Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.12.1958, Side 44

Frjáls verslun - 01.12.1958, Side 44
Árið 1931 var íslenzkum útgerðarmönnum þungt í skauti, enda hefur það hlotið nafnið kreppuárið mikla. Fiskbirgðir voru miklar og ársaflinn mcð meira móti. Þurfti að koma í verð um 85 þús. smál. af fiski, miðað við fullverkaðan fisk. Þegar við þetta bættist mikið framboð á fiski frá Noregi og öðrum fiskframleiðslulöndum, var Ijóst, að óvæn- lega liorfði um viðunandi verð á fiskframleiðslu fslendinga. Þessi varð líka raunin. Verðið fór sí- lækkandi og var svo komið í byrjun desember 1931, að ekki var greitt nema 45—50 kr. út á stórfisks- skippundið í umboðssölu. Hagur útgerðarmanna versnaði stórum og kom- ust margir þeirra í fjárþrot. Margir í þessum hópi voru vel bjargálna, en verðfallið sópaði burt á svipstundu arðinum af margra ára striti þeirra. Eðlileg afleiðing þessarar þróunar varð sú, að útgerðarskuldir hækkuðu ískyggilega hjá aðallána- stofnunum útgerðarinnar, Landsbankanum og Út- vegsbankanum. Forráðamenn þessara stofnana sáu, að hér var mikil vá fvrir dvrum og þörf skjótra aðgerða til úrbóta. Um þetta leyti var fiskverzlunin að miklu leyti í höndum útgerðarfélaganna Kveldúlfs og Alliance í Reykjavík. Auk þess höfðu margar fiskframleið- endur við Faxaflóa myndað með sér samtök um fisksölu, sem nefnd voru Fisksölusamlögin við Faxaflóa. Þótt þessir aðilar hefðu betri aðstöðu til þess að koma sínum fiski í verð en aðrir fiskfram- leiðendur, þar sem þeir höfðu reynd og víðtæk viðskiptasambönd erlendis, töldu þeir svo mikils- vert. að reynt yrði að koma á allsherjarsamtökum fiskframleiðenda um sölu á saltfiskinum, að þeir féllust á, að sambönd þeirra flvttust vfir á hendur væntanlegs sölusambands. Niðurstaða þessara umræðna, sem fóru fram vorið 1932, varð sú, að snemma í júlí 1932 var stofnað: Sölusamband ísl. fiskframleiðenda. Fyrstu stjórn sölusambandsins skipuðu: Kristján Einarssons, Ólafur Proppé og Rich. Thors, sem var formaður félagsskaparins, þar til hann var endur- skipulagður, en meðstjórnendur: bankastjórarnir Magnús Sigðurðsson og Iíelgi Guðmundsson. Aðal- kjarninn í þessum samtökum voru þeir 3 aðilar, sem fyrr eru nefndir, en margar útgerðarmenn og samlög gerðust skjótt þátttakendur í samtökun- um. Sölusambandið seldi um 90% af þeim fiski, sem fyrir lá við stofnun þess og aflað var síðar á árinu. Árangur þessara samtaka varð sá, að framboð- um fækkaði og meiri ró færðist yfir fiskverzlunina. Viðskiptasamningur við Kubu Þann 29 sept. s.l. var undirritaður í Washington viðskiptasamningur milli ICúbu og íslands til tveggja ára. Fyrsta grein samningsins kveður á um, að þjóð- irnar tvær veiti hvor annarri „beztu kjör“ á toll- um, tollaviðbótum og konsular gjöldum, svo og öðrum gjöldum. Ilin beztu kjör skulu einnig ná til reglna og framkvæmdaaðferða við leyfisveitingar og tollaafgreiðslu. í annarri málsgrein fyrstu greinar fallast báðir aðilar að veita hvor öðrum engu síðri kjör en þriðja aðila í gjaldeyrissölu vegna kaupa á vöruin og sömuleiðis við ákvarðanir á magni, sem innflutningur verði leyfður á. Undantekning frá grein eitt er, að þau kjör, sem Kúba veitir Bandaríkjum Norður-Ameríku, skuli undantekin, þegar rætt er um beztu kjör, sem Kúba veitir öðrum þjóðum. ísland lofar að flytja inn frá ICúbu 75% af innan- landsneyzlu á hrcinsuðum sykri, þó ekki minna en 4.004 tonn á ári næstu tvö árin. Sykurinn skal vera fáanlegur á frjálsum mai'k- aði, og skal verð og kjör miðast við hann. Sykur- inn greiðist í U.S. dollurum. fsland lofar að kaupa vindla fyrir $5.000 og romm fyrir $3.000 hvort ár næstu tvö árin. Kúba lofar að ísland megi flytja vörur til Kúbu fyrir allt að $750.000 á ári, og skuli sá útflutningur njóta þeirra beztu kjara, sem nefnd eru í grein eitt. Gert er ráð fyrir, að sama gildi um innflutning á kúbönskum vörum til íslands og fram er tekið um íslenzkar vörur, sendar til Kúbu. Einnig er tekið fram að íslenzkar vörur skuli greiðast í TJ.S. dollurum. Hækkaði sölusambandið verðið þegar á fiskinum og fór verðið hækkandi eftir því sem á árið leið. Á árinu 1932 seldust 71 þús. smálestir, miðað við verkaðan fisk. Árangur samtakanna varð þannig strax glæsilegur og langt fram yfir það, sem mcnn höfðu gert sér vonir um. Af þessari frásögn má sjá, hve mikil nauðsyn var á því að hafa saltfisksöluna á sterkri hendi, þegar erfiðleikarnir voru hvað mestir um söluna. Stofnun sölusambandsins bar ótrúlega skjótan árangur til bjargar aðþrengdum framleiðendum, svo og þjóðinni allri, sem á afkomu sína að miklu leyti undir því, hvernig til tekst með sölu sjávar- afurðanna. 44 FRJÁLS VERZLUN

x

Frjáls verslun

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.