Búnaðarsamband Austurlands - 01.01.1958, Page 40
42
Sauðjjárrœktarfélag Borgarfjarðar.
Það er annað af tveim elztu fjárræktarfélögunum í Múla-
sýslum, ásamt Sauðfjárræktarfélagi Breiðdæla, stofnað 1953.
Það hefur því skilað skýrslum í 4 ár. Félagsmenn hafa verið
16—18 og skýrslufærðar ær 221—369. Formaður félagsins
hefur verið og er Björn Jónsson, Geitavík.
Félagsskapurinn hefur verið rekinn af dugnaði og áhuga.
Meðaltal af reiknuðum kjötþunga eftir hverja skýrslufærða
á og eftir hverja á sem kom upp lambi einstök ár hefur
verið, sem hér segir:
Eftir ;í, sem kom
Eftir á: upp lantbi:
1054 ........................ 16.9 kg 17.7 kK
1955 ....................... 20.4 - 21.5 -
1956 ....................... 19.4 - 20.6 -
1957 ....................... 20.8 - 21.8 -
Félagið hefur alltaf verið meðal þeirra félaga á sambands-
svæðinu, sern fengið hafa mestar afurðir. Fóðrun virðist þar
þó síður en svo vera betri en annars staðar. Ærnar hafa
venjulega léttst yfir veturinn. Mest veturinn ’54—’55 1.9 kg.
I Borgarfirði hefur lengi verið talinn fremur góður fjár-
stofn. Ærnar eru fremur stórar, nokkuð háfættar 02: s;róf-
byggðar, en holdsemi sæmileg og afurðahæfni sennilega
mikil. Stofninn virðist búa yfir frjósemi og mjólkurlagni.
A síðari árum hafa Borgfirðingar keypt mikið af hrútum
til kynbóta frá fjárræktarfél. Þistli í Þistilfirði og nú eru
flestir félagshrútar þeirra hreinræktaðir eða blendingar af
Þistilfjarðarstofni. Enn er ekki komið fullkomlega í ljós
hvort þessi kynblöndun verður fjárrækt Borgfirðinga til
verulegs framdráttar. Líklegt má þó telja að bygging fjárins
batni eitthvað við þessa blöndun. En skaði væri það, ef
gamla, borgfirzka fjárstofninum verður ekki haldið hrein-
um að einhverju leyti, minnsta kosti þangað til afurðahæfni
hans hefur verið reynd. En eins og kunnugt er stendur nú