Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands


Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands - 03.03.1959, Page 5

Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands - 03.03.1959, Page 5
Séu ársmeðaltöl þessi borin saman við áburðarhlutföllin hjá nágrannaþjóðum okkar á Norðurlöndum, sést, að hlut- fallstalan fyrir fosfór er um það bil helmingi lægri hér á landi og hlutfallið fyrir kalí hér er i/s móts við hlutfalls- tölu þessara landa. Móti hverri þungaeiningu köfnunar- efnis verða hlutföllin fyrir fosfór og kalí þessi: N p K Danmörk 1.00 0.48 1.45 Finnland 1.00 0.40 0.96 Noregur 1.00 0.42 0.98 Svíþjóð 1.00 0.56 0.87 Island 1.00 0.22 0.28 Enda þótt þessi hlutföll komi nágrannaþjóðuni okkar einkennilega fyrir sjónir, miðað við þeirra tilraunir og reynslu, þá eru allmörg samverkandi atriði, sem réttlæta meiri notkun köfnunarefnis hér á landi, heldur en hjá þeim. Því nær öll gróðurframleiðsla okkar miðast við ræktun fóðurjurta, en hjá þessum þjóðum er korn- og frærækt lið- ur í framleiðslunni. Sú framleiðsla gerir aðrar kröfur til hlutfallsins milli köfnunarefnis og steinefnanna. í fóður- jurtaræktuninni hjá þeiim, einkum í Danmörku og Mið- og Suður-Svíþjóð, einnig í Noregi og Finnlandi, er lögð áherzla á ræktun belgjurta, er sjálfar sjá fyrir köfnunarefnisþörf- inni vegna samlífs þeirra og köfnunarefnissafnandi baktería. Hinn lági jarðvegshiti hér um gróðurtímabilið veldur því, að köfnunarefnissamböndin í jarðveginum breytast mjög hægt og nýtast því gróðrinum seinna hér en í þess- um löndum. Þrátt fyrir þetta verður að telja það varhugavert að halda áfram, sem horft hefur hin siðustu ár, að auka köfnunar- efnisgjöfina, dn þess að tilsvarandi aukning verði d öðrum

x

Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands
https://timarit.is/publication/268

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.