Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands - 03.03.1959, Blaðsíða 25
105
við okkar staðhætti og aðstæður. Því verður varla neitað, að
við höfum þegar náð allgóðum árangri og að líkurnar fyrir
aukinum árangri og bættu öryggi í kynbótastarfinu hefur
vaxið mikið síðustu árin með tilkomu sæðinga og afkvæma-
rannsóknastöðva. Þær línur starfsins, er ég hef hér markað,
geta ekki fylgt nákvæmlega fræðilegum kenningum, en
þrátt fyrir það er ástæðulaust að örvænta um árangur.
Kenningar eru róðar en ekki ætíð hagkvæmar í framkvæmd,
og framkvæmd getur oft borið góðan árangur, þótt hún
þræði ekki nákvæmlega meira og minna óraunhæfa slóð
kenninganna.
Sæðing kúa hjá S. N. E.
Sæðing kúa hefur nú verið framkvæmd hjá sambandi nautgriparækt-
félaga Eyjafjarðar í 14 ár með góðum árangri. Um fyrstu árin eru ekki
til nákvæmar skýrslur, en smávegis byrjunarerfiðleikar gerðu þá vart
við sig, en síðastliðin átta ár hefur árangurinn í stórum dráttum orðið
þannig:
Ár Kýr teknar Fengu kálf Fengu kálf Fengu kálf Sæðingar
til meðferðar alls við 1. sæðingu alls á keltda kú
1952 ca. 1800 1528 70.1% 84.9% 1.57
1953 1733 1531 70.2% 88.3% 1.47
1954 2016 1795 70.7% 89.0% 1.48
1955 1913 1736 72.7% 90.7% 1.40
1956 2423 2189 71.1% 90.3% 1.49
1957 2970 2745 70.6% 92.4% 1.46
1958 3130 2933 72.4% 93.7% 1.42
1959 3400 3233 71-7% 95.1% 1.42
Þegar litið er á þessar tölur sést, að sæddum kúm fer fjölgandi ár frá
ári, að frjósemi kúnna hefur ekki farið hnignandi á þessu tímabili
heldur fremur hið gagnstæða. Fjöldi kúa, sem heldur við 1. sæðingu, er
áþekkur öll árin og þó heldur vaxandi, en kúm, sem fengið hafa kálf
alls, hefur fjölgað verulega og sæðingum á kú fækkað.
(Framhald á bls. 1)2).