Vísbending


Vísbending - 18.12.2003, Síða 24

Vísbending - 18.12.2003, Síða 24
VÍSBENDING Viðtal við Davíð Oddsson, forsætisráðherra íslands Davíd Oddsson hefur verið forssetisráðherra samfleytt frá 30. apríl árið 1991 eða í tæp þrettán ár og hefur því gegnt embættinu lengur hér á landi en nokkur annar. Hann var 26 ára gamall þegar hann tók þátt í sínu fyrsta prófkjöri, 34 ára var hann orðinn borgarstjóri í Reykjavík og 43 ára forsætisráðherra. Síðan hefur Davíð verið forsætisráð- herra samfleytt i tæp þrettán ár. Ritstjóri Vísbendingar ræddi við Davíð í byrjun desember. Um Hannes Hafstein og drauma hans Hannes var hugumstór maður og bjartsýnn, eins og maður getur lesið í kvæðum hans. Þó að við hugsum oftast um hann sem skáld og draumhuga þá var hann framkvæmdamaður mikill. Auðvitað hafði hann ákveðinn samanburð, hann hafði búið í stórborgum eins og Kaupmannahöfn á sama tíma og Islendingar bjuggu í kofum. Hér bjuggu sjötíu þúsund manns við mikla fátækt. Það hefur þurft miklar draumfarir til þess að sjá fram á það að þetta land myndi rísa úr þessari öskustó á einni öld eða svo. Aðstæður á íslandi í byrjun aldar Til eru fundargerðir úr bæjarstjórn Reykjavíkur frá upphafi síðustu aldar, þar sem helstu stórmennin, Knud Zimsen og Tryggvi Gunn- arsson, deila um það hvort réttlætanlegt sé að setja klósett í hús. Það voru stóru málin. „Súkkulaðivagnarnir" óku hér unt og ég held það hafi verið Tryggvi, frekar en Knud Zimsen, sem sagði að þennan áburð mættum við ekki missa. Ef maður fór í kringum landið sáust engin hús en þar sem reyk lagði upp úr jörðinni nrátti finna líf, því þar voru toríbæirnir. Framfarirnar hafa verið ótrúlegar. 24

x

Vísbending

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísbending
https://timarit.is/publication/281

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.