Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.12.1958, Page 24

Frjáls verslun - 01.12.1958, Page 24
Verzlunarskólastúdentar 1950 iyrir framan skólahúsið við Grundarstíg (Derzlunarskóli <Jslands Fyrir þremur árum varð Verzlunarskóli ís- lands 50 ára. Var afmælisins þá minnzt með veglegri hátíð og gefið út myndarlegt minningar- rit um 50 ára starf skólans. Skólinn var stofnaður árið 1905. I fyrstu var hann tveggja vetra skóli auk undirbúningsdeild- ar og starfaði þannig til ársins 1926, en þá var 3. bekk bætt við. Árið 1935 var skólinn gerður að fjögurra vetra skóla og hefir haldið því formi siðan að því er verzlunardeildina snertir. Með bréfi menntamálaráðherra, dags. 16. október 1942, voru skólanum veitt réttindi til þess að brautskrá stúdenta. Lærdómsdeildin tók til starfa haustið 1943 og voru fyrstu stúdentarnir brautskráðir vorið 1945. Þegar hin almennu fræðslulög frá 1946 höfðu tekið gildi var undir- búningsdeild Verzlunarskólans lögð niður. I dag er skipulag skólans þannig, að honum er skipt í tvær deildir. Fyrstu fjórir bekkirnir, verzlunar- deildin, veitir almenna verzlunarmenntun, en 5. og 6. bekkur, lærdómsdeildin, veitir síðan stúdentsmenntun. Frá því að Verzlunarskólinn var stofnaður hefir kennsla farið fram í fimm húsum. Fyrsta árið var skólahaldið í húsinu „Vinaminni“, Mjóstræti 3, en Iðnskólinn var þá einnig til húsa þar. Árið 1906—1907 starf- aði skólinn í „Melsteðshúsi“, en það var þar sem útbygging Utvegsbankans er nú. 1907— 1912 starfaði hann í „Smithshúsi“, en var þá fluttur að Vesturgötu 10, þar sem hann starfaði í 19 ár, til ársins 1931, en það ár var gert stórt átak í húsnæðismálum skólans með kaupum á húsinit nr. 24 við Grundarstíg. Haust- ið 1931 var skólinn fluttur í hin nýju húsakynni og hefir verið þar síðan. Vöxtur skólans hefir verið mikill, enda er hann nú einn af fjölmennustu skólum landsins. Hins vegar hefir húsnæði það, sem hann hefir til umráða, valdið ýmissi starfsemi hans miklum erfiðleikum, enda er það eðlilegt, þegar það er athugað, að skólinn býr við sama húsnæði nú, þegar hann er orðinn 6 vetra skóli, eins og 24 FRJÁLS VERZLUN

x

Frjáls verslun

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.