Búnaðarsamband Austurlands - 01.01.1958, Qupperneq 11
13
Vetrarvinnan skiptist aðallega milli eftirtalinna verkefna.
1. Eftirlitsferðir í fjárræktarfélögin. Ég íerðaðist milli
allra starfandi félaga í Suður-Múlasýslu, að undanskildu
félaginu í Breiðdal, ásamt einum eða tveimur mönnum úr
stjórn félaganna. Völdum við ær til viðbótar í félögin, eink-
um úr yngri ánum og litum eftir félagsstarfinu um leið. Ég
mætti á stofnfundum tveggja sauðfjárræktarfélaga (í Norðf.
og Egilsstaðahr.) og aðstoðaði auk þessa við stofnun félags
í Fáskrúðsfjarðarhreppi. Ég valdi fjárstofn í tvö af þessum
félögum (Norðfj. og Egilsstaðahr.) ásamt stjórnarmönnum
þessara félaga. Þessi nýstofnuðu félög sitja fyrir aðstoð næsta
haust ásamt félaginu í Breiðdal.
2. Jarðabótaskýrslur. Ég gerði jarðabótaskýrslur fyrir Suð-
ur-Múlasýslu, og hefur afrit af þeim verið sent til Búnaðar-
félags Islands og formanna í viðkomandi búnaðarfélögum.
3. Skýrslur sauðfjárrœktarfélaganna. Ég gerði yfirlits-
skýrslur fyrir félögin í Vallahreppi, Beruneshreppi og Jökul-
dal og vann auk þess nokkuð úr skýrslum allra félaganna á
sambandssvæðinu.
4. Skýrslur nautgriparcektarfélaganna. Ég gerði upp kúa-
skýrslur fyrir nautgriparæktarfélögin í Hjaltastaðaþinghá,
Eiðaþinghá og Skriðdal. Afrit af skýrslunum hefur verið
sent til Búnaðarfélags íslands og formanna viðkomandi
félaga.
5. Ársritið. Að undirbúningi þessa ársrits höfum við ráðu-
nautarnir unnið eftir að áðurnefndum störfum var lokið og
hefur farið í það alllangur tími. I ritinu eru aðallega birtar
niðurstöður úr skýrslum, sem unnið hefur verið úr.
Hér að framan hefur verið drepið á stærstu og fyrirferð-
armestu verkefnin, sem ég hef unnið að á þessu tímabili, en
auk þeirra eru ýmis störf, sem ekki hafa tekið eins mikinn
tíma, svo sem bréfaskriftir, viðtöl, fundirferðir, fitumæling
á mjólk, ýmsar mælingar o. fl.
Á því tímabili, sem ég hef starfað hjá B. S. A. hefi ég
komið í allar sveitir á sambandssvæðinu, að undanskildum