Búnaðarsamband Austurlands - 01.01.1958, Síða 16
18
samstarf við veiðimálastjóra um fiskirækt á vatnasvæði
Búnaðarsambands Austurlands."
2. Tillögur frá Búfjárræktarnefnd voru þessar:
a) Um héraðssýningu á sauðfé var samþykkt samhljóða
eftirfarandi tillaga:
„Fundurinn lýsir ánægju sinni yfir væntanlegri
sauðfjársýningu á sambandssvæðinu og leggur áherzlu
á að hún fari fram svo snemma sem föng eru á og
ekki síðar en um miðjan október."
b) Svohljóðandi tillaga var samþykkt í einu hljóði:
„Fundurinn beinir því til fulltrúa fundarins, að
þeir vinni að því hver í sínum hreppi, að væntanleg
hrossasýning verði vel sótt. Einnig stuðli þeir að því,
að menn, sem eiga góðhesta, komi með þá á fjórðungs-
mótið og tilkynni það í tíma, svo að hægt sé að skrá-
setja þá.“
c) Um samanburðartilraunir með sauðfjárstofna var
samþykkt svohljóðandi tillaga:
„Fundurinn lýsir ánægju sinni yfir þeirri byrjun á
samanburði á sauðfjárstofnum, sem hafin er á Skriðu-
klaustri, og væntir framhalds á því. Jafnframt felur
fundurinn stjórn sambandsins að leita til Tilrauna-
ráðs búfjárræktar, um að það leggi fram fé, til að
fullkomna þessa tilraun, með því að fjölga kindum í
hverjum tilraunaflokki um helming."
3. Mál frá Jarðræktarnefnd voru þessi:
a) Svohljóðandi tillaga um aukna sókn í jarðræktarmál-
um var samþykkt samhljóða:
„Fundurinn telur að enn þurfi að herða sóknina til
aukinnar ræktunar á sambandssvæðinu og aukins hey-
skapar. Vill fundurinn brýna það fyrir sambandsstjórn
að auka nú mjög þjónustu ráðunautanna, er þeir
verða tveir, við að gera ræktunaráætlanir fyrir hvert
býli og hvert búnaðarfélag á sambandssvæðinu. Jafn-
framt stuðli sambandsstjórnin eftir megni að því, að