Árbók Landsbókasafns Íslands - 01.01.1945, Blaðsíða 12
12
LANDSBÓKASAFNIÐ 1944
ritauka áranna 1944—45, ef ástæða þykir til að halda áfram prentun slíkrar heildar-
skrár.
Sjálfsagt virðist að gefa út á hverju ári skrá um íslenzkt prentmál. Skrá sú, sem
hér fer á eftir, tekur yfir allar íslenzkar bækur og ritlinga, blöð og tímarit frá árinu
1944, sem Landsbókasafnið hefur eignazt. Ennfremur eru teknar með fáeinar bækur
frá 1943, sem urðu of síðbúnar til að komast í skrá þess árs. Hinsvegar eru ekki taldar
hér íslenzkar bækur frá fyrri árum, sem safnið vantaði, en tókst að útvega á árinu.
Skránni er fyrst og fremst ætlað að sýna svo nákvæmlega sem föng eru á íslenzka
bókaútgáfu ársins 1944. Þó má gera ráð fyrir, að ekki hafi öll kurl komið lil grafar,
því að alhnikið vantar á, að skil sumra prentsmiðja séu svo greið sem æskilegt væri
og skylt er. Einnig vantar nokkur íslenzk rit, sem prentuð hafa verið í Ameríku. Það
sem við kann að bætast verður tekið í skrá með hókum ársins 1945.
Hér á landi hefur jafnan verið margt bókelskra manna og bókaútgáfa, einkum hin
síðari ár, verið tiltölulega mikil miðað við fólksfjölda. Ilinsvegar hefur efnahag manna
til skamms tíma verið þann veg farið yfirleitt, að fáir hafa getað leyft sér að safna
bókum að nokkru ráði. Þetta hefur breytzt nokkuð á síðustu árum, efnahagur rnargra
hefur batnað og bókasöfnun einstaklinga farið mjög í vöxt. Með bókasöfnun vex
áhugi fyrir bókfræði. Riti þessu er ætlað fyrst og fremst að birta ýtarlega skrá um
allt íslenzkt prentmál, sem við bætist árlega, ásamt yfirliti um hag og starfsemi Lands-
bókasafnsins. Þá mun það eftir því sem rúm leyfir flytja greinar um íslenzka bókfræði
og prentsögu, bókasöfn og bókaútgáfu fyrr og síðar o. s. frv. Að þessu sinni er birt
stutt yfirlit um sögu Landsbókasafnsins eftir dr. Pál Eggert Olason, en hann hefur
lengi unnið í þarfir safnsins, þó að aldrei bafi hann verið þar fastur starfsmaður. Má
líta á grein þessa sem inngang að ritgerðasafni, sem fyrirhugað er að birta í ársritinu
smám saman, í því skyni að kynna safnið og fjársjóðu þá, sem þar eru varðveittir.
Reykjavík, 1. júní 1945.
Finnur Sigmundsson.