Dagblaðið - 21.09.1981, Side 28
28
DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 21. SEPTEMBER 1981.
1/3 sn ... 33 1/3 sn ... 33 1/3 sn . . . 33 1/3 sn . . . 33 1/3 sn . . . 33
Meat Loaf—Dead Ringer
ILULEGA
SKOTIÐ YFIR
MARKIÐ
Eitthvað virðist hafa farið úrskeiðis
að þessu sinni. Náunginn sem söng inn
á söluhæstu erlendu plötu allra tíma
hér á landi er ekki svipur hjá sjón.
Þessi spikfeiti hetjutenór sem heillaði
íslendinga jafnt sem annarra þjóða
kvikindi upp úr skónum með plötunni
Bat Out Of Hell hér um árið skýtur illi-
lega yfir markið með sinni nýjustu,
Dead Ringer. Lögin kafna næstum því
í ofkeyrslu og yfirhleðslu og rödd
hetjutenórsins Meat Loafs hefur
hrakað verulega.
Sem fyrr semur Jim Steinman öll lög
og texta á plöt'u Meat Loafs. Sjálfur
sendi hann frá sér LP plötu fyrr á árinu
sem er mun áheyrilegri en Dead Ringer.
Það læðist að manni sá grunur að
Steinman haft fyrst valið góðu lögin
handa sér og síðan leyft Meat Loaf að
moða úr afganginum.
Þó er enn átakanlegra að textarnir á
Dead Ringer eru talsvert slakari en á
Bat Out Of Hell. Þar saknar maður
fyrst og fremst leiftrandi húmorsins
sem kom hvað bezt fram i lögunum
Paradise By The Dashboard Light og
You Took The Words Right Out Of
My Mouth (it must have been while
you were kissing me!).
Ekki vantar stjörnuliðið til að koma
hljóðfæraleiknum á Dead Ringer til
skila. Roy Bittan hljómborðsleikari og
Max Winberg trommuleikari, báðir úr
E Street Band (hljómsveit Bruce
Springsteens), fara með stórt hlutverk.
Þarna er einnig Liberty De Vitto
trommuleikari Billys Joel og Davey
Johnstone gítarleikari sem lengi lék
með Elton John. Einnig bregður fyrir
liprum gítarleik Micks Ronson sem
hefur getið sér gott orð með ýmsum
stórstjörnum. Þá á bassaleikarinn
Steve Bushlowe stjörnuleik á plötunni.
Fjöldi annarra hljóðfæraleikara kemur
við sögu á Dead Ringer og er allt þetta
sessionlið í toppformi undir stjórn
Jims Steinman. Platan fellur því miður
með aðalmanninum sem er greinilega í
mikilli afturför.
Sem betur fer eru fáar hljóniplötur
alvondar. í tveimur lögum a Dead
Ringer lyftist brúnin aðeins þegar ég
renndi henni í gegn. I laginu Dead
Ringer For Love skiptist á söngur karls
og konu líkt og í Paradise By The
Dashborad Light. Að þessu sinni cr
það Cher sem syngur á móti Meat
Loaf. Einnig er hægt að umbera lagið
I’m Gonna Love Her For Both Of Us
ef nógu langt líður milli þess sem það er
sett undir nálina. önnur lög plötunnar
eru því miður talsvert fyrir neðan
meðallag.
Sjálfsagt er þetta neikvæða hugarfar
gagnvart Dead Ringer til komið vegna
þess að búizt var við einhverju miklu og
pottþéttu frá Meat Loaf. Það er gömul
saga að ef tónlistarmaður sendir frá sér
góða fyrstu plötu er ætíð erfitt að
fylgja henni eftir. Meat Loaf mistekst
það algjörlega en kannski á hann eftir
að bæta fyrir yfirhlaðna músikina með
líflegu videoshowi. En það lagar ekki
misheppnaða plötu heldur dregur frá
henni athyglina.
-ÁT-
Einar Vilberg
—Noise
Frískur
rokkarí
bankar
uppá
Einar Vilberg — Noise
Útgefandi: Tony Permo Ltd.
Upptökumaður: Rafn Sigurbjömsson
Hljóðritun: Hlust, 1981
Ég er ekki alvondur syngur Einar
Vilberg meðal annars á plötu sinni. Það
eru orð að sönnu því að hann á víða á
plötunni allgóða spretti. Stærsti galli
hennar er reyndar hljóðritunin. Átta
rása hljóðver bjóða í rauninni fyrst og
fremst upp á prufuupptökur þegar um
rokkhljómsveitir er að ræða. Ég held
líka að Studíó Hlust hafi eingöngu
þjónað prufuupptökuhlutverkinu þar
til nú er Einar tekur plötuna Noise upp
þar.
Gallarnir við að hafa ekki nema átta
rásir til að moða úr eru fyrst og fremst
þeir að sífellt þarf að vera að yfirhlaða
sumar rásirnar til að losa aðrar undir
fleiri hljóðfæri eða söng. Við slíkar
millifærslur tapast gæði. Sérstaklega á
þetta við um trommuleikinn. Ólafur
Sigurðsson, Kamarorghestur, er ekki
harður leikmaður að eðlisfari og ekki
bætir það trommuhljóminn að dempa
hann vegna fárra rása.
Nóg um upptökuna. Noise er fyrst
og fremst rokkplata. Einar fer
hefðbundnar leiðir við lagasmiðar stnar
og margt lagið á Noise er ágætlega
grípandi. — Mörg hvöss orð hafa fallið
milli listamannsins og undirritaðs um
textagerðina Bezt er að hafa sem fæst
orð um þá að þessu sinni nema hvað
þeir venjast ágætlega með aldrinum. —
Tom Pettyand the Heartbreakers—Hard Promises
PRÝÐIS ROKK ÚR
STÖÐNUÐU UMHVERFI
Sjálfsagt eru flestir búnir að gleyma
kvikmyndinni FM sem var sýnd hér á
landi fyrir nokkrum árum. Þar kom
nokkur fjöldi tónlistarmanna fram.
Þeirra á meðal var ljóshærður sláni
sem nefndist Tom Petty. Hann og
hljómsveit hans Tfle Heartbreakers
fluttu eitt lag í myndinni. Lagið Break-
down.
Þetta litla framlag Tom Petty & The
Heartbreakers rifjaðist upp fyrir mér
þegar platan Damn The Torpedos kom
út síðla árs 1979. Skemmst er frá því að
segja að platan sú fékk frábærar
viðtökur í Bandaríkjunum og víða
annars staðar um heiminn. Hér á landi
vakti hún litla athygli því miður. Þó
minnir mig að aðallag hennar,
Refugee, hafi heyrzt nokkrum sinnum í
útvarpi. Refugee var þó ekki bezta lag
Damn The Torpedos. Það var aðeins
eitt af tíu jafngóðum.
Með þessari vinsælustu LP plötu
sinni til þess tíma tókst Petty og
mönnum hans að vinna sér fjölda nýrra
aðdáenda. Enda fékk nýjasta platan,
Had Promises, prýðilegar viðtökur
þegar hún loksins kom út eftir, mála-
ferli og alls kyns tafir og leiðindi milli
hljómsveitarstjórans og útgefandans.
Helzti ágreiningur þessara aðila
tveggja var söluverð plötunnar út úr
verzlunum í Bandaríkjunum. Petty
vildi láta hana kosta dollar minna en
útgefandinn hafði ákveðið og slíkt varð
ósættið að hann neitaði að láta upptök-
una af hendi eftir að stúdíóvinnu var
lokið. Sættir tókust þó að lokum.
Hard Promises er ekki alveg jafn
sterk og Damn The Torpedos. Hún
líkist venjulegum hljómplötum: þar er
að finna sterk lög og önnur í góðu
meðallagi en ekki er hægt að segja að á
henni séu veikir punktar. Tom Petty
And The Heartbreakers hafa oft verið
sagðir standa á mörkum þess að til-
heyra nýbylgjunni. Ég hef grun um að
þá sé átt við bandaríska nýbylgju. Til
hennar teljast bönd á borð við Knach,
Cars og fleiri sem nýbylgjurokkarar
austanhafs eru sennilega ekki alveg til-
búnir að lýsa yfir samleið með.
En eigi að síður er talsvert ferskari
tónn í Tom Petty og Hjartabrjótunum
en mörgum frægari og virtari banda-
rískum hljómsveitum. Og sé haft í huga
að hljómsveitin kemur frá tónlistarlega
stöðnuðum hluta landsins þar sem
framfarir í rokki hafa tæpast orðið í
ein sjö ár þá er platan Hard Promises
verulega feitur biti. Þarna er að heyra
ágætis lög á borð við The Waiting,
Letting You Go og hið rólega You Can
Still Change Your Mind. 1 því siðast-
talda syngur Stevie Nicks, söngkona
Fleetwood Mac, bakrödd. í staðinn
kemur Tom Petty fram á nýrri sóló-
plötu hennar.
Sumsé — þótt Hard Promises slái
eldri plötuna Damn The Torpedos ekki
út að gæðum þá er hér um ágætlega
eigulegan grip að ræða. Það er vel þess
virði að leggja eyrun við Tom Petty
And The Heartbreakers. -ÁT-
Siouxsie and the Banshees-Ju Ju
Siouxsie hóar
i takt við
bumbur Budgie
Af áheyrilegum rokkurum má nefna
Just Want To Be Me, I’m Not All Bad
og Memories.
Einar Vilberg syngur öll lög plöt-
unnar og nýtur aðstoðar Rafns
upptökumanns og Maríu Helenu við
röddun. Einar hefur þægilega söng-
rödd en að mínum dómi nýtur hún sín
betur i rólegri tónlist en rokki. Ég hefði
kosið að í hljóðblöndun hefði rödd
Einars verið höfð framar en gert var, I
sumum lögum alla vega.
Hljóðfæraleikur á Noise er allur
pottþéttur. Einar knýr gítar sinn frísk-
lega og Þorsteinn Magnússon Þeysari
sér um sólóin. Jón Ólafsson Startari
leikur á bassa og stendur sig vel að
vanda. Ólafur Sigurðsson trommar
lipurlega en það hefði mátt heyrast svo
sem þrisvar sinnum betur í honum.
Einar Vilberg hefur dvalið lang-
dvölum erlendis og orðið fyrir alls kyns
tónlistarlegum áhrifum þar. Sennilega
er það skýringin á því að hann er ekki
fallinn í sömu værð og margir jafn-
aldrar hans sem voru að bítlahljóm-
sveitast hér um árið. Það er frískur
blær yfir Noise. -ÁT-
Tormeltar plötur eru oftast skemmti-
legar. Við fyrstu hlustun virðast þær
ægilegar, þótt einn og einn ljós punktur
finnist inn á milli, en eftir þvi sem þær
fá að snúast oftar á grammófóninum
vaxa þær í áliti. Síðan gerist annað
tveggja, hlustandinn verður hundleiður
á plötunni eða yfir sig hrifinn.
Nýjasta plata Siouxsie and the
Banshees, Ju, Ju, er gott dæmi um
skífu af þessu tagi. Hún virðist betri og
betri við hverja hlustun og loks er hún
hefur verið fullmelt viðurkennir hlust-
andinn fyrir sjálfum sér að Ju Ju sé
alveg skratti góð plata.
Ju, Ju er fjórða plata Siouxsie og
félaga og ein sú albezta. Söngur Sioux-
sie er góður þótt á stöku stað vanti
meiri kraft í röddina. Stíll hennar er
sérstakur, hún hóar líkt og smali i
göngum milli erinda laganna, í stað
þess að syngja yeh, yeh eða eins og
Barry White mundi gera, stynja oooh,
aha babe. Eini ljóðurinn á söng hennar
er hve skuggalega hún minnir á sænsku
dömurnar í ABBA í laginu Into the
Light. En það er smáatriði.
Undirleik, ef svo má komast að orði,
annast John McGeoch gítarleikari,
Steven Severin bassaleikari og Budgie á
trommurnar og ferst þeim það vel úr
hendi. McGeoch var í Magazine áður
en hann söðlaði um og gekk til liðs við
Siouxsie. Sennilega er hann einhver sér-
stæðasti gítarleikari sem fram hefur
komið frá því Fripp var upp á sitt
bezta. Hljóðin sem hann nær út úr
slaggigjunni eru lygileg og mynda gott
mótvægi við söng Siouxie. Bassinn og
trommurnar skapa þunga og dynjandi
takta, jafnvel einum of áhrifamikla og
gefa tónlistinni drungalegt yfirbragð.
Útkoman verður einhvers konar sam-
bland af draugalegri tónlist og ógnvekj-
andi vélmennatónlist eins og lagið
Monitor er gott dæmi um.
Textar Siouxsie og Severin eru mis-
jafnir. Sumir eru sáraeinfaldir og er Sin
in My Heart gott dæmi um það. Aðrir
eru flóknir og má nefna I því sambandi
Headcut þar sem gálgahúmorinn er alls
ráðandi. En flestir eru þeir vel fyrir
ofan meðallag.
Lögin eru hvert öðru betra og erfitt
að taka eitt fram yfir annað. Til mála-
mynda skulu hér nefnd sem beztu lög,
Spellbound, Voodoo Dolly og Night
Shift. f heildina sem sagt ljómandi
plata sem sýnir og sannar að Siouxsie
and the Banshees er komin í alfremstu
röð.
-SA.
33 1/3 sn . 33 .1/3 sn . . 33 1/3 .33 1/3 sn . . . 33 1/3 sn . . . 35 1/3 sn
■ I ............................— ■/■■■■)III ■ I H .................................................!■■■!■ ——— III !■ ■IIJMII — ————^