Dagblaðið

Ulloq

Dagblaðið - 21.09.1981, Qupperneq 22

Dagblaðið - 21.09.1981, Qupperneq 22
22 DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 21. SEPTEMBER 1981. BÆKUR Rasmus klumpur og fólagar komnir til íslands Bókaútgáfan örn og örlygur hefur gefið út tvaer litprentaðar teiknimynda- bækur í bókaflokknum um Rasmus klump og félaga, nefnast þær Rasmus klumpur smíðar skip og Rasmus klumpur skoðar pýramída. Höfundar bókanna eru þau Carla og Vilhelm Hansen en Andrés Indriðason þýddi textann á íslenzku. Teiknimyndabæk- urnar um Rasmus klump og félaga hafa veitt milljónum barna um allan heim ótal ánægjustundir og mörg íslenzk börn munu kannast við undraveröld þessara yndislegu sakleysingja úr dag- blöðum og ÆSKUNNI þar sem sög- urnar hafa oft birzt sem framhalds- þættir á undanförnum árum. Samhliða útgáfu framanefndra bóka hefur bókaútgáfan einnig sent á markað litlar gúmmíbrúður af helztu sögupersónum bókanna og fást þær í öllum bókabúðum og víðar. Dómar úr stjórn- skipunarrétti Út eru komnir Dómar úr stjórnskipun- arrétti, Gunnar G. Schram tók saman. Útgefandi er IÐUNN. — Bók þessi hefur að geyma ágrip flestra þeirra dóma Landsyfirréttar og Hæsta- réttar sem varða stjórnarskrá íslands. Ágripin eru lykill að dómum er um stjórnarskrána fjalla og þau ágrein- ingsefni sem risið hafa varðandi skýr- ingar og túlkun á hinum einstöku stjórnarskrárgreinum. Þær dómsúr- lausnir hafa bæði fræðilegt og raun- ^ /ÚNl ^ Dans- námskeið Þjóðdansafélags Reykjavíkur hefjast mánudaginn 28. september 1981 í Fáksheimilinu v/Bústaðaveg. Barnaflokkar frá kl. 4.30. Gömlu dansar, fullorðnir kl. 8—11. Þjóðdansar, fullorðnir kl. 8—10 á fimmtudögum i fimleikasal Vörðuskóla. Innritun og upplýsingar í síma 75770 eftir kl. 2 á daginn. Þjóðdansafélagið. Hellissandur: Dagblaðið óskar eftir umboðsmanni strax. Upp- lýsingar á afgreiðslu Dagblaðsins í síma 91- 27022. Breiðdalsvík Dagblaðið óskar eftir umboðsmanni á Breiðdals- vík. Upplýsingar hjá umboðsmanni í síma 97- 5677 eða á afgreiðslunni í síma 91-27022. Eskifjörður Dagblaðið óskar eftir umboðsmanni á Eskifirði. Upplýsingar hjá umboðsmanni í síma 97-6331 eða á afgreiðslunni í síma 91-27022. Þórkötiustaðahverfi Grindavík Dagblaðið óskar eftir umboðsmanni í Þórkötlu- staðahverfi Grindavík. Upplýsingar hjá umboðs- manni í síma 92-8061 eða á afgreiðslunni í síma 91-27022. hæft gildi, þar sem hér er fjallað um grundvallarlög landsins og meginþætti íslenzkrar stjórnskipunar. Ágripin eru 387 taisins, en dómarnir nokkru færri sem reifaðir eru, þar sem sumra dóma er getið tvisvar eða oftar. Elzti dómur- inn er frá árinu 1877 en þeir yngstu frá 1980. 1 lok bókarinnar er birt skrá yfir dóma samkvæmt greinum stjórnar- skrárinnar og önnur skrá yfir dóma í aldursröð. Þá fylgir skrá yfir öll lög sem vitnað er til, bæði þau sem fallin eru úr gildi og þau sem enn eru í gildi. Þorgeir örlygsson fulltrúi yfirborgar- dómara hefur tekið skrárnar saman. Dómar úr stjórnskipunarrétti er 196 blaðsíður aðstærð. Oddi prentaði. Forritunarmálið Basic Út er komin bókin Forritunarmálið BASIC. Halla Björg Baldursdóttir menntaskólakennari tók saman. Útgef- andi er IÐUNN. Þetta er kennslubók í tölvufræðum og ætluð framhalds- skólum. í formála kemst höfundur svo að orði meðal annars: „Kennsla í tölvufræði er einkum fólgin í tveimur þáttum, annars vegar aimennri fræðslu um tölvur, sögu þeirra, uppbyggingu og notkunarsvið, hins vegar kennslu í gerð vinnuleiðbeininga handa tölvum, þ.e. forritun. Leiðbeiningarnar minna um margt á alls kyns leiðarvísa og for- skriftir sem við notum daglega, nema hvað þær eru skrifaðar á sérstökum tölvu- eða forritunarmálum . . . Und- anfarin ár hefur forritunarmálið BAS- IC (Beginner’s All-purpose Symbolic Instruction Code) náð miklum vin- sæidum Það er einfalt en jafnframt öfl- ugt og gerir litlar kröfur um forkunn- áttu. Upprunalega var það aðeins ætl- að til kennslu en nú er svo komið að flestar smátölvur (og reyndar þær stærri líka) skilja Basic.” Bókin skiptist í tíu aðalkafla. Fjallar hinn fyrsti um almenn atriði tölvufræð- innar, næstu átta kaflar gera grein fyrir forritunarmálinu, en síðasti kaflinn er um skráarvinnslu. Þá eru æfingar, fræðiritatákn, helztu Basic-skipanir og loks heimildaskrá. Bókin er tæpar 140 blaðsíður, fjölrituð í Offset-fjölrit- arstofu Birkis. Heimur rúms og tíma nefnist ný bók eftir Brynjólf Bjarnason og er hún gefin út hjá MÁLI og MENNINGU. Þetta er heimspekirit og fjallar um heimsmynd nútimans. Höf- undur fjallar nokkuð rækilega um af- stæðiskenninguna og þá gerbreyttu heimsmynd sem hún hafði í för með sér. Síðan er fjallað um stöðu mannsins í þeirri vísindalegu efnishyggju og nauðhyggju sem nú ríkir og nauðsyn nýrrar lífssýnar ,,sem ekki aðeins játar veruleika mannsins, heldur skilur hann miklu dýpri skilningi en allar fyrri kyn- slóðir”. Heimur rúms og tíma er sjötta heim- spekibók Brynjólfs Bjarnasonar. Fyrri bækurnar hafa hlotið mjög góðar viðtökur og eru sumar uppseldar. Heimur rúms og tíma er 235 síður og henni fylgir orðaskrá og nafnaskrá. Prentsmiðjan Hólar hf. prentaði bók- ina. Ströndin biá eftir Kristmann Guðmunds- son Út er komin hjá Námsgagnastofnun skáldsagan Ströndin blá eftir Krist- mann Guðmundsson. Erlendur Jónsson hafði umsjón með útgáfunni og segir hann m.a. í formáls- orðum: „Ströndin blá kom fyrst út i íslenzkri þýðingu höfundar 1940 en hann var þá fluttur heim frá Noregi. Um sama leyti las Kristmann söguna í útvarpið. „Var henni svo vel tekið að undrun sætti,” segir í Loganum hvíta; „til mín streymdu þakkarbréf frá ýmsum lands- hlutum og þótti mér vænt um þá viður- kenningu af því að hún kom frá þjóð- inni sjálfri.” Útgáfan var þó tæpast nógu vönduð. En höfundur endurbætti og slípaði texta sinn fyrir aðra útgáfu er birtist í „Skáldverk III” 1978. Er þeim texta fylgt hér og má því líta á þetta sem end- anlega gerð sögunnar. Verkefni fylgja hverjum kafla — íhugunarefni væri ef til vill réttara að segja — og er sérhverjum lesanda í sjálfsvald sett hvort eða hvernig hann notar þau. Aftast í bókinni eru svo prentaðar fáeinar orðaskýringar. Allt- ént er álitamál hvað útskýra skal og hvað ekki og er engum það ljósara en umsjónarmanni þessarar útgáfu. Heilt úthaf þjóðlífsbreytinga aðskilur núlif- andi ungkynslóð frá tökubörnunum í Skógarnesi og vart að furða þó orð og hugtök skolist til í slíku umróti. En góður skáldskapur heldur alltaf gildi sínu hvað sem annars breytist og um- turnast. Ströndin blá er skemmtilegt, blæ- brigðaríkt og trúverðugt skáldverk sem ÍSOSSÖ-IS á skilið að vera lesið, brotið til mergjar og munað.” Ströndin blá er 5. bindið í flokki bókmenntaverka handa skólum sem Ríkisútgáfa námsbókahleypti af stokk- um 1970 með útkomu Leiks að stráum eftir Gunnar Gunnarsson. Síðan hafa komið út eftirtalin verk: 1972: Kristrún i Hamravík eftir Guðmund G. Hagalín. 1975: Syrpa úr verkum Halldórs Lax- ness. 1978: Á meðal skáldfugla. Úrval úr ljóðum Tómasar Guðmundssonar. Ströndin blá er 222 bls. Prentsmiðja Hafnarfjarðar annaðist prentun og bókband og Árni Elfar teiknaði mynd- ir. SSCI Stofublóm cinkctmi • • umhirAn ■ • . * - %\ f ^ ' 1 : r. ' & Jsí ? ■ ^ rM 350 stofublóm MÁL OG MENNING hefur sent frá sér bókina 350 stofublóm eftir Rob Herwig. Óli Valur Hansson garðyrkju- ráðunautur þýddi og staðfærði. Þessi bók fjallar um öll helztu blóm sem ræktuð eru og unnt er að rækta í heimahúsum hér á landi. Fjallað er um umhirðu plantna, staðsetningu og vaxt- arskilyrði og siðan er hverju blómi helgaður sérstakur kafli ásamt yfirliti um þörf þess fyrir birtu, hita, jarðveg og vatn. í bókinni er að finna hug- myndir um hvernig koma má fyrir blómum í gluggum, kerjum og blóma- skálum, um ræktun í flöskum, vatns- rækt, gróðurvinjar á skrifstofum o.fl. Bókin er rikulega og glæsilega mynd- skreytt, m.a. litmyndir af öllum þeim blómum sem um er fjallað og henni fylgir nafnaskrá, bæði yfir íslenzk heiti blómanna og fræðiheiti þeirra. Oddi hf. annaðist setningu og filmu- vinnu, en bókin er prentuð í Hol- landi. Hún er 192 bls. að stærð. Morgcin Louis Masterson Morgan Kane: Glæfraspil í New Orleans Út er komin 29. bókin í bókaflokknum um Morgan Kane og heitir hún „GLÆFRASPIL í NEWORLEA- ANS”. Yfirvöld þurftu að grípa til sinna ráða, þegar lík Gormans lögreglustjóra fannst í Missisippi. Eitthvað hafði farið úr lagi um borð í „Confederate Queen”. Höfðu falsspilararnir sem léku lausum hala um borð í hjólabátn- um verið þar að verki? Eða áttu „Fljótarotturnar” leikinn núna, en þær voru morðingjar, sem birtust úr fenjunum og myrtu áhöfn og farþega skipanna, sem um fljótið sigldu. Morgan Kane fór til New Orleans til að Ijóstra upp um hina seku og komast að hinu rétta. Gat jafnvel maður á borð við Morgan Kane lifað af það stjórnlausa víti, sem við honum blasti?

x

Dagblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.