Dagblaðið - 21.09.1981, Side 17

Dagblaðið - 21.09.1981, Side 17
DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 21. SEPTEMBER 1981. 17 Iþróttir Iþróttir Iþróttir Iþróttir KR vann upp 8 marka for- skot Víkings en tapaði — Úrslitakeppnin í Reykjavíkurmótinu í handknattleik hófst í gærkvöld Úrslitakeppni Reykjavíkurmótsins 1 handknattleik hófst i Laugardalshöll- inni í gærkvöld. Til úrslita leika ÍR, KR, Valur og Vfkingur. Þessi fjögur lið urðu i tveimur efstu sætunum i riðla- keppninni, KR og Valur unnu þar alla leiki sfna. Leikirnir i gær voru bráð- skemmtilegir og áhorfendur margir. Allgóður handknattleikur svona f byrj- un keppnistfmabilsins. Valur og Vfkingur stóðu uppi sem sigurvegarar eftir leikl kvöldsins, Valur sigraði ÍR 19—14. Vikingur sigraði KR 22—17. Mikil spenna var í leik Víkings og KR og sveiflur miklar. Meistarar Víkings léku mjög vel framan af og við þeim leik áttu KR-ingar ekkert svar. Vík- ingur var kominn með átta marka forustu eftir 20 mín., 13—5 og það virtist stefna í stórsigur liðsins. En Vík- ingar höfðu keyrt mjög á þessum mínútum og nokkur stöðnun kom í leik þeirra. KR-ingar skoruðu fjögur síðustu mörkin í hálfleiknum, 13—9 í hálfleik. Og KR-ingar létu ekki þar við sitja. Þeir söxuðu smám saman á forskot Víkings og þegar níu mínútur voru til leiksloka var staðan orðin jöfn, 16— 16. KR-ingar höfðu meira að segja tækifæri til að ná forustunni. Tókst ekki og lokakaflann léku Víkingar eins og meisturum sæmir. Skoruðu sex mörk gegn einu síðustu níu mín. Sigruðu því 22—17. Skemmtilegur leikur. Þorbergur Aðalsteinsson var hreint óstöðvandi í Víkingsliðinu. Skoraði 12 mörk, flest með þrumuskotum. Þá átti Kristján Sigmundsson mjög góðan leik í marki Víkings. Sigurður Gunnarsson lék sinn fyrsta leik með Víking eftir ársdvöl hjá Bayer Leverku- sen. Beitti sér ekki mikið í markskotun- um. Skoraði eitt mark en átti margar frábærar sendingar sem gáfu mörk. Allir leikmenn Víkings skoruðu í leikn- um, Steinar 3, Páll 2, Ólafur 2, Árni 1 og Guðmundur 1. Hjá KR bar mest á Alfreð Gíslasyni. Skoraði 5 mörk. Eitt víti. Þá vakti Gunnar bróðir hans at- hygli en hann gekk úr KA í KR í sumar. Skoraði 3 mörk. Jóhannes 4, Konráð 3, Erlendur Davíðsson (áður Fram) 1 og Haukur Ottesen 1. KR- ingar högnuðust nokkuð á dómgæzlu þeirra Gunnlaugs Hjálmarssonar og Óla Olsen í leiknum. Sex sinnum var leikmönnum Víkings vikið af velli. Þar af Árna Indriðasyni þrisvar. Hann var því útilokaður síðustu 15 mínúturnar. Tveim KR-ingum var vikið af velli. Eitt vítakast var dæmt í leiknum og það fékk KR. Fyrri leikurinn var milli Vals og ÍR og spenna þar ekki eins mikil. Staðan í hálfleik 10—8 fyrir Val. ÍR tókst að jafna í 12—12 en síðan sigu Valsmenn hægt og bítandi framúr. Unnu öruggan sigur, 19—14. Jens Einarsson, mark- vörður ÍR, sem kominn er frá Vest- mannaeyjum, var bezti maður leiksins. Fleiri nýir menn eru í liði ÍR, Björn Bjömsson, áður Val, og Brynjar Stefánsson, áður Víking. Valur hefur misst Bjarna Guðmundsson til Þýzka- lands og Stefán Halldórsson til Vest- mannaeyja. Fengið í staðinn Friðrik Jóhannsson, áður Ármanni, Theódór Guðfmnsson, Fram, og Jón Gunnars- son, Fylki. -hsfm. Skotar unnu „Við erum mjög ánægð með þennan leik þó svo alltaf hefði verið gaman að halda forystunni sem við höfðum þar til 6 mfnútur voru til leiksloka. Skozka liðið er mjög sterkt og stóð sig vel á móti f ítalfu nýlega. Þetta var 28. lands- leikur Skota f kvennaknattspyrnu en okkar fyrsti svo árangurinn hlýtur að teljast ágætur,” sagði Svanfríður Guðjónsdóttir, einn af fararstjórum fslenzka kvennalandsliðsins f knatt- spyrnu, er DB hafði samband við hana f Glasgow f gær. fslenzka kvennalandsliðið í knatt- spyrnu tapaði mjög naumlega fyrir Sex erlendis frá í HM- leikinn viðTékkana — Ásgeir, lanus og Arnór koma auk Atla, Magnúsar og Arnar Sex atvinnumenn okkar f knattspyrn- unni munu taka þátt I leiknum við Tékkóslóvakíu f riðlakeppni heims- meistarakeppninnar á miðvikudaginn. Það eru þeir Arnór Guðjohnsen, Lokeren, Ásgeir Sigurvinsson, Bayern Miinchen, Atli Eðvaldsson, Diissel- dorf, Janus Guðlaugsson, Fortuna Köln, Magnús Bergs, Borussia Dort- mund og Örn Óskarsson, Örgryte. í morgun var ekld annað vitað en þeir kæmu allir heim f dag. Pétur Péturs- son, Anderlecht, gaf ekki kost á sér i leikinn. Landsliðið gegn Tékkum verður endanlega tilkynnt f kvöld á blaða- mannafundi. Enn var vafi með Þor- stein Bjarnason, ÍBK, og eins Ragnar Margeirsson, ÍBK. Allar lfkur eru á að þeir sex menn sem koma að utan verði f byrjunarliðinu. Hinir fimm verða, ef að Ifkum lætur, Guðmundur Baldurs- son, Marteinn Geirsson og Pétur Orm- slev, allir Fram, Viöar Halldórsson, FH, Sævar Jónsson, Val, eða Sigurður Lárusson, Akranesi. Þá eru Sigurður Halldórsson, Akranesi og Olafur Björnsson, Breiðabliki, f hópnum. Ef Þorsteinn verður ekki f hópnum verður ViggóSigurðsson i mörk markvörö deildarinnar, Rudi Kargus. Frank Mill á 21. mín. og Wilfried Hannes á 22. komu Gladbach í 2—0. Dressel minnkaði muninn á 26. mín. en Mill skoraði aftur á 35. mín. 3—1. Tveimur mín síðar. skoraði Dieter Lieberwirth fyrir Niimberg en Hans- GUnther Bruns tryggði sigur Gladbach á54. mín. Áhorfendur 12.000. Darmstadt—Karlsruha 2—6 (1 —0) Martröð Darmstadt á heimavelli og ekkert virðist bíða þess nema fall. Darmstadt komst í 1—0 eftir 10 mín. þegar Bodo Mattern skoraði úr víti en síðan ekki söguna meir. Gerhard Bold skoraði 3 mörk, Emanuel Gilnther 2 og Stefan Gross eitt fyrir gestina en Peter Cestonaro skaut einu inn á milli fyrir Darmstadt. Mér segir svo hugur um að þjálfari Darmstadt sé sá sem rekinn verði næst. Stuttgart—Köln 1-1 (1-1) Dieter MUller, markaskorarinn mikli, var seldur frá Köln til Stuttgart á 1,8 milljón marka í vor. Hann átti í stöðugu þrasi við Toni Schumacher markvörð og fleiri í Kölnarliðinu. Honum hefur gengið illa að skora fyrir Stuttgart til þessa og fyrir leikinn sagðist hann ætla að skora hjá Schu- macher. Það stóð hann við á 36. mín. og fagnaði ákaft. En Köln með sína 4 sóknarmenn vildi stig og Pierre Litt- barski jafnaði beint úr aukaspyrnu á 40. mín. með bananaskoti yfir varnar- vegginn upp í hægra markhornið. Leik- urinn var mjög harður, 6 gul spjöld og fjöldi aukaspyrna. Nokkuð sann- gjörn úrslit en þó var Stuttgart nær sigri. Dieter Múller skoraði aftur en var dæmdur rangstæður. Didier Sbc átti þrumuskot sem stefndi efst í mark- hornið en Schumacher bjargaði glæsi- lega. Áhorfendur 27.000. Breman—DUssaldorf 4—1 (2—0) Það bíður Atla Eðvaldssonar erfitt verkefni hjá Dússeldorf, nefnilega að skora mörk. Dússeldorf seldi í fyrra sinn bezta mann, Klaus Allofs, og hefur síðan verið á höttunum eftir sóknarmönnum og hver veit nema tveir íslendingar verði í liðinu áður en langt um líður og skjóti Dilsseldorf úr fall- sæti. Bremen er talið lang-sterkasta lið sem komið hefur úr 2. deild i mörg ár og með þessum sigri eru þeir komnir í annað sætið. DUsseldorf lék mjög illa og Bremen átti ekki í erfiðleikum. 1— 0: Rigobert Gruber 13. mín., 2—0: Er- win Kostedde 34. mín., 2—1: Thomas Allofs 58 mín., 3—1: Uwe Bracht 59. mín., 4—1: Rigobert Gruber 69. mín. Áhorfendur 25.000. í 2. deild er Fortuna Köln, lið Janus- ar Guðlaugssonar, efst með 12 stig eftir góðan sigur heima gegn Bayer Uerdingen sem lék í 1. deild í fyrra, 3— 1. Janus skoraði ekki en átti góðan leik. Lið Hilperts, fyrrum þjálfara Akurnesinga, Wattenscheid 09, vann Hertha í Berlín 1—2 og er með 11 stig ásamt fjórum öðrum liðum. Fjögur önnur hafa tíu stig og þrjú níu stig svo baráttan er gífurleg og ómögulegt að spá nokkru. Þrjú lið komast upp í Bundesliguna. -Viggó/VS. Guðmundur Ásgeirsson, Breiðabliki, varamarkvörður. -hsim. Skotum í landsleik í Glasgow í gær. Skotar sigruðu 3—2 eftir að hafa verið 1—0 yfir í hálfleik. Bryndís Einars- dóttir jafnaði fyrir ísland þegar 15 mín. voru liðnar af síðari hálfleik og var það því fyrsta mark sem ísland skorar í landsleik í kvennaknattspyrnu. Rétt á eftir skoraði Ásta B. Gunnlaugsdóttir annað mark íslands og staðan því óvænt orðin 2—1, íslenzku stúlkunum í vil. Þannig var staðan þar til 6 mínútur voru til leiksloka er þeim skozku tókst að jafna. Þær skoruðu svo sigurmark leiksins mínútu síðar. Leikurinn fór fram við mjög erfiðar aðstæður, úrhellisrigning var og völlur- inn þungur. Þar við bættist að leiktími var mun lengri en venjan er hér á landi í kvennaknattspyrnu, 2x45 mín. í stað 2x35 mín. sem er sá leiktími sem gefinn er upp í alþjóðareglum og farið er eftir hérlendis. Árangur íslenzku stúlknanna er því mjög athyglisverður og ætti að vera íslenzkri kvennaknatt- spyrnu til mikillar hvatningar. Skozka liðið er væntanlegt hingað til lands næsta sumar og verður þá leikinn fyrsti landsleikur í kvennaknattspyrnu hér á landi. íslenzku stúlkurnar eru væntan- legar heim í dag. -VS. Stjörnuvélin oft- ast f hægagangi og gömlu Celtic-kapparnir sigruðu Kaflavfkurvöllur, Stjörnulið Hemma Gunn. 1:3 (0:3) Skozku öldungarnir I Celticliðinu sigruðu stjörnulið Hemma Gunn — að visu án hans sjálfs — með þremur mörkum gegn einu suður i Keflavik í gær að viðstöddum, þvi miður, allt of fáum áhorfendum og kann köld norð- anáttin að hafa valdið þvi. Skotarnir sýndu oft á tiðum mjög skemmtilegan og vel útfærðan leik og þótt þeir hafi ekki æft saman um margra ára bii og sumir hverjir komnir af léttasta skeiði, eins og útlitið bar með sér, því nokkrir þeirra voru orðnir mjög svipaðir að vexti og uppáhaldshluturinn þeirra — knötturinn. En þrátt fyrir „yfirvigt- ina” var leikskipulagið gott og þeir voru fljótari að skila frá sér knettinum en stjörnuliðsmenn, sem fóru sér full- hægt og voru á stundum of skotgráð- ugir. Menn áttuðu sig ekki alveg á því hvers vegna dómarinn, Guðmundur Haraldsson, kom knattarlaus inn á völlinn en horfði í þess stað himins, rétt eins og hann ætti von á honum þaðan, sem og kom á daginn. Fallhlífarstökkv- ari kom svífandi niður í áttina að leik- vellinum, lenti að vísu sunnan hans, en eigi að síður komst knötturinn á miðju- punktinn innan tíðar. Ágætt atvik svona til að koma með einhverja ný- ung. Það tók Skotana aðeins stundar- fjórðung að komast í æfmgu. Stjörnu- liðið sótti meira í fyrstunni og Kári Árnason, léttur á fæti, átti hörkuskot að markinu eftir langan einleik, en skotið geigaði. Skömmu síðar gleymdi stjörnuliðsvörnin hinum bústna Joe McBride, sem stóð einn og óvaldaður inni i vítateignum en hann kiknaði undir „sjálfum sér” og skaut púður- skoti, sem Þorbergur Atlason var ekki i vandræðum með að stöðva. En ekki leið á löngu þar til vörn land- ans opnaðist eins og flóðgátt og þá stóð ekki á mörkunum. Harry Hood smaug í gegn og skoraði fyrsta markið. Síðan Bobby Lennox og svo kom röðin að Joe McBride — og nú var hann kominn á skotskóna — skaut föstu skoti beint i markið, 3:0. Strax i upphafi seinni hálfleiks skor- aði Ingi Björn Albertsson af stuttu færi. John Fallon markvörður missti knöttinn fyrir fætur hans og Ingi Björn þakkaði klaufaskapinn og sendi knött- inn í netið. Ingi Björn ,,óð” síðan í tækifærum en skotfimin brást. Stjörnuliðið sótti mun meira en Skotarnir í seinni hálfleik enda undan norðan kaldanum. Skotarnir vörðust mjög vel og skipulega enda fengu þeir í flestum tilvikum tima til að hópast í vörnina þvi stjörnuvélin var oftast í hægagangi. Þó voru margir leikmenn þess í fullri æfingu eftir nýlokið keppn- istímabil eins og Ásgeir Elíasson, Jón Gunnlaugsson, Ingi Björn og fl. Líka má segja að hinir gömlu, eins og Einar Gunnarsson, Björn Lárusson, Skúli Ágússtsson, Kári Árnason, Magnús Torfason, sem átti hörkuskot í þverslá i fyrri hálfleik og Jón Ólafur Jónsson hafi komið á óvart hvað getu snertir, en þeir ásamt fleirum sýndu að lengi lifir i gömlum glæðum. Jimmy Johnstone var beztur í Celtic- liðinu, leikinn og fljótur, svo og Jim Craig, hægri bakvörður, sem stöðvaði margar sóknartilraunir stjörnuliðsins. Annar voru allir leikmennirnir lygilega úthaldsgóðir, knatttækninni hafa þeir ekki glatað og gladdi snilli þeirra svo sannarlega augu áhorfenda. Mættum við sjá meira af slíku í framtíðinni — hvort sem það verða Skotar eða ein- hverjir aðrir. -emm. Atli Eðvaldsson. Atli hef ur skrifað undir „Ég skrifaði undir samning við Fort- una Dússeldorf á laugardagsmorgun og samningurinn gildir til vors 1983. Hins vegar er sá varnagli i samningnum, að ég get farið frá Fortuna til annars liðs í Bundesligunni næsta vor ef Fortuna Dússeldorf fellur niður i 2. deild,” sagði Atli Eðvaldsson, þegar DB hafði samband við hann i gærkvöld. „Ég er mjög ánægður með minn hlut. Hlakka til að breyta. Kaupverðið milii félaganna var 400 þúsund mörk og ég leik minn fyrsta leik með liðinu næstkomandi laugardag. Þá leikur Fortuna Dússeldorf við Bochum á úti- velli. Willi Reikne hjálpaði mér við samningana milli Borussia Dortmund og Fortuna Dússeldorf. Ég kem heim í HM-leikinn við Tékka i dag og senni- iega verður Pétur Ormslev, Fram, mér samferða út aftur. Möguleiki er á þvi að hann gerist einnig leikmaður hjá Dússeldorf.” í sambandi við Willi Reinke má geta þess, að Knattspyrnusamband íslands hefur kært hann til Evrópusambands- ins í knattspyrnu og einnig til þýzka knattspyrnusambandsins vegna viðræðna hans við islenzka leikmenn meðan keppnistimabilið stendur yfir. Vestur-þýzki handboltinn Úrslit i vestur-þýzka handknattleikn- um um helgina: Gummersbach—Essen 15—13 Leverkusen—Dortmund 20—14 Dietzenbach—Kiel 22—17 Göppingen—Húttenberg 20—14 Hofweier—Berlin 26—20 Grosswaldstadt—Gúnzburg 20—17 Nettelstedt—Númberg 22—16 Góður sigur Leverkusen og Viggó Sigurðsson skoraði 4 mörk. Grosswald- stadt er efst eftir þrjár umferðir með 6 stig en siðan koma sex lið með 4 stig, þar á meðal Gummersbach og Leverku- sen. -VS. Markaleysi áítalíu ítalir eru samir við sig. í tveimur fyrstu umferðunum i 1. deildinni hafa aðeins 24 mörk verið skoruð, 11 um þessa helgi. Af þessum 24 mörkum hefur Juventus skorað sjö, eða næstum einn þriðja. Tiu ieikjum af sextán hefur lyktað með jafntefli og aðeins fjögur af sextán liðunum hafa unnið leik, Juventus og Torino báða sina og eru þvi efst með 4 stig hvort. Úrslit um helgina urðu þessi: Ascoli—Udinese 3—0 Avellino—Juventus 0—1 Cagliari—Napoli 1—1 Catanzaro—Inter Milano 0—0 Cesena—Roma 1—1 Como—Genoa 1—1 AC Milano—Fiorentina 0—0 Torino—Bologna 1—0 -VS.

x

Dagblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.