Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands


Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands - 03.03.1959, Síða 29

Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands - 03.03.1959, Síða 29
109 hliðstæðum matjurtum eða öðru matarefni. All víða eru líka skilyrði til þess að framleiða garðjurtir til sölu fyrir góðan pening, og jafnvel þótt garðyrkja sé með því sniði, að hún verði hvorki bein eða óbein tekjulind, svo sem skrúð- garðarækt, hefur hún sitt gildi, menningargildi, þroskagildi og uppeldisgildi, sem við þó svo aðeins getum greint, að við hættum að hafa verðlausar, falskar krónur fyrir okkar eina sanna guð. Einhverjum kann að finnast þetta öfgar, en hvað veldur því þá, að þrátt fyrir talsverðan áróður í ræðu og riti og þó nokkra verklega kennslu og leiðbeiningar um áratuga bil, hefur garðyrkju hér hreinlega farið hnignandi síðustu árin, og undanskil ég þá ilræktunina, sem er sjálfstæður búrekst- ur, eðlilega mjög staðbundinn og kemur almennri garð- yrkju, á heimilum í bæ og í sveit, ekki mi'kið við beinlínis. Sjálfsagt eru orsakirnar til hnignunarinnar fleiri en stór- mennska og merkilegheit. Fyrst og fremst má nefna gróðrarstöðvamar gömlu í Reykjavík og á Akureyri eru úr sögunni sem uppeldis- og kennslutæki og með þeim garðyrkjukennsla sú, er þær héldu uppi um langt skeið, ásamt uppeldi á garðjurtum ýmiss konar og útvegun á trjá-, blóma- og matjurtafræi. Þessi starfsþáttur var aldrei mjög fyrirferðamikill en þó ekiki ómerkur. Margar þeirra stúlkna, er sóttu námskeiðin í þessum stöðvum, leiðbeindu í garðyrkju um lengri eða skemmri tíma, og það var ómælanlegt hagræði bæði fyrir þær og fjölmarga aðra að geta fengið frá þessum gróðrar- stöðvum plöntur af trjám, runnum og blómjurtum, er vitað var, að hér gátu þrifizt, og fræ af garðjurtum er stöðvarnar höfðu reynt í mörg ár með góðum árangri. Þegar þessi þjón- usta féll niður kom ekkert í staðinn. Það var ekki einungis, að það uppeldi og sú þjónusta, er stöðvarnar höfðu veitt, félli niður, heldur glataðist einnig að nokkru sú þekking, er þær höfðu aflað, er við pliintuuppeldi og fræverzlun tók fólk, er bar takmarkaða þekkingu á þá hluti og ekki hirti

x

Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands
https://timarit.is/publication/268

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.