Frjáls verslun - 01.12.1967, Qupperneq 69
FRJÁLS VERZLUN
41
: |
FATATÍZKAN
STÆRSTA TÍZkLSÝNINGIN
Modelsamtökin, sem eru samtök
sýningarfólks, efndu til einnar
stærstu tízkusýningar, sem hér
hefur verið' haldin að Hótel Sögu
föstudaginn 8. desember s.l. Þar
var sýndur tízkufatnaður fyrir
karla og konur bæði innlendur og
útlendur fatnaður. Tólf stúlkur,
tveir herrar, tveir unglingar og
tvö börn sýndu í rúmlega einn og
hálfan tíma. Húsfyllir var á sýn-
ingunni og komust raunar færri
að en vildu. Skömmu áður höfðu
Modelsamtökin haklið sérstaka
tízkusýningu fyrir kaupmenn og
framleiðendur, sem var mjög vel
sótt. Um tuttugu verzlanir og
framleiðendur sýndu vörur sínar
á þessari sýningu. Þarna voru
sýndir kjólar, kápur, dragtir, skór,
sportfatnaður og frakkar fyrir
konur og jakkaföt, frakkar, peys-
ur, skór fyrir karlmenn, buxna-
dragtir, kjólar og skór fyrir ungl-
ingsstúlkur og útifatnaður og inni-
fatnaður fyrir börn. Jón Múli
Árnason, útvarpsþulur, var kynn-
ir. Formaður Modelsamtakanna er
Pálína Jónmundsdóttir og skipu-
lagði hún sýninguna ásamt Unni
Arngrímsdóttur. — Frjáls verzlun
birtir hér nokkrar myndir frá
þessari velheppnuðu sýningu, sem
var ekki sízt til sóma fyrir inn-
lenda framleiðendur, sem komu
mjög á óvart á þessari sýningu.