Frjáls verslun - 01.12.1958, Page 29
að meðaltali nemi hálfum manni. íbúðarhús
bónda er að sjálfsögðu ekki talið til stofnkostn-
aðar býlisins.
Stofnkostnaður botnvörpuskipsins er Iiækk-
aður um hluta þess í fiskvinnslustöðvum í landi.
Mannafli á skip er talinn 55, en þar er tekið til-
lit til fiskvinnslu í landi.
lleiknað er með hitaveitu frá Hengli eða
Krýsuvík til Reykjavíkur og talið, að hún hiti
híbýli fyrir 50.000 manns. Starfslið er talið 30
manns.
Afl gufurafstöðvar er reiknað 25.000 kílóvött.
Verð orkunnar við stöðvarvegg er metið á
vinnsluverði í jafnstórri gufurafstöð í Reykja-
vík, sem rekin er með olíu. Er þetta talið nauð-
synlegt til að samrýma reikningsgrundvöllinn.
Verð orku frá vatnsorkuverum er venjulega
reiknað allverulega lægra, en það er hér vart
nothæfur reikningsgrundvöllur.
Stofnkostnaður og afköst iðjuvers til vinnslu
þungs vatns eru reiknuð samkvæmt tölum, sem
nú liggja fyrir.
Stofnkostnaður Áburðarverksmiðjunnar er
reiknaður á verðlagi 1.958 til samræmingar við
aðra liði töflunnar. Einn þriðji hluti stofnkostn-
aðar Irafossvirkjunarinnar er talinn til stofn-
kostnaðar Áburðarverksmiðjunnar, en verk-
smiðjan notar sem kunnugt er um helming afls
virkjunarinnar.
Niðurstöður eru gefnar í eftirfarandi töflu:
Meðal Afköst vinnu- Nýting varma
stofnfjár- einingar kg olía
stuðull kr/maunár Gcal
Botnvörpuskip og fiskvinnsla 2,7 170,000
Hitaveita til Reykjavíkur 3,6 1.700.000 65
Gufurafstöð 4,4 1.500.000 30
Vinnsla þungs vatns 5,7 1.000.000 55
Áburðarverksm i ðjan 6,7 500.000
Landbúnaður (nýbýli) 6,7 65.000
Þegar litið er yfir þessa töflu kemur fram, að
botnvörpuskipið hefur lægstan, þ. e. hagstæð-
astan stofnfjárstuðul, en afköst á vinnueiningu
eru hins vegar ekki sambærileg við jarðhitafyrir-
tækin. Af jarðhitafyrirtækjum hefur hitaveitan
hagstæðastan stofnfjárstuðul og mest afköst á
vinnueiningu.
Það fer nokkuð eftir aðstæðum á hverjum
FORSÍDUMYNDIN
á Frjálsri Verzlun, að þessu sinni, er af
líkneski Guðmundar Einarssonar af Jóni
biskupi Arasyni. Er Ijósmyndin tekin af
frummyndinni, en styttan hefur vcrið
steypt í kopar, hjá Ib Rathje í Kaup-
mannahöfn, og er 2,85 m á hæð. Upphaf-
lega var gert ráð fyrir að styttan yrði í
minningarlundi Jóns Arasonar að Grýtu í
Eyjafirði, en nú hefur verið ákveðið að
hún verði sett upp framan við bæinn á
Munkaþverá við hlið kirkjunnar; en í
Þvcrárklaustri naut Jón biskup sinnar
fyrstu menntunar. Að lokum má geta þess,
að stöpullinn undir styttunni verður gerð-
ur úr rauðsteini úr Ilólabyrðu.
I.______________________________________________^
stað, hvort meta beri meira hagstæðan stofnfjár-
stuðul eða mikil afköst á vinnueiningu. 1 láus-
fjársnauðu landi hljóta menn að keppa að lág-
um stofnfjárstuðli, þó með því skilyrði, að af-
köst á vinnueiningu séu þolanleg. Af jarðhita-
verunum uppfyllir hitaveitan þetta skilyrði bezt.
Virðist augljóst, að Islendingar hljóta að keppa
að sem mestri híbýlahitun með jarðhita.
Vinnslukostnaður orkueiningar í jarðgufu-
stöðvum mun vera sambærilegur við vatnsafls-
stöðvar, en rekstraröryggi nokkru minna. Þó ber
að hafa í huga, að auðveldlega virkjanlegt
vatnsafl er tiltölulega lítið hér á landi. Þegar
Sogið hefur verið fullvirkjað verður að leita í
hinar stóru jökulár, og þá taka við tæknileg og
fjárhagsleg vandamál, sem ekki hefur þurft að
glíma við áður. Virkjanir hinna stóru jökulfalla
kosta mjög mikið fjárhagslegt átak, og er mikið
vafamál, að Islendingar geti lagt út í slíkt eins
og málum er háttað í dag.
Þegar svo stendur á er það mikill fengur að
geta virkjað jarðgufu, þar sem haga má virkj-
unarstærð eftir vild, og dreifa má stofnkostnaði
á lengri tíma en þegar um stórar vatnsvirkjanir
er að ræða. Það er skoðun höfundar, að tíma-
bil jarðgufunnar í orkuvinnslu hér á landi muni
hefjast nú, þegar Sogið hefur verið fullvirkjað.
Þar mun gufan hafa mikla hagnýta þýðingu
fyrir þjóðarbúið.
FRJÁLS VERZLUN
29