Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands


Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands - 03.03.1959, Síða 32

Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands - 03.03.1959, Síða 32
112 Hér að framan hef ég vikið að því, að lítils stuðnings megi vænta frá karlmönnum í þessum efnium og að kven- þjóðin verði að hafa frumkvæðið. Hitt ætla ég þó, að ef kvenfólkið sýnir nógan áhuga og einbeitni í þessutn efnum, þá muni karlmennirnir drattast með og leggja fram það, er til þarf, sem er land, fé og kraftar en ekki kunnáttuna, því enginn getur látið það, sem hann ekki á, en það er sú hlið málsins, sem kvenþjóðin, samtök kvenna og skólar, eiga að byggja upp og svo að sjálfsögðu hagkvasmt og viðhlítandi leiðbeiningarkeríi. Þegar þetta er fengið þá mun annarri fyrirstöðu fljótlega rutt úr vegi. Borgar garðyrkja sig? Þessari spurningu hefur þegar ver- ið svarað að nokkru hér að framan, en henni mætti svara miklu ýtarlegar. Menningarleg og heilsufræðileg þýðing hennar verður vafalaust létt á metunum hjá þeim aurasál- um, sem allt miða við peninga, en jafnvel þeirra mat stenzt garðyrkjan vel, ef rétt er á haldið. Garðyrkja, sem miðuð er við þarfir heimila á grænmeti, kostar sáralítið. Aðeins dá- litla garðholu, vinnslu hennar, áburð og örlítið fræ. Vinn- an við slíkan garð er meira skemmtun og tilbreyting en út- lagður kostnaður, er reikna þarf til verðs, en jafnvel þótt allt sé reiknað, þá getur slíkur garður miðað við stærð, skil- að meiru verðmæti og næringargildi, heldur en nokkur önnur ræktun og með minni fyrirhöfn en nokkur önnur framleiðsla. Takmark landbúnaðar yfirleitt er að framleiða fæðu og með þeim nettóarði, að þeir, sem framleiðsluna stunda, geti af honum lifað á sttmasamlegan hátt. Þetta fæst auðveldast og umsvifaminnst með garðyrkju og grænmetis- rækt að því marki, sem slík framleiðsla getur fullnægt þörf- um okkar, og því meira sem við leggjum ókkur frant við þessa ræktun og því fjölbreyttari sem við gerum liana, því meiri hluti af fæðu okkar getur hún orðið. En svo er önnur hlið á þessu máli. Framleiðsla íslenz.ks landbúnaðar er tiltölulega einhæf og vegna erfiðra útflutn- ingsskilyrða er svigrúmið til útþenslu lítið, nema ný fram-

x

Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands
https://timarit.is/publication/268

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.