Dagblaðið - 21.09.1981, Blaðsíða 15
DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 21. SEPTEMBER 1981.
15
G
Iþróttir
Iþróttir
Iþróttir
Iþróttir
Fyrsta íslandsmótið í maraþonhlaupi:
Ágætt Islandsmet Sigurðar
9
Glæsilegt
Fyrsta íslandsmótið i maraþon-
hlaupi, 42,2 km, fór fram í Reykjavík i
gær. Hlaupið var um vesturbæinn 4—5
hringi. Rásmark við Shellstöðina við
Birkimel skammt fró Hótel Sögu og
endamark á sama stað. 11 keppendur
hófu keppni, þar á meðal íslandsmet-
hafinn Sigfús Jónsson, ÍR. 7 luku
hlaupinu.
Fljótlega tók Sigurður P. Sigmunds-
son, FH, landskunnur langhlaupari,
forystuna og jók hann bilið stöðugt alla
leið 1 mark. Giæsilegt íslandsmet sá
dagsins ljós, 2 klst. 31 ;33 mín. Gamla
metið átti Sigfús Jónsson, ÍR, sett í
Windsor í Englandi 10. júní 1978. Sig-
fús varö þá 19. af 300 keppendum. Met
Sigfúsar Jónssonar var 2 klst. 38:29
mín. Framan af hlaupinu í gær fylgdu
þeir Stefán Friðgeirsson, ÍR, og
Gunnar Snorrason, UBK, Sigurði P.
Sigmundssyni allvel eftir en urðu að
gefa eftir við 30 km. Eftir um 35 km fór
Jóhann Heiðar Jóhannsson, ÍR
(læknir), fram úr þeim og náði öðru
sæti. 2 klst., 50,5 mín. Gunnar Snorra-
son, UBK varð þriðji á 2 klst, 54,43
mín. 4. Stefán Friðgeirsson, ÍR, efni-
legur hlaupari, 2 klst. 55,34 mín. 5.
Leiknir Jónsson, Á., 3 klst. 00,23 mín.,
en lengdi þó leið sína undir lokin um ca
400 m. 6. Sigurjón Andrésson, ÍR, 3
klst. 01,05 mín., 7. Guðmundur Gisla-
son, Á., 3 klst., 02,48 mín. Þeir Leiknir
og Guömundur Gislason eru lands-
kunnir sundmenn sem um árabil voru
beztu sundmenn landsins og kepp-
endur á ólympíuleikum. Þeir sýndu af
sér hörku með því að Ijúka hlaupinu á
ÞEIR ERLENDUI
ÖÐRUM KLASSA
—á af mælismóti Vals í badminton
Erlendu keppendurnir á afmælis-
móti Vals i badminton, sem háð var i
Laugardalshöll um helgina, höfðu
mikla yfirburði yfir hina islenzku
keppinauta sina. Léku til úrslita i öllum
flokkum.
í úrslitum einliðaleiks karla í gær
sigraði Kenneth Larsen, Danmörku,
Steven Baddeley, Englandi, I þremur
lotum. 15—12, 5—15 og 15—6. í ein-
liðaleik kvenna var einnig danskur
sigur. Nettie Nielsen sigraði Helen
Troke, Englandi, 11—5 og 11—5. Er-
lendu keppendurnir á þessu 70 ára af-
mælismóti Vals voru níu.
Af úrslitum í leikjum hinna erlendu
við bezta badmintonfólk okkar má
nefna að Kenneth Larsen sigraði ís-
landsmeistarann Brodda Kristjánsson
15—2 og 15—7. Steven Baddeley sigr-
aði Jóhann Kjartansson 15—2 og 15—
9 og Charlie Gallagher, Skotlandi, sigr-
aði Sigfús Ægi 15—8 og 15—10.
í einliðaleik kvenna sigraði Pia
Larsen, Danmörku, íslandsmeistarann
Kristínu Magnúsdóttur 11 — 1 og 12—
10.
Helen Troke sigraði Kristínu Berg-
lindll—Oogll—2.
KARFAN BYRJUÐ
—fyrstu leikir Reykjavíkurmótsins
voru um helgina
Reykjavikurmótið í körfuknattleik
hófst um helgina og voru leiknir fjórir
leikir, allir i iþróttahúsi Hagaskóla.
Upphaflega voru sex leikir á dagskrá en
lið Ármanns hefur dregið sig úr mótinu
og er óvist hvort félagið verður með i
íslandsmótinu. Mikið hrun hjá félagi
sem varð íslandsmeistari fyrir aðeins
fimm árum.
Á laugardag voru tveir leikir. ÍS
vann Val með 71 stigi gegn 68 eftir að
Valur hafði leitt í hálfleik 35—29.
Dennis McGuire 30, og Bjarni Gunnar
Sveinsson 18 voru stigahæstir Stúdenta
en Valdimar Guðlaugsson 17, og Rík-
harður Hrafnkelsson 16 skoruðu mest
fyrir Val. Fram sigraöi KR 83—80
(48—42). Símon Ólafsson og Val Bracy
skoruðu 28 stig hvor fyrir Fram en
Stewart Johnson 32 og Jón Sigurðsson
20 stigfyrirKR.
Á sunnudag sigraði KR ÍS með 95
stigum gegn 71 og Valur vann ÍR 67—
60. Útlit er fyrir spennandi keppni og
verða önnur og þriðja umferð leiknar
um næstu helgi. -VS.
Heimsmet í lyft-
ingum á HM f Lille
Blagoi Blagoev frá Búlgaríu, silfur-
verðlaunahafi á ólympiuleikunum i
Moskvu, varð sigurvegari i milliþunga-
vigt (undir 90 kg) á heims- og Evrópu-
meistaramótinu i lyftingum í Lille i
Frakklandi um helgina. Hann setti
heimsmet i snörun, 185 kg, og jafnaði
metið i samanlögðu með þvi að lyfta
405 kg samanlagt. Annar varð hinn 19
ára gamli Sovétmaður, Yuri Zakhare-
vich, sem átti bæði heimsmetin, með
397.5 kg samanlagt (180—217,5) og
þriðji Liubomír Usherov frá Búlgariu
(167,5—212,5 = 380 kg).
í 100 kg flokki sigraði Viktor Sots
frá Sovétríkjunum (182,5—225 =
407.5 kg), annar varð Bruno Matkie-
wicz frá Tékkóslóvakíu (175—217,5 =
392.5 kg), og þriðji Veselin Osikowski
fráBúlgaríu (170—217,5 = 387,5 kg).
í 110 kg flokki var Valery Kravchik
frá Sovétríkjunum. Hann snaraði 180
kg, og jafnhattaði 235 kg en tókst ekki
að setja heimsmet þrátt fyrir góða til-
raun við 240,5 kg, hálfu kílói meira en
heimsmet landa hans, Leonid Tara-
nenko. Samanlagt lyfti Kravchik því
415 kg. Annar varð landi hans Viaches-
lav Klokov (185—225 = 410), og þriðji
Plamen Asparuhov frá Búlgariu (180—
225 = 405 kg).
í yfirþungavigt, (yfir 110 kg), sigraði
Sovétmaðurinn Anatoly Pisarenko
(187,5—237,5 = 425 kg), annar varð
landi hans Senno Salzwedel (180—
237,5 = 417,5), og þriðji Tadesuz Rut-
kovski frá Póllandi (182,5—232,5 =
415 kg). Sovétmenn hlutu því flest gull-
verðlann á mótinu, fimm talsins, Búl-
garar fjögur. -VS.
Vildu leika
Vegna fréttar hér i DB um heímsókn
sovézka handknattleiksliðsins Kunsevo
hafa forráðamenn handknattleiksdeild-
ar Víkings beðið blaðið að geta þess, að
ekki sé rétt að íslandsmeistarar Vikings
hefðu ekki viljað leika við sovézka
liðið. Það vildu þeir og búið var að
ákveða leikdag. Hins vegar var leik-
deginum breytt — Vikingar beðnir að
leika við Kunsevo i kvöld, mánudag.
Það vildi þjálfari Viklngs, Bogdan
Kowalczyk ekki. Taldi allt of mikið
álag á leikmenn sína i byrjun keppnis-
timabils að leika tvö kvöld i röð. Vík-
ingur lék i gærkvöld við KR á Reykja-
víkurmótinu. Það verða þvi bikar-
meistarar Þróttar, sem leika við
sovézka liðið í Laugardalshöllinni i
kvöld.
Þá má geta þess, að Hilmar Sigur-
gíslason tilkynnti félagasldpti úr HK
yfir f Viking 14. október sl. Hann getur
þvi byrjað að leika með Vfking eftir
rúmar þrjár vikur. -hsim.
góðum tíma. Gamli Islandsmethafinn,
Sigfús Jónsson, ÍR, hætti hlaupinu er
hann hafði sýnt félögum sínum leiðina
eftir um 16 km. Sömuleiðis þeir bræður
Árni Þ. og Gunnar Kristjánssynir,
landskunnir sundmenn hér á árunum
og góðir langhlauparar. Einnig Sig-
hvatur Guðmundsson, HVÍ.
Saga maraþonhlaupsins
á íslandi
Magnús Guðbjörnsson, KR, var
fyrstur til þess að hlaupa langhlaup
með góðum árangri og hefja maraþon-
hlaup til virðingar. Magnús Guð-
björnsson hljóp árið 1926 40,2 km á 3
klst. 10,15 mín. Árið 1927 á 3 klst.
04,40 mín. og árið 1928 á 2 klst. 53,6
mir.. Hafsteinn Sveinsson, Selfossi,
vakti landsathygli árið 1957 er hann
hljóp frá Kambabrún til Reykjavíkur á
2 klst. 49:01,2 mín. og hina einu sönnu
vegalengd 42,2 km. á 3 klst 01:02,0
mín. Endamark á Melavelli í Reykja-
vík.
Fyrstur til þess að hlaupa vegalengd-
ina eins og alþjóðareglur segja til um,
að enda hlaupið við rásmark, var Jón
Guðlaugsson HSK, einnig landskunnur
langhlaupari. Það gerðist á Norður-
landameistarahlaupinu í maraþon-
hlaupi I Reykjavik 1968 en þá var
hlaupið frá Laugardalsvelli til Garða-
bæjar og til baka á völlinn. Tími Jóns
var 3 klst. 51:03,8 mín. Þrír Finnar
voru fyrstir. Högni Óskarsson KR
(læknir) bætti þetta met fjórum sinnum
á árunum 1975 og 1976 i USA. Fyrst í
Rochester 1975, 3 klst. 15,17 min.
Síðan i Buffalo, 3 klst. 05,38 mín.
1975. í Rochester 2 klst. 53,05 mín.
1976 og aftur 16. okt. í sömu borg, 2
klst. 50,56 mín.
Árið 1978 bætti síðan Sigfús Jóns-
son, íslandsmethafinn í 5 og 10 km
hlaupi, metið eins og áður segir 1 Wind-
sor í 2 klst. 38,29 mín. Met Sigurðar P.
Sigmundssonar úr Hafnarfirði, 2 klst.
31,33 mín. sýnir að maraþonhlaup
viröist liggja fyrir honum í framtíðinni.
Væntanlega keppir hann i maraþon-
hlaupi erlendis á næsta ári.
Beztu afrek i maraþonhlaupi.
42,2 km.
1. Sigurður P. Sigmundsson, FH 2 klsi.31:33,0
2. Sigfús Jónsson, ÍR 2 klst.38:29,0
3. Jóhann Hciðar Jóhnnnsson, ÍR 2 k'.st.50:05,0
Sigurður Pétur Sigmundsson, íslands-
methafi I maraþonhlaupi.
4. Högni Óskarsson, KR
5. Gunnar Snorrason, UBK
6. Slefán Friðgeirsson, ÍR
7. Leiknir Jónsson, Á.
8. Sigurjón Andrésson, ÍR
9. Guðmundur Gislason, Á
10. Jón Guðlaugsson, HSK
2 klst.50:56,0
2 klst.54:43,0
2 klst.55:34,0
3 klst.00:23,0
3 klst.01:05,0
3 klst.02:48,0
3 klst.51:03,9
42,2 km (bein braut)
1. SigurðurP. Sigmundsson, FF 2klst.43,50
2. Gunnar Snorrason, UBK 2 klst.46,49
3. Stefán Friðgeirsson, ÍR 2 klst.52,51
4. Högni Óskarsson, KR 2 klst.58,16
5. Hafsteinn Sveinsson, HSH 3klst.01,02
6. Árni Krístjánsson, Á 3 klst.08,06
7. Ársæll Benedikt&son, ÍR 3 klst.l 1,32
-óu.
AFMÆ LISHÁTÍÐ VALS
í Laugardalshöllinni í kvöld kl. 20.00
ÞROTTUR - KUNSEVO
Mætum öll i
Höllina og sjáum
Hvað gera Þróttarar?
Gráfeldur
Þingholtsstræti
Ólafur Gíslason hf.,
adidas — gallar
í öllum stærðum
Lrtir: dökkblátt
l/ósblátt
ograutt
fP) • Velúr ga/larnir
komrtir.
Stórar stærðir.
Vandaðar úlpur,
stæröirfrá 10 ára
upp í fullorðins-
stærðir.
OPIÐ
LAUGARDAGA
PÓSTSEIMDUM
Dikckrinn
SKÓLAVÖRÐUSTÍG 14 - SÍMI24520