Árbók Landsbókasafns Íslands - 01.01.1945, Page 62
62
PÁLL EGGERT ÓLASON
gagns notöndum og almenningi í þeim búningi, sem hún er. Á árinu 1887 heppnaðist
aftur í móti að fá fjárveiting til þess að birta á prenti ritaukaskrá safnsins (þ. e.
skrá um bækur, sem safninu bættust árlega). Kom hin fyrsta út 1887 og hefir komið
jafnan síðan, oftast árlega (fáein ár þó í einu lagi).
í bókaaukningu safnsins um þetta árabil er skylt að geta
mikilla bókagjafa frá A. F. Krieger, nafnkunnum dönskum
þj óðmálamanni. Hann hafði á yngri árum sínum numið ís-
lenzku og bar í rauninni jafnan hlýjan hug til íslands og ís-
lendinga, þó að í ráðgjafatíð hans og að hvötum hans væru
sett stöðulögin (hann var þá dómsmálaráðgj afi og fór með
málefni Islands), en þau voru að sumu leyti ekki vel ræmd með
íslendingum. Fram að árinu 1883 hafði Krieger smám saman
gefið landsbókasafninu meira en 1000 bindi; árin 1884—6
námu bókagjafir hans á 6. hundr. binda, og hann hélt fram
bókagjöfum sínum til safnsins til æviloka (1893). Hann mælti
og svo fyrir í arfleiðsluskrá sinni, að landsbókasafnið, háskóla-
bókasafnið í Kaupmannahöfn og ríkisskjalasafn Dana skyldu fá að sitja fyrir að taka
úr bókasafni sínu þær bækur, sem þessar stofnanir óskuðu eftir.
Árið 1886 (4. des.) voru sett lög um prentsmiðjur. Þar var ákveðið, að allar prent-
smiðjur á Islandi skyldu láta 2 eintök af öllu, sem prentað væri, til landsbókasafnsins
(enn fremur 2 eintök til konungsbókhlöðu í Kaupmannahöfn). að auk 1 eintak til
hvers amtsbókasafns (og einnig til bókhlöðu háskólans í Kaupmannahöfn). Prent-
smiðjurnar skyldu senda landshöfðingja rit sín og hann síðan
koma þeim til safnanna.
Um þessar mundir og síðan var framar en verið hafði tekið
að kaupa handrit til safnsins (má hér nefna handrit, sem átt
hafði Dr. Sveinbjörn rektor Egilsson, handrit frá Pétri kaup-
manni Eggerz, úr eigu föður hans, nokkur handrit frá Halldóri
Kr. Friðrikssyni). Fjárframlög jukust frá alþingi og gerðu
safninu fært að auðgast að bókum og handritum. Þessu var það
að þakka meðal annars, að safninu var kleift 1893 að kaupa
handrit síra Eggerts 0. Bríms (241 bindi, verð einungis 400
kr.). Merkast er þar rímnasafn (sumar rímur þar torgætar eða
hvergi til annarstaðar, en flestar skrifaðar af Þorsteini á Heiði
og víðar Þorsteinssyni stúdents samastaðar, Sigurðssonar, og
er rithöndin að vísu ljót, en víðast læsileg). Árið 1898 keypti safnið allmerk handrit
og fornbréf (128 bindi handrita og 26 skinnbréf og skinnblöð), sem átt hafði Jón
dómstjóri Pétursson. Kaupverð var 1000 kr. Sumt af þessu var embættisgögn, og voru
þau síðar afhent þjóðskjalasafni.
Pálmi Pálsson