Frjáls verslun - 01.03.1969, Side 17
FRJALS VERZLUNf
13
"GÆTU ÍSLENDINGAR FRAMLEITT
LÚXUSVARNING MUNDU SOVÉTMENN
ATHUGA UM FREKARI KAUP"
Rœtt við verzlunarfulltrúa Sovétríkjanna.
Nýr verzlunarfulltrúi Sovéf-
ríkjanna kom hingað til lands á
sl. hausti, en sú hefð er ríkjandi
að skipta um fulltrúa þriðja hveit
ár. Verzlunarfulltrúinn nýi heitir
hr. Vladimir K. Krutikov, og er
hann íslenzkum viðskiptum ekk'
með öllu ókunnur, þar sem hann
hefur m. a. átt sæti í samninga-
nefnd um olíusölu til íslands a£’
hálfu Sovétríkjanna.
Fréttamaður Frjálsrar verzlun-
ar fékk tækifæri til að ræða við
hr. Krutikov fyrir skömmu, á
skrifstofu Bifreiða & Landbúnað-
arvéla að Suðurgötu 14, en það
fyrirtæki annast sölu á öllum rúss-
neskum bifreiðum og varahlutum
til þeirra, um viðskipti land-
anna og þróun þeirra. Hr. Kruti-
kov var að því spurður, hvort Is-
lendingar mættu eiga von á
breyttum markaðsaðstæðum í
Sovétríkjunum á komandi áru.n,
þar sem Sovétríkin hafa nú byggt
upp mjög voldugan fiskiflota. Hr.
Krutikov svaraði því til, að Sovét-
ríkin væru stór markaður, og
möguleikarnir þar margir. Miðað
við núverandi ástand væri ekkert
því til fyrirstöðu að kaupa aukiö
magn íslenzkra sjávarafurða, er.
það væri ekki fyrir hendi af hálfa
íslendinga vegna aflatregðu og
ýmissa annarra óviðráðanlegra or
saka.
Um aðild íslands að EFTA og
áhrif hennar á viðskipti við Sovét-
ríkin sagði hr. Krutikov, að þau
áhrif væru algjörlega undir ís-
lendingum sjálfum komin. Sam-
kvæmt blaðafregnum hefði við-
skiptamálaráðherra, Gylfi Þ.
Gíslason, drepið í ræðum sínum
einmitt á það, hvaða áhrif aðíld
Islands hefði á þróun viðskipta við
Sovétríkin ,og taldi ráðherrann, að
áhrifin þyrftu alls ekki að vero
neikvæð. Hr. Krutikov lét þó í
ljós efasemdir um það, að slikt
mat væri rétt.
Mikið hefur verið rætt um það
að undanförnu, hve mikil nauðsyn
sé að selja meira af iðnaðarvör-
um úr landi .Um markaðsmögu-
leika þeirra í Sovétríkjunum sagði
sovézki verzlunarfulltrúinn: „Hjá
sovézkum aðilum er vissulega á-
hugi fyrir hendi að kaupa meira
magn af slíkum vörum, en haía
verður í huga, að Sovétmarkaður-
inn krefst góðrar vöru og að verð-
ið sé sanngjarnt.“
Hann gat þess ennfremur, að
íslenzkur iðnaður væri ekki gam-
all að árum og hefði ekki langa
þróun og reynslu að baki. Því væri
ekki nema eðlilegt, að erfitt
reyndist fyrir íslendinga að vera
í samkeppni um vörur frá öðrum
löndum, þar sem iðnaður væri
gamalgróinn atvinnuvegur.
Um gæði íslenzku framleiðsl-
unnar sagði hr. Krutikov, að öil-
um væri ljóst, að íslenzkar ullar-
vörur, þ. e. peysur og teppi, væru
ekki fluttar til hinna norðlægari
héraða sem lúxus-vörur heldur
sem skjólfatnaður. En hann sagði
ennfermur, að gætu íslenzkir að-
ilar framleitt lúxusvarning, sem
ekki þyrfti einungis að selja t'l
hinna norðlægu svæði, mundu So-
vétmenn að sjálfsögðu athuga um
Forstjóri B. & L., Guðmundur Gíslason, Vladimir K. Krutikov ásamt
starfsmönnum sovéska sendiráðsins og starfsmanni B. & L., Gísla Guð-
imundssyni.