst.
Mjög góð vinnuskilyrði og gott húsnæði á staðnum.
Umsóknir sendist Fræðsluskrifstofu Norðurlands vestra,
Kvennaskólanum, 540 Blönduósi.
Fræðslustjóri.
Atvinna — Iðnaður
Viljum ráða:
1. Tæknifræðing eða starfskraft með sambæriiega mennt-
un tii hönnunar og iðnþróunarstarfa.
2. Rafvirkja eða starfskraft sem hefur áhuga á fram-
leiðsluiðnaði innan rafsviðs.
3. Sölumann til sölu á raftækjum og byggingahlutum (sér
hönnuðum).
4. Iðnverkamenn til framleiðslustarfa. Gerð er krafa um
handiagni og iipurð.
Hér er um framtíðarstörf að ræða. Góð vinnuaðstaða og
mötuneyti á staðnum.
Nánari uppl. veittar í síma 50670 milli kl. 16 og 19 næstu
virka daga.
HÁRGREIÐSLUSTOFAN
Jheri Reddingf KLAPPARSTÍG 29
J’eCSLAíV
Henna
Vekur athygli
viðskiptavmú
1
Jhery Kedding
Persian Henna
litasjampós
lengir og
tryggir endingu
Henna hár-
litunar
Hárgreiðslustofan Klapparstíg 29
Símapantanir 13010
Þorkell Ágústsson á harðastökki. Svo sem sjá má er hann vel búinn ef eitthvað myndi bera út af á hundrað
kilómetra hraða. DB-myndir: Sigurður Þorri.
Síðasta keppni ársins í mótocross:
Keppt um Dagblaðs-
bikaríim í fjórða skipti
Þorkell Ágústsson sigraði í Dag-
blaðskeppninni í mótocross. Keppnin
fór fram í gær á Suðurnesjum
skammt frá Grindavíkurafleggjaran-
um. Þar hefur nýlega verið lögð
braut fyrir keppni af þessu tagi.
Dagblaðskeppnin er síðasta móto-
crosskeppni sumarsins og ráðast því
oft í henni úrslit um íslandsmeistara-
titilinn i þessari vinsælustu aksturs-
íþrótt mótorhjólaknapa. DB gaf árið
1978 bikar í keppnina og er Þorkell
Ágústsson sá fjórði sem fær hann í
hendur.
Það er Vélhjólaíþróttaklúbburinn
sem sér um mótocrosskeppnina.
Fremur illa viðraði til keppni í gær
hvað það snertir að laöa áhorfendur
að. ískuldi var á Suðurnesjum og
talsverður vindur. Þeir sem samt létu
sig hafa það að koma til að sjá spenn-
andi keppni létu flestir fara vel um sig
í bílum sínum meðan mótorhjóla-
kapparnir gösluðust um keppnis-
brautina hring eftir hring.
í öðru sæti í keppninni i gær varð
Heimir Barðason og Þorvarður
Björgúlfsson í þriðja sæti. Að
loknum þremur mótum sumarsins
hafði Þorvarður forystuna. Heimir
varð í öðru sæti og Þorkell í þriðja.
Væntanlega kemur röð þeirra til með
að breytast eitthvað eftir keppnina í
gær. Frá þvi verður greint síðar hver
varð íslandsmeistari i mótocross í ár.
Mótocross er fremur lítt umtöluð
akstursíþróttagrein. Hún er í því
fólgin að keppendurnir aka tiltekinn
fjölda hringja á lokaðri keppnisbraut
sem engu farartæki er fær nema tor-
færumótorhjólum. Yfirleitt er keppt
í malargryfjum eða á öðrum stöðum
þar sem hætta er engin á að gróður
skemmist.
Mótorhjólin geta oft á tíðum náð
yfir eitt hundrað kilómetra hraða í
keppni. Á slíkum hraða má ekkert
bregða út af. Enda er mótocross talin
ein erfiðasta og hættulegasta íþrótta-
greinin sem er stunduð. Þrátt fyrir
það eru slys sjaldgæf og hingað til
hefur enginn áhorfandi slasazt hér á
landi.
Ef eitthvað bregður út af hjá
mótorhjólaköppunum eru þeir býsna
vel varðir fyrir höggum og pústrum.
Á höfðinu hafa þeir öryggishjálm og
hlífðargleraugu. Þeir eru íklæddir
brynju sem ver bak, axlir og brjóst-
kassa. Nýrnabelti veitir nýrunum
stuðning og buxur knapanna verja
lendar. Þá hafa þeir hnéhlífar, leður-
hanzka og sérstök stigvéi.
Brautirnar sem keppt er á í móto-
cross eru ekki sérlega langar. Því er
góð aðstaða fyrir áhorfendur að
fylgjast með þessari skemmtilegu
keppni.
-ÁT.
Einnig kepptu i gær nokkrir piltar á
SOcc hjólum. Bæði voru keppendur of
fáir og hraðinn of iitill til að um veru-
lega spennandi keppni væri að ræða.
Verðlaunaafhendingin. Frá vinstri eru Þorvarður Björgúifsson sem hafnaði i
þriðja sæti, sigurvegarinn Þorkell Ágústsson með Dagblaðsbikarinn og Heimir
Barðason sem varð f öðru sæti.
Frá upphafi keppninnar. Allir eru ræstir f einu.