Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands


Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands - 03.03.1959, Síða 30

Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands - 03.03.1959, Síða 30
110 um að kynna sér þá reynslu, er búið var að afla af mikilli elju. Nú kann einhver að segja, að Garðyrkjuskóli ríkisins hafi komið í stað Gróðrarstöðvanna, og vera má, að til þess hafi verið ætlazt, þegar liann var stofnaður, en nú, eftir að þessi skóli hefur starfað í áratugi, mætti öllum ljóst vera, að skóli sá hefur einhæft starf sitt við ilræktunina og sjálfsagt leyst mikið og tímabært hlutverk í þeirri starfsgrein, en fyrir leiðbeiningar og framvindu í hinni almennu garð- yrkju í landinu hefur hann verið vita áhrifalaus, og úr þessu verður ekki bætt fyrr en komið verður upp á hentug- um stað öflugri garðyrkjustöð, ásamt skóla og námskeiðum, er hefur það hlutverk að efla hina almennu garðyrkju, í köldum jarðvegi, á hinum dreifðu bústöðum víðs vegar um landið, og sú stöð þarf að vinna á hliðstæðan hátt og gömlu gróðrarstöðvarnar, aðeins mi'klu meira og við hagstæðari skilyrði. Þaðan eiga að koma leiðbeinandi menn í garð- yrkju, garðjurtir til útplöntunar og uppeldis og aukin reynsla og þekking. Ég skal viðurkenna, að einn þáttur garðyrkju hefur tekið nokkrum framförum á undanfömum ámm, en það er upp- eldi á vorin á plöntum af nokkrum matjurtum, svo sem káltegundum og einnig á nokkrum blómjurtum. Þetta hef- ur orðið fyrir tilverknað einstakra garðyrikjustöðva, er rekn- ar eru á hreinum atvinnugrundvelli, en þetta er engu að síður gott og virðingarvert svo langt sem það nær. Ef nú einhverjir kynnu að álíta, að við höfum ráðunauta í hverju héraði, er ættu að geta annað þessum verkefnum, búnaðarskóla er ættu að geta kennt þessa grein jarðræktar eins og aðrar og margar skógræktarstöðvar, er ættu líka að geta annazt plöntuuppeldið, þá held ég þeir hinir sömu verði að endurskoða allan sinn þankagang. Frá þessum upp- sprettum þarf garðyrkjan ekki að vænta mikils og ekki frá karlmönnunum vel flestum, þótt heiðarlegar undantekn- ingar megi finna. Þeir eru flestir enn þá staddir á því frum-

x

Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands
https://timarit.is/publication/268

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.