Frjáls verslun - 01.02.1950, Síða 33
Ólafur Jónsson gjaldkeri
andaðist 12. nóv. s.l., og
var banamein hans hjarta-
slag.
Ólafur var sonur Jóns Ja-
sonarsonar verzlunarmanns
á Borðeyri, og ólst hann
þar upp í föðurhúsum.
Hann gekk í Latínuskólann
á yngri árum, lauk þar
prófi úr 4. bekk en sneri sér
síðan næstu árin að dýra-
læknisnámi, sem hann
hugðist þá gera að lífsstarfi sínu. Sú. varð þó ekki
raunin á, heldur gekk Ólafur nú í þjónustu Thors
Jensen, og entist sú vist honum fram á síðustu ár, er
hann lét af störfum fyrir aldurs sakir.
í útgerðarfélaginu Kveldúlfi vann Ólafur í 32 ár
samfleytt, og má með sanni segja að hann hafi gengt
störfum sínum með kostgæfni og samvizkusemi. Var
liann virtur fyrir þau, bæði af húsbændum og viðskipta-
mönnum. Dugnaður hans var mikill, svo sem má gera
sér í hugarlund þegar þess er gætt, að langa hríð gengdi
liann gjaldkerastöðunni allsendis aðstoðarlaust, og
var þó útgerð félagsins rekin með 11 skipum og gríð-
arstór fiskverzlun í sambandi við hana. Þessu hefði
enginn annað, án þess að vera afbragðs góður reikn-
ingsmaður, en það var Ölafur einmitt.
Ólafur Jónsson var heiðarleikamaður og hreinn í
framkomu. Einarður og óhvikull og kannski ráðríkur
nokkuð, ef því var að skipta, en enginn harðjaxl eða
ójafnaðarmaður. Það sýndi sig m. a. glögglga í við-
skiptum hans við sjómennina og eiginkonur þeirra, að
hann var gæddur lipurð og góðvildarhug. Margt fleira
var Ólafi ágætlega gefið, t. d. var hann góður skák-
maður og spilamaður og ágætur veiðimaður.
Hann var kvæntur Jngibjörgu Eiríksdóttur frá Hvít-
árholti. Þau hjónin eignuðust sjö börn. Þar af lifa
nú, ásamt móður sinni, fimm u])])komnir svnir.
Ferdinand IJansen kaup-
nuiður í Hafnarfirði lézt
20. jan. s.l., og hafði þá
legið rúmfastur nokkurn
tíma.
Hann fæddist í Hafnar-
firði 28. nóv. 1885, og voru
foreldrar hans Jörgen Han-
sen kaupm. og Henriette
kona hans, f. Linnet. Þótt
Ferdinand væri þannig af -
dönsku bergi brotinn í báð-
ar ættir, skoðaði Jiann sig
sem íslending, og í Hafnarfirði ól liann flesta ævidaga
sína. Hann gekk í Flensborgarskóla á unglingsaldri,
og að loknu námi þar hélt hann til Danmerkur, þar
sem hann lagði stund á bóklegt og verklegt verzlun-
arnám. Hann ílentist um hríð þar úti, alls 12 ár, en
sneri að því búnu heim aftur, settist að í fæðingarbæ
sínum og gaf sig að kaupmennsku þaðan í frá.
Hansensverzlun hefur um langan aldur notið afar
mikilla vinsælda meðal Hafnfirðinga og sjómanna,
sem verið hafa í veri þar um slóðir. Kaupmaðurinn
var hvers manns hugljúfi, lipur og greiðvikinn, spaug-
samur og hýr í bragði á hverju sem gekk. Þetta eru
allt ómetanlegir kostir í fari hvers manns, ekki hvað
sízt kaupsýslumanns. Til hans liggja leiðir fjölda fólks
á degi hverjum, fólks með mismunandi þarfir og ým-
isleg vandamál, sem það óskar að fá leyst úr, og þá
er mikils um vert, að kaupmaðurinn sé hressilegur í
hragði og eðallyndur í hjarta sínu. Annað verður held-
ur ekki sagt um Ferdinand Hansen. Hjálpsemi, glað-
værð og tryggð einkenndu allt lians ráð, og fyrir
FRJÁLSVERZLUN
33