Vísbending - 18.12.2003, Side 24
VÍSBENDING
Viðtal við Davíð Oddsson, forsætisráðherra íslands
Davíd Oddsson hefur verið
forssetisráðherra samfleytt
frá 30. apríl árið 1991 eða
í tæp þrettán ár og hefur
því gegnt embættinu lengur
hér á landi en nokkur annar.
Hann var 26 ára gamall
þegar hann tók þátt í sínu
fyrsta prófkjöri, 34 ára var
hann orðinn borgarstjóri í
Reykjavík og 43 ára
forsætisráðherra. Síðan hefur
Davíð verið forsætisráð-
herra samfleytt i tæp þrettán
ár. Ritstjóri Vísbendingar
ræddi við Davíð í byrjun
desember.
Um Hannes Hafstein og drauma hans
Hannes var hugumstór maður og bjartsýnn, eins og maður getur
lesið í kvæðum hans. Þó að við hugsum oftast um hann sem skáld
og draumhuga þá var hann framkvæmdamaður mikill. Auðvitað
hafði hann ákveðinn samanburð, hann hafði búið í stórborgum
eins og Kaupmannahöfn á sama tíma og Islendingar bjuggu í
kofum. Hér bjuggu sjötíu þúsund manns við mikla fátækt. Það
hefur þurft miklar draumfarir til þess að sjá fram á það að þetta
land myndi rísa úr þessari öskustó á einni öld eða svo.
Aðstæður á íslandi í byrjun aldar
Til eru fundargerðir úr bæjarstjórn Reykjavíkur frá upphafi síðustu
aldar, þar sem helstu stórmennin, Knud Zimsen og Tryggvi Gunn-
arsson, deila um það hvort réttlætanlegt sé að setja klósett í hús. Það
voru stóru málin. „Súkkulaðivagnarnir" óku hér unt og ég held það
hafi verið Tryggvi, frekar en Knud Zimsen, sem sagði að þennan
áburð mættum við ekki missa. Ef maður fór í kringum landið sáust
engin hús en þar sem reyk lagði upp úr jörðinni nrátti finna líf, því
þar voru toríbæirnir. Framfarirnar hafa verið ótrúlegar.
24