Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands


Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands - 03.03.1959, Side 12

Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands - 03.03.1959, Side 12
92 Finnland 351.000 26 Norður-írland 80.000 26 Vestur-Þýzkaland . . . . 1.450.000 25 Frakkland 2.200.000 23 Noregur 136.000 21 Skotland 95.000 17 Kanada 470.000 9 Nýja-Sjáland 176.000 9 (Hliðstæðar tölur hérlendis líklega ca. 7000 og 20%. Ó. J.) Samanborið við sum önnur lönd er fjöldi sæðinga í Noregi lítill en í hröðum vexti og má því ætla, að hann komist brátt í flokk hinna fremstu landa í þessum efnum, og kynbótalega séð er þýðing sæðinganna þar nú þegar mun meiri, en þýðing sveita- eða félagsnautanna, sem hefur fækk- að úr 2254 árið 1939 niður í 1091 árið 1958. Svo nú fá að- eins 13.9% af kúnum kálf við félagsnauti og mun ekki fjarri lagi að 1959 hafi helmingi fleiri kýr fengið kálf við sæðingu en við félagsnauti. Þessar staðreyndir sýna, að viðleitnin til að auka afurða- hæfni kúnna verður fyrst og fremst að byggjast á sæðingum. Hin mikla aukning sæðinga hefur í raun og veru ekki haft í för með sér ný, óþekkt kynbótaleg viðfangsefni, en stærðarhlutföll viðfangsefnanna liafa breytzt. Sum viðfangs- efni hafa orðið auðveldari, svo sem að fullreyna nautin, sem notuð eru til kynbóta, og að nýta sem bezt kynbóta- hæfni góðra nauta. Önnur viðfangsefni hafa orðið vanda- meiri, svo sem að áætla kynbæturnar fram í tímann. Fyrst og fremst þarf að haga kynbótastarfinu þannig, að sem bezt- ur árangur náist af þeim kynbótalegu yfirburðum, sem sæðingunum fylgja, en fram að þessu hefur aðeins að litlu leyti verið tekið tillit til þeirra kynbótalegu afleiðinga, sem sæðingarnar hafa umfram hina eldri tilhögun. Þetta er hlið- stætt því að taka dráttarvél í þjónustu sína og nota hana til þess að draga hestatæki.

x

Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands
https://timarit.is/publication/268

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.