Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.04.1961, Síða 22

Frjáls verslun - 01.04.1961, Síða 22
suma, en þarna fór allt fram samkvæmt fyrirfram- gerðri áætlun. Daginn eftir var svo nágrennið skoðað. íslend- ingarnir voru mikið búnir að vonast eftir góðu veðri þennan dag, til þess að Mývatnssveit nyti sín í allri sinni dýrð, en það gekk á með skúrum og var heldur þungbúið, þó að þurrt væri á milli. Byrjað var á hverunum í Námaskarði, og munaði minnstu, að sumir gengju í þá af áhuga einum saman. Því næst var gengið á Námafjall og kom þá sólin fram úr skýjaþykkninu rétt sem snöggvast. Var sú „tillitssemi" mjög lofuð. „Kirkjan“ í Dimmuborgum var skoðuð, og sið- an var siglt út í Geitey. Var hópurinn ferjaður þangað í tveimur ferðum, í sama bátnum og haldið hafði uppi ferðum yfir Mývatn áður en vegur var lagður að Reykjahlíð. Tiltölulega fáir ferðamenn liafa komið út í Geitey, en hún er hið merkilegasta fyrirbæri og vakti óskipti athygli. Eyjan er mynduð af mörgum smáum gígum, heilum og hálfum, því að suma hefur vatnið sorfið, og er hún þakin mjög ríkulegum gróðri. Að „sjóferðinni“ lokinni var ekið í kringum Mý- vatn. Vildu sumir í hópnum ekki almennilega trúa kenningum Sigurðar Þórarinssonar, að allt væru gervigígar, sem hann sagði vera það — þóttu þeir furðu stórir. Þó nrunu flestir hafa sannfærzt að lok- um. Þorski og kjötsúpu gerð góð skil A fiinmta degi var löng leið fyrir höndum. Ekið var yfir Jökulsárbrú hjá Grímsstöðum og síðan að Dettifossi. Þar var dumbungsveður, og jók það enn á hrikaleik náttúrunnar. Fossinn virtist orka mjög á hugi ferðamannanna, og einn þeirra, sem var frá Bandaríkjunum, sagðist hafa séð alla helztu fossa í sínu landi, en aldrei hefði hann séð neinn, sem væri jafnmikilúðlegur og tröllslegur og Detti- foss. — Síðan var ekið að Hafragilsfossi og hann skoðaður úr nokkurri fjarlægð; einnig hann þótti tilkomumikil sjón. Var nú ekið í norður og síðan farið aftur yfir Jökulsá og inn í Ásbyrgi. Þar var þurrt en heldur kaldranalegt veður. Þó voru brauðpakkarnir, sem teknir voru með frá Reynihlíð, borðaðir úti. Þetta var í eina skiptið í ferðinni, að nesti var tekið með. Matur var alls staðar góður, og yfirleitt mjög góður, og virtust allir sammála um að svo væri. Að vísu er íslenzkur matur ekki fjölbreyttur á borð við það, sem víða gerist erlendis, en reynt var að haga pöntunum þannig, að sem mest fjölbreytni yrði. Gúrkur og tómatar virtust bornir fram með öllum mat og héldu sumir, að þetta væru þjóðar- réttir, en sannleikurinn var sá, að þeir innfæddu í hópnum héldu sig mest að kartöflunum. Engum skal þakkað, þótt hann geti borðað lax og vel valið nautakjöt, en þorski og kjötsúpu voru einnig gerð góð skil. Jafnvel alvanir rauðvíns- drykkjumenn virtust kunna vel við að drekka blá- vatn með matnum, en smám saman vandist mann- skapurinn á pilsnerinn okkar. Annar Rússanna vildi þó alltaf drekka kóka kóla. Hellirigning var á Tjörnesi, en þar var farið um, og fengu því hin fornu jarðlög að hvíla í friði. Síð- an var ekið um Húsavík og aftur til Akureyrar. Var nú ástandið sýnu verra á Ilótel KEA en fyrr í ferðinni, og þurftu enn fleiri að gista úti í bæ. En nú var líka þremur dögum lengra liðið frá hinni upphaflegu pöntun á herbergjunum en fyrra sinnið, svo að ekki var óeðlilegt þó að ruglingurinn hefði aukizt! Daginn eftir var fyrst skoðuð Krossanesverk- smiðjan, en síðan haldið vestur og suður á bóginn á ný. Helzt þótti það sumum að, að ekki skyldi hægt að eyða heilum degi á Oxnadalsheiði. Svo að með sanni má segja, að áhugamálin hafi verið margvísleg! Skoðað var minjasafnið í Glaumbæ, og vakti það óskipta athygli ferðamanna. Því næst var ekið sem leið liggur að Hreðavatni. Á Hótel Bifröst var skipulag allt hið bezta og viðurgjörn- ingur góður; var gist þar um nóttina. Skyr og óvaxtagrautur Nú átti að halda ferðinni áfram, um Suðurland, án viðkomu í Reykjavík. Skoðaður var hinn frægi Deildartunguhver í Reykholtsdal og síðan ekið um Uxahryggi. Efst í Lundarreykjadal eru mörg ör- nefni kennd við England, svo sem bær, háls, flói og foss. Sannast þar hið fornkveðna, að viðar er Eng- land en í Kaupmannahöfn. í Valhöll var landfræðingunum boðið til hádegis- verðar af ríkisstjórninni. Þar var viðskiptamála- ráðherra gestgjafi og kvað hann íslendingum mik- ilvægt að fá svo góða gesti og áhugasama um land og þjóð. Enda háfa margir, sem þarna voru við- staddir mjög góð tækifæri að koma því á framfæri, er fyrir augu bar. Má sem dæmi nefna Chabot, einn frægasta landfræðing Frakka, Leighly, einn þekkt- asta loftslagsfræðing í Bandaríkjunum, Cressey, forseta landfræðiþingsins í Washington 1952 og 22 FRJÁLS VERZLUIf

x

Frjáls verslun

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.