Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.12.1958, Síða 16

Frjáls verslun - 01.12.1958, Síða 16
II. Birgir Kjaran, hagjr.: il M E N N 0 G M J L E F N I Berfil Ohlin og sósíal-liberalisminn Maðtir, sem kann á mörgu slál „Til þess að vera vísindamaður þarf skapgerð." David, Davidson Á norræna stúdentamótinu, sem haldið var í Reykjavík síðustu vikuna í júní-mánuði þjóð- hátíðarárið 1930, var samankomið margt glæsi- legra ungra manna, erlendra og innlendra. I hópi útlendinganna vakti ungi, sænski prófessorinn Bertil Ohlin sérstaka at- hygli. Hann hafði orðið sænskur prófessor árið áður aðeins þrítugur að aldri, var fríður sýnum og fyrirmannlegur í fram- göngu. Á stúdentamótinu hélt Ohlin framsöguræðu um „Sameiginleg hags- munamál Norðurlanda“, og segir Stúdentablaðið 1. des. 1930: „Var ræðan hin merkilegasta og prýði- lega flutt“. — Fyrir tuttugu og átta árum fengu Islendingar þannig augnabliksmynd af Bertil Ohlin, einmitt þegar framaferill hans var að hefjast. Að baki var óvenjuglæsileg námsbraut, en í hönd fóru athafnaárin. Bertil Gotthard Ohlin lieitir hann fullu nafni og er aldamótamaður, fæddur árið 1899 í smá- bænum Grámanstorp í Kristjánsstatsléni á Skáni. Faðir hans var embættismaður. Ohlin hóf ungur nám og gekk mjög greiðlega. Stúdentspróf tók hann í Hálsingborg og innritaðist síðan við há- skólann í Lundi og útskrifaðist þaðan sem fil. kand. árið 1917. Hann tók síðan hagfræðipróf við Handelshögskolan í Stokkhólmi árið 1919. Við Stokkhólmsháskóla varð hann fil. lic. árið 1922 og doktorsgráðu tók hann árið 1924. Við þetta bættust námsferðir til útlanda til Grenoble og Cambridge, og meðal annars tók hann í einni þeirra M.A.-próf við Harvardháskóla (1923). Að námi loknu hófst svo hinn fjölbreytileg- asti starfsferill og þá fyrst við kennslu og fræði- störf, en síðar einnig við stjórnmál og blaða- mennsku. Fyrst í stað starfaði hann sem docent við Stokkhólmsháskóla. Á árunum 1924—29 var liann prófessor í hagfræði við Kaupmanna- hafnarháskóla, og frá því árið 1929 hefur hann verið jn-ófessor í hagfræði við Handelshögskolan í Stokkhólmi. Samhliða kennslustörfum hefur Ohlin gegnt fjölmörgum opinberum störfum, bæði utanlands og' innan. Ilann hefur átt sæti í fjölmörgum sænskum nefndum, sem um efna- hagsmál hafa fjallað, á sæti í Norðurlandaráði og hefur sótt alþjóðaráðstefnur í Genf og víðar, þar sem alþjóðleg hagfræðiviðfangsefni hafa verið rædd, og oft hafa ræður hans og tillögur vakið verðskuldaða athygli og haft áhrif á gang efnahagsmála þjóðar hans og jafnvel á alþjóða- vettvangi. Málflutningur hans jal'nt í ræðu sem rituðu máli þykir skýr, rökfastur, byggður á gerhygli og djúpstæðri þekkingu og fluttur af einurð og skapfestu. Þessir hæfileikar hafa auð- veldað Ohlin að koma skoðunum sínum á fram- færi, enda eru rit hans bæði hagfræðileg og hin pólitísku víðlesin. Þá er og þessi vöggugjöf far- sælt veganesti þeim, sem gerir kennslu að ævi- starfi, og sjálfsagt myndu ýmsir, sem hafa lesið hinar auðskildu kennslubækur hans, vilja snúa honum til handaþeimþakkarorðum, er hann flutti Bertil Ohlin 16 KRJAIiS VERZLUN

x

Frjáls verslun

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.