Búnaðarsamband Austurlands - 01.01.1958, Side 45
47
er að hagkvæmt myndi vera fyrir Fellamenn að reyna meira
kynblöndun með aðfluttum lirútum og þá frá fleiri stöðum.
Hinar ört vaxandi afurðir félagsánna í Fellum spá góðu
um, að mikill árangur muni verða þar af félagsstarfinu.
Sauðfjárrcektarjéiag Tunguhrepps.
Það var stofnað snemma á árinu 1955. Fyrsta árið, sem
félagið starfaði skiluðu 17 félagsmenn skýrslum en voru
orðnir i8 á síðasta starfsári þess. Skýrslufærðar ær voru
fyrsta árið 182 en voru orðnar 305—(—3 veturgamlar sl. ár.
Formaður félagsins hefur verið og er Þráinn Jónsson, Gunn-
hildargerði. Reiknaður kjötþungi þau ár, sem skýrslur ná
yfir, hefur að meðaltali verið sem hér segir:
F.ftir á, sem kom
Eftir á: upp lambi:
1955 ......................... 15.2 kg 16.9 kg
1956 ........................ 15.7 - 17.7 -
1957 ........................ 16.6 - 17.7 -
Mestum afurðum að meðaltali hafa ær Sigurðar Halldórs-
sonar, Brekkuseli. skilað á þessu tímabili 18.6 kg. af kjöti
hver ær en 19.6 kg. af kjöti hver ær, sem komið hefur upp
lambi.
Garnaveikin lék fjárstofn Tungumanna harðara en fjár-
stofn flestra eða allra annarra sveita. Þegar fjárræktarfél.
var stofnað hafði um nokkurra ára skeið verið sett á, svo að
segja hvert gimbrarlarnb, til að fylla í þau skörð, sem í
fjárstofninn hafði verið höggvið. Sá stofn sem þá var til var
því raunar óvalinn, mjög misjafn og vægast sagt ekki góður.
All mikið er af kindum með skotablóði (Border-leicester
blendingar) á flestum bæjum í Tungu. Blendingar þessir
gera hjarðirnar mjög óræktarlegar fyrir augað, þar sem útlit
þeirra er mjög breytilegt. Fremur raungóðar til afurða