Dagblaðið - 21.09.1981, Page 32
Hægri mynda minnihlutastjórn í Noregi:
Meirihlutastjóm strand-
ar á föstureyöingamálinu
— sem gæti sprungið hvenær sem er
minnihlutast jórn Willochs tekur við völdum 13. október
Frá Sigurjóni Jóhannssyni frétta-
ritara DB í Osló:
Á föstudag slitnaði upp úr
stjórnarmyndunarviðræðum Kristi-
lega flokksins, Miðflokksins og
Hægriflokksins. Kristilegir komu
með málamiðlun í fóstureyðingamál-
inu, en Hægri hafnaði henni alfarið.
Tillagan gekk í þá átt aö sú kona
sem vildi fá fóstureyðingu yrði að
gera þaö í samráði við tvo lækna.
Talsmenn Hægri sögðust ekki geta
lagt fram nýtt frumvarp í þessu máli
þar sem landsfundur hefði ákveðið
að allir þingmenn hægri mættu taka
sjálfstæða ákvörðun í þessu langvar-
andi hitamáli norskra stjórnmála.
Hægri munu þá mynda minni-
hlutastjórn undir forsæti Káre Will-
och. Vitað er þegar að Rolf Presthus
verði fjármálaráðherra, Lars Roald
Langslet utanrikisráðherra. Jo
Benkow, sem er formaður flokksins,
mun verða þinglegur leiðtogi flokks-
ins en ekki taka sæti i ríkisstjórn.
Talsmenn Kristilega flokksins hafa
sagt að þeir hafi búizt við meiri sam-
starfsvUja af hálfu Hægri og telja að
Hægri hafi frá byrjun haft meiri
áhuga á minnihlutastjórn en stjórn
þriggja flokka. Káre WiUoch sagði
strax eftir kosningarnar að ekki yrði
hægt að mynda þriggja flokka stjórn
með fóstureyðingamáUð óafgreitt
eins og bombu sem gæti sprungið
hvenær sem er.
Ljóst er að engin gleði ríkir í her-
búðum Kristilega flokksins og Mið-
flokksins, en talsmenn flokkanna
segjast nú hefja viðræður um hvernig
þeir geti bezt stutt Hægri á þingi og
forðazt frekari árekstra.
Talsmenn Verkamannaflokksins
eru ánægöir yfir þessum óförum og
verða sennilega hinir hressustu í
stjórnarandstöðu.
Káre WUloch lofaði umtals-
verðum skattalækkunum og skatta-
umbótum fyrir kosningar en leggur
áherzlu á að Hægri geti ekkert gert í
þessu máli af neinni alvöru fyrr en
næsta haust, vegna þess að hann
verði að taka við fjárlagafrumvarpi
frá Verkamannaflokknum í byrjun
október og geti ekki lagt fram eigið
fjárlagafrumvarp fyrr en eftir ár.
Gert er ráð fyrir að rUcisstjórn Káre
Willoch taki við völdum 13. október.
-JR/SJ, Osló.
Fjórirný-
irprestar
vígðir
— Herra Sigurbjöm
Einarsson hefurnú
vígt85 presta
Biskup Islands, herra Sigurbjörn
Einarsson, vígði fjóra guðfræðikandi-
data til prests í Dómkirkjunni i gær.
Þar á meðal voru tvær konur og hefur
kvenprestum í landinu því fjölgað um
helming. Með þessari vígslu hefur herra
Sigurbjörn vígt 85 presta á sinni 22ja
ára biskupstíð.
Nýju prestarnir eru Agnes M. Sig-
urðardóttir sem ráðin hefur verið
æskulýðsfulltrúi kirkjunnar frá 1.
október, Guðni Þór Ólafsson sem
gegna mun farprestsþjónustu í Stykkis-
hólmi, Hanna María Pétursdóttir sem
sett hefur verið prestur að Ásum í
Skaftártungum og Kristinn Ágúst Frið-
finnsson sem settur hefur verið prestur
að Suðureyri við Súgandafjörð.
Á myndinni má sjá nýju prestana
eftir vígsluna í gær ásamt herra Sigur-
birni Einarssyni, vígsluvottunum, sr.
Ólafi Skúlasyni, sr. Árna Pálssyni, sr.
Tómasi Guðmundssyni, sr. Gísla Kolb-
eins og sr. Davíð Baldurssyni sem lýsti
vígslunni og sr. Hjalta Guðmundssyni
dómkirkjupresri sem annaðist altaris-
þjónustuna. -ELA.
DB-mynd: BJarnleifur.
Fimm menn björguðust er Fálkinn frá Tálknafirði sökk við Látrabjarg:
„ÆGILEGUR BROTSJÓR,
ALVEG HRYLULEGUR”
— rétt hitti í gúmbátinn, lenti hálf ur útbyrðis og Fálkinn sökk um leið,
segirskipstjórinn
„Við fengum á okkur mikinn brot-
sjó, á bakborðskinnunginn. Við það
lagðist báturinn á stjórnborðskinn-
unginn,” sagði Níels Ársælsson,
skipstjóri á Fálkanum BA-309 frá
Tálknafirði. Hann lenti ásamt áhöfn
sinni í miklum mannraunum við
Látrabjarg i fyrrakvöld.
„Þetta var ægilegur brotsjór, alveg
hryllilegur. Dallurinn hvarf í brotsjó-
inn, trollið fór allt út fyrir, öll loftnet
slitnuðu og mikill sjór komst í vélar-
rúmið. Skipið varð rafmagnslaust og
mikill reykur gaus upp.
Okkur tókst að rétta bátinn við
aftur. Ekki hafði drepizt á vélinni og
okkur tókst að snúa við og halda til
baka úr röstinni og suður fyrir bjarg-
ið. Við vorum með þrjár dælur í
gangi en þær höfðu ekki undan. Ekki
var sjáanlegt neitt gat en það
hækkaöi stöðugt í bátnum.
Fljótlega eftir að þetta gerðist
hafði ég samband við síðutogarann
Ingólf úr Garðinum sem lá undir
Hænuvikurbjargi. Ég kallaði i hann
um kl. 19.45 og hann var kominn til
okkar um kl. hálfníu. Þá vorum við
staddir um 3,6 sjómílur sunnan við
Bjargtanga. Þá var kominn það
mikill halli á bátinn að við þorðum
ekki að beygja og fá vindinn i bak-
borðshliðina. Það voru þarna 10—11
vindstig, ofsasjór og mikið særok.
Ingólfur fylgdi okkur upp undir
bjargið, eins togarinn Apríl frá Hafn-
arfirði. Þegar við vorum tvær milur
frá bjarginu taldi ég ekki þorandi að
hafa alla um borð. Ég sendi því þrjá
menn og skipshundinn með gúmbát
yfir í Ingólf. Urðum við eftir, ég og
stýrimaðurinn, Ólafur Ingimarsson.
Þetta var um kl. 21.
Við héldum áfram að nálgast
bjargið í von um að komast í meira
skjól. Þegar við vorum um eina milu
frá því, byrjaði báturinn skyndilega
að hallast mjög mikið. Þetta var um
kl. 21.30. Báturinn hreinlega datt á
hliðina og við höfðum engan tíma til
að kalla í talstöðina og láta vita. Við
komum hinum gúmbátnum út,
þurftum að klífa upp á kjölinn til að
stökkva yfir í gúmbátinn. Ólafur
stökk á undan og svo ég. Fálkinn
sökk um leið og ég kastaði mér í
gúmbátinn. Ég rétt hitti í gúmbátinn,
var hálfur úti fyrir. Það var rétt svo
að okkur tókst að skera á línuna og
losa gúmbátinn frá.
Ingólfur kom keyrandi að og Apríl
lýsti upp svæðið með sterkum köstur-
um. Þeir sáu þegar báturinn fór
niður. Við vorum svo teknir um borð
i Ingólf,” sagði Níels Ársælsson.
Togarinn Ingólfur lá í vari undir
Látrabjargi fram til morguns. Skip-
brotsmennirnir voru síðan fluttir til
Tálknafjarðar og þangað var komið
um kl. 10 um morguninn.
Auk Níelsar skipstjóra, sem er 22
ára, voru um borð Tryggvi Ársæls-
son, 16 ára, bróðir Níelsar, Ólafur
Ingimarsson stýrimaður, 22 ára, allir
Tálknfirðingar, Óskar Aðalsteins-
son, 21 árs vélstjóri frá Akranesi,
Baldvin Ragnarsson, 28 ára bryti úr
Vogum á Vatnsleysuströnd og skips-
hundurinn Dollý. Varð engum meint
af volkinu.
Fálkinn var 70 tonna eikarbátur,
smíðaður i Svíþjóð árið 1957 en
mikið endurbættur árið 1974. Þegar
hann fékk á sig brotsjóinn var hann
að koma af veiðum fyrir sunnan
Látrabjarg og var með 7 tonna afla.
-KMU.
Óveðrið á Vestfjörðum
á laugardag:
Tveir bátar
slitnuðu
upp á
Brjánslæk
Versta veður gekk yfir Vestfirði á
laugardag. Einkum varð nyrðri hluti
kjálkans illa fyrir barðinu á veður-
hamnum. Mældust vindhviðurnar allt
upp í 70 hnúta í verstu hviðunum.
Fylgdi óveðrinu slydda og snjókoma
allt niður í byggð, t.d. á Isafirði.
Veðurhamurinn var slíkur að grískt
skreiðarflutningaskip, sem var á leið til
Reykjavíkur frá Patreksfirði, taldi
þann kost vænstan að snúa við eftir
stutta siglingu. Þá slitnuðu tveir
hrefnubátar upp frá Brjánslæk í óveðr-
inu. Eftir því sem næst verður komizt
urðu hvergi nein slys á mönnum.
Fjallvegir lokuðust víða á norður-
kjálkanum en ekki er kunnugt um
neina verulega hrakninga fólks þar
nema hvað ísafjarðarlögreglan hjálp-
aði tveimur bílum síðasta spölinn yfir
Breiðadalsheiði. Suðurhluti kjálkans
slapp hins vegar öllu betur frá veðrinu
og á Patreksfirði létu menn sig ekki
muna um að skáskjóta sér á milli húsa
á laugardagskvöld til aö fara á
diskótek. Hljómsveitin, sem leika átti
komst hvergi vegna veðurofsans .
-SSv.
í VIKU HVERRI
Vinningur vikunnar:
Crown-sett
frá Radíó-
búðinni
Vinningur I þessari viku er
Crown-sett frá Radíóbúðinni,
Skipholti 19.1 vikunni verður birt,
á þessum stað i blaðinu, spurning
tengd smáauglýsingum Dag-
blaðsins. Nafh heppins áskrifanda
verður síðan birt daginn eftir i
smáauglýsingunum og gefst honum
tœkifœri til að svara spurningunni.
Fylgizt vel með, áskrifendur. Fyrir
nœstti helgi verður einn ykkar
glœsilegum hljómflutningstœkjum
ríkari.
hressir betur.