Árbók Landsbókasafns Íslands - 01.01.1945, Side 65

Árbók Landsbókasafns Íslands - 01.01.1945, Side 65
LANDSBÓKASAFNIÐ 65 mest kvæðasafn (10 bindi), er safnað hafði eða skrifað Jón verzlunarstjóri Stefánsson við Djúpavog (en keypt voru þau að öðrum manni). Merkast af því, sem deildin eignaðist í handritum á næstu árum, var sóknarlýsingar, sem deildin stofnaði sjálf til með boðsbréfum eða spurningum, vegna fyrirhugaðrar lýsingar íslands, sem raunar ekkert varð úr. Sóknarlýsingarnar sluppu úr brunanum 1847. Ekki gekk þó hraðara en svo að safna handritum, að 1852 átti deildin 37 bindi. Eftir að Jón Sigurðs- son tók við forstöðu deildarinnar, óx handritasafnið hröðum skrefum, enda sendi hann út boðsbréf um þetta 1854. Gekk söfnunin svo ört, að 1869 átti félagið 771 bindi, en sú tala tvö- faldaðist nálega á næstu 15 árum. Langflest voru handritin frá Jóni Borgfirðingi, á 4. hundr. bindi. Hann hafði verið bók- bindari, setzt að á Akureyri, fengizt þar einnig við bókagerð og farið þá í bóksöluferðir um landið. Síðar varð hann lög- regluþjónn í Reykjavík. Það var einkum á bóksöluferðum sín- um, að Jón Borgfirðingur komst yfir handrit (og gamlar bækur) og sendi þau Kaupmannahafnardeildinni jafnóðum. Að vísu fekk hann að jafnaði þóknun fyrir frá félagsdeildinni, enda líklega oftast lukt eitthvað fyrir þau, þeim er hann keypti þau að, og maðurinn fátækur. Leiddi þetta alllöngu síðar til þess, að hann var kjörinn bréfafélagi, síðar heiðursfélagi deildarinnar. í þakkarskyni fyrir þessa sæmd hefir það verið, að hann ánafnaði deildinni í Kaupmannahöfn flest hand- rit, sem hann átti (sendibréf o. fl.). Það, sem Jón Borgfirðingur safnaði, er að vísu flest ruslkennt, en sýndi þó áhuga hans og góðan vilja. Guð- mundur sýsluskrifari og skáld Einarsson (frá Starrastöðum, Bjarnasonar) arfleiddi Reykjavíkurdeildina að öllum bókum sínum, og eru handritin frá honum 84 bindi. Frá Marteini gullsmið Jónssyni eru samtals 68 bindi, frá Sigmundi Matt- íassyni Long 60 bindi, frá Þorsteini Þorsteinssyni að Upsum 48 bindi; allir þessir þrír menn fóru síðar vestur um haf, og átti Sigmundur Mattíasson þó enn eftir að auðga handritasafn landsins. Frá Olafi hreppstjóra og skáldi Briem á Grund komu að gjöf 31 handritabindi, frá síra Sigurði Br. Sívertsen að Út- skálum 26 bindi. Að öðru leyti skal um þetta efni vísað í ald- Jón Borgfirðmgur arminningarrit bókmenntafélagsins, Rv. 1916. Það var auð- vitað ekki mark bókmenntafélagsins beinlínis að eignast önnur handrit en það tæki til prentunar og miklu hentara Islendingum, að landsbókasafnið tæki við handritum þess. Dr. Björn M. Ólsen knúði fast á eftir þessu og hóf bréfa- gerðir um það mál 1895 (með fram vegna bágs efnahags félagsins), en hann var þá nýlega orðinn forseti Reykjavíkurdeildar. 5

x

Árbók Landsbókasafns Íslands

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Árbók Landsbókasafns Íslands
https://timarit.is/publication/279

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.