Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.03.1969, Blaðsíða 48

Frjáls verslun - 01.03.1969, Blaðsíða 48
44 FRJALS VERZLUN HAPPDRÆTTIN VINNA MIKILVÆGT STARF AÐ MENNINGAR- OG MANNÚÐARMÁLUM Þrjú stœrstu happdrœttin veltu nálœgt 213.5 millj. kr. árið 1968. Enda þótt tölur um eyðslu er- lendra þjóða í hvers kyns happ- drætti liggi ekki á lausu til sam- anburðar, má telja það alllíklegt, að ef slíkur samanburður væri gerður, yrði hlutur íslendinga ofarlega á blaði. FRJÁLS VERZLUN mun leitast við að kanna, hve hárri upphæð íslendingar eyddu til kaupa á happdrættismiðum árið 1968. Rétt er að taka fram, að ekki eru mikl- ar líkur á því, að hárrétt tala verði árangur þeirrar athugunar. í þessari grein, sem er hin fyrri af tveimur, verður fjallað um þrjú stærstu happdrættin, Happdrætti Háskóla íslands, HappdrættiDval- arheimilis aldraðra sjómanna og Happdrætti sambands íslenzkra berklasjúklinga. Rætt er við for- stjóra happdrættanna og gerðu þeir grein fyrir starfsemi fyrir- tækja sinna og þá fyrst og fremst, hvernig ágóða þeirra væri varið. f síðari greininni verður leitazt við að gera grein fyrir öðrum happdrættum, en eins og kunnugt er, eru þau fjölmörg og tilgangur þeirra margvíslegur. HAPPDRÆTTI HÁSKÓLA ÍSLANDS. Happdrætti Háskóla íslands er langstærst hinna þriggja og var velta þess um það bil 130 millj. kr., að því er forstjóri þess, Páll H. Pálsson, sagði. Happdrættið greiðir 70% af andvirði seldra miða í vinninga og eru vinningar skattfrjálsir, en hið sama er og að segja um vinninga hinna happ- drættanna. Happdrætti Háskólans varstofn- að með lögum árið 1933, en dreg- ið var í fyrsta sinn í marz 1934, og er happdrættið því 35 ára um þessar mundir og er jafnframt hið elzta af þeim, sem fjallað er um í þessum þætti. Höfuðástæða stofnunar Happ- drættis Háskóla íslands var hús- Páll H. Pálsson. næðisvandamál Háskóla íslands, enda segir í lögunum um stofnun happdrættis fyrir ísland, — ,,að ágóðanum skuli varið til þess að reisa hús handa háskólanum, enda greiði leyfishafi í ríkissjóð 20% af nettó hagnaði í einkaleyfis- gjald“, og þannig er Happdrætti Háskólans eina happdrættið, sem greiðir skatt af arði sínum til rík- issjóðs, en hefur þar á móti einka- leyfi á því að greiða vinninga í peningum. RÁÐSTÖFUN ÁGÓÐANS. Páll H. Pálsson gerði grein fyr- ir helztu verkefnum, sem unnið hefur verið að fyrir tekjur happ- drættisins, en eins og getið er að ofan, ber að verja tekjum þess til að koma upp húsum fyrir háskól- ann: Fyrst ber að nefna Atvinnu- deild háskólans, enda var háskóla- kennurum mjög annt um það, þegar happdrættislögin voru sam- þykkt, og séð var, að háskólinn mundi hafa yfir að ráða nokkru fé, að undirbúin skyldi aukning starfssviðs skólans. Var það gert með byggingu atvinnudeildarinn- ar og var þá ákveðið, að háskól- inn skyldi taka að sér að láta rannsaka og hafa forystu um aukna þekkingu á öllu, er lyti að aðalatvinnuvegum landsmanna. Háskóli Islands var að mestu full- byggður árið 1940, en árlega er varið til hans af happdrættisfé fjármagni til endurbóta, aukning- ar húsmuna, áhalda o. s. frv. Há- skólalóðin. Til hennar hefur verið varið allmiklu fé til ræktunar, malbikunar gatna o. s.frv. íþrótta- hús Háskólans var reist á árunum 1945—49 og síðan hefur veriðreist ofan á það hæð, þar sem komið
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Frjáls verslun

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.