Frjáls verslun - 01.02.1950, Page 3
frá Vopnafirði. Vopnfirðingar voru mjög hril'nir
af að fá þessa aukningu í atvinnulífið, en kaup-
félagsstjórinn og kaupfélagsvaldið var hinsveg-
ar á öðru máli. Þeir kölluðu þetta glæfrafyrir-
tæki oggerðu allt, sem í þeirra valdi stóð, til þess
að drepa þessa útgerð í fæðingunni. M. a. neitaði
kaupfélagsstjórinn að lána mat í fyrstu veiðiför
bátsins. Báturinn hafði verið lítinn tíma á Wpna-
firði, þegar ólán henti og báturinn siikk, lítt eða
ekkert tryggður og bændurnir sátu uppi með
stórskuldir. Það hlakkaði hinsvegar í kaupfélags-
valdinu yfir óförum þeirra.
Enn þann dag í dag verða Vopnfirðingar að
standa í fjörunni og horfa upp á aðkomubátana
og útlend skip moka upp milljónaverðmæti fyrir
augunum á þeim, úr þeirra eigin firði, án þess
að fá nokkra hlutdeild í þeim afla ieða þeirri at-
vinnu, aðeins vegna þess, að kaupfélagið hefur
ekki áhuga fyrir útgerð og vill halda bændunum
í fátækt.
Kosningar.
Svo komu kosningar og þá var kaupfélaginu
breytt í kosningamiðstöð fyrir vissan stjórnmála-
flokk. Þá var ýmsum fágætum vörum laumað til
sumra ístöðulítilla einstaklinga, sem þurftu að-
eins að krossa á kjörseðilinn á réttum stað. Ef
einhver bóndinn var ekki ánægður með ástandið
og gerðist svo djarfur að mögla við frantbjóðand-
ann, sem kaupfélagið stóð á bak við, þá var Jmð
viðkvæðið hjá Joeim háa herra, að það væri bezt
að athuga skuldir viðkomandi bónda hjá kaup-
félaginu, og að það væri vissara fyrir hann að
standa réttu megin, annars væri óvíst hvort að
hann fengi nauðsynjar sínar afgreiddar lijá kaup-
félaginu (og Jaað þýddi sult).
Það er ])essi misnotkun kaupfélagainna í póli-
tísku skyni, s'em veldur því, að Framsóknarflokk-
urinn er ennþá við líði og þetta fjölmennur,
og Jmð er Jiessi ógnunaraðstaða og einokunar-
aðstaða kaupfélaganna, sem fleytir mönnum eins
og Páli Zóphóníassyni á Jiing. En að þessi verzl-
uinarmáti skuli teljast heilbrigður og til fyrir-
myndar, Joað er flestum hugsandi mönnum ofvax-
ið að skilja.
Hvers vegna haldið þið, lesendur góðir, að í
blómlegu héraði eins og Vopnafirði, skuli fólk-
inu fækka ár frá ári og hvert stórbýlið á fætur
öðru leggjast í eyði og stór og vel byggð hús í
sjálfum kaupstaðnum standa auð.
Hver ler ástæðan fyrir Jíessum flótta fólksins?
Ein af meginástæðunum er Jjetta einokunar-
vald kaupfélagsins, Jtessi dauða hönd athafna-
leysis og afturhalds, sem grúfir yfir þessari sveit.
Það væri nógu fróðlegt verkefni fyrir félags-
fræðing Tímans að rannsaka orsakir liins gífur-
leg flótta fólksins úr sveitinni til bæjanna, og ætli
að hann komist ekki að raun um, að hinn óheil-
brigði verzlunarháttur kaupfélaganna á sinn Jmtt
í þeim flótta. Það er og staðreynd, að þar sem
kaupfélögin eru í einokunaraðstöðu, Jrar hefur
fólkinu fækkað mest.
MinnisblaS íyrir félagsfrœðinginn.
Félagsfræðingur Tímans á mörgu eftir að svara
í sambandi s ið Jtessi mál. Það væri Joví ekki úr
vegi að rifja upp eftirfarandi til að hressa upp
á minni hans:
1. Hann getur ekki mótmælt því, að kaupfé-
lögin og S.Í.S. eru misnotuð herfilega í Joágu
Framsóknarflokksins. (Samkv. kenningum Ow-
ens, frumkvöðuls Samvinnustefnunnar, ier það
eitt frumskilyrðið, að slík neytendasamtök séu
algjörlega óháð stjórnmálum). En hér á landi
rekur S.Í.S. dagblaðið Tímann með milljónatapi
og allmargir starfsmenn S.Í.S. og kaupfélaganna
leru í framboði fyrir Framsóknarflokkinn.
2. Hanin getur ekki mótmælt Jíví, að ein, að-
eins ein, skipshöfn á Akureyri gieiðir hærri skatta
til samans en öl) fyrirtæki K.E.A. og S.Í.S. á Ak-
ureyri, og reka þessir aðilar þó allflest atvinnu-
fyrirtæki þar.
3. Hann getur ekki mótmælt því, að forystu-
menn S.Í.S. börðust með hnúum og hnefum gegn
verkalýðssamtökunum, Jtcgar aðrir atvinnurek-
endur viðurkenndu þau, og þeir hikuðu ekki við
að beita verkfallsbrjótum og lögregluliði gegn
verkalýðnum (sbr. Garnadeilan).
4. Hanm verður að viðurkenna, að viðskipti
S. f. S. stóðu í stað, Jaegar viðskipti voru hvað
frjálslegust á milli áranna 1942—1946, Jaegar inn-
flytjendur gátu flutt inn eins mikið og sala og
kaupgeta leyfðu.
5. Hann getur iekki mótmælt því, að S.f.S.
h'efur engum gjaldeyri skilað til bankanna, þeg-
ar allir aðrir innflytjendur hafa skilað sínum
umboðslaunum.
6. Hann verður að viðurkenna, að þau opin-
beru gjöld, sem samvinnufélögin sleppa við að
borga vegna samvinnulagainna, leggjast á al-
menning.
Magnús Valdimarsson.
FRJÁLSVERZLUN
O
i)