Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.03.1969, Blaðsíða 42

Frjáls verslun - 01.03.1969, Blaðsíða 42
FRJALS VERZLUN 3B NESTLÉ SVISSNESKA MJÓLKURVINNSLAN SEM VARÐ AD ALÞJÓDLEGU VIÐSKIPTASTÓRVELDI ÞAÐ VAR árið 1866, sem fyrsti vísirinn að Nestlé stórveldinu sá dagsins Ijós í bænum Vevey við Genfarvatnið í Sviss. Þá stofn- setti Henri Nestlé, sjálfmenntað- ur uppfinningamaður, verksmiðj- ur til framleiðslu á barnamat úr svissneskri mjólk. Henri Nestlé var ættaður frá Frankfurt am Main, en flutti ung- ur búferlum til Vevey. Þar í bæ hafði hann fyrst ofan af fyrir sér með sölu olíulampa og komst í nokkrar álnir. Nestlé varð snemma sannfærð- ur um, að svissneskar mjólkuraf- urðir ættu framtíð fyrir sér sem útflutningsvara til iðnaðarland- anna og þá einkum Bretlands. Hafði hann þá í huga þörfina, sem vannærð börn iðnaðarborganna hlytu að hafa fyrir næringarríkan barnamat, að undirstöðu úr mjólk. Með aðferð sinni, sem tryggöi ferskleika mjólkurinnar, hófst hann því handa um verksmiðju- rekstur og lagði aleigu sína undii. En það voru fleiri en Nestlé, sem höfðu eygt möguleikana í mjólk- urframleiðslunni. Nokkrum már:- uðum áður en hann hóf fram- leiðslu, höfðu hinir bandarísku Page-bræður gengizt fyrir stofnun mjólkurvinnslu og niðursuðu í bænum Cham. f félagi með þeim voru nokkrir auðugir samlandai og svissneskur bankajöfur. Mark- miðið var útflutningur til Breta- veldis, sem þá drottnaði yfir heimsverzluninni og bauð upp á sölumöguleika í öllum heimsáif- um. Mörgum þótti sem Nestlé fæiö- ist mikið í fang að ætla sér sam- keppni við slíka risa, og var fyr- irtæki hans ekki fyrirhugað langt líf. Með óbilandi seiglu tókst Nes- tlé þó að standast fæðingarhriö- Henri Nestlé. irnar þannig, að krílið við Genfar- vatn óx í fullburða fyrirtæki, sem glímdi hart við Page-bræður á mörkuðum Bretaveldis. Stóð svo allt til ársins 1905, að þau sameinuðust í eitt fyrirtæki; Nestlé og ensk-svissnesku mjólk- urvinnsluna. Henri Nestlé hafði þá fyrir allmörgum árum selt fyriv- tæki sitt svissneskum fjármála- mönnum fyrir eina milljón sviss- neskra franka. Nýja fyrirtækið varð þegar stórveldi í sinni grein. Það réði yfir átján verksmiðjum flestum í Svisslandi, en dótturfyr- irtæki voru starfrækt í Bretlandi, Noregi, U.S.A., Þýzkalandi og á Spáni. Höfuðstöðvarnar allt tiL þessa dags eru í Vevey. Margt hafði drifið á daga mjóik- uriðnaðarins á þessum árum. Fátt þó mikilvægara en uppgötvun Svisslendingsins Daniels Peters á mjólkursúkkulaðinu. Þessi góm- sæta vara hafði þegar lagt undir sig „munn og hjörtu“ neytenda um víða veröld, og varð Nestlé frá upphafi góður búhnykkur. Þegar fyrri heimsstyrjöldin brauzt út, hafði Nestlé fært mjög út kvíarnar um alla Evrópu. Kom stríðið því í fyrstu mjög illa niðu: á rekstrinum. En nýir möguleikar opnuðust. Stríðsreksturinn krafð- ist hvers konar niðursuðuvarn- ings, og aðaláherzlan var nú lögð á uppbyggingu bandarísku dóttur- fyrirtækjanna. í lok stríðsins var svo komið, að framleiðslan hafði tvöfaldazt frá því á árinu 1914. Eftir stríðið hófst landnám í S- Ameríku, með því að reist var verksmiðja í Brasilíu. Varð það upphafið að víðtækri fjárfestingu í rómönsku Ameríku. í Ástralíu, S-Ameríku og um gjörvalla Evr- ópu voru nýjar verksmiðjur sett- ar á laggirnar, en á Bretlandi varð
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Frjáls verslun

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.